Þessi færsla er meira en 7 ára gömul.
Stafrófsflokkarnir mynda náttúrulegan meirihluta
Flokkadrættir á alþingi taka á sig mynd. Stafrófsflokkarnir ABCD mynda meirihluta í lífeyrissjóðsmálinu eða LSR málinu.
Þetta frumvarp er mikilvægt og jafnframt staðsetur nýja stjórnmálaflokka á tvívíðum ás stjórnmálanna.
Það sem kemur á óvart hvar Viðreisn og Björt framtíð lenda. Mun meira til hægri við miðjuna.
Þessi staðsetning byggir á þeirri staðreynd að í þessum meirihluta er gegnrýni stéttarfélaganna hunsuð.
Nýju flokkarnir eru því vinnuveitendamegin í þessu máli.
Næsta verkefni er að afgreiða fjárlög.
Þá kemur í ljós hvort þessi meirihluti sé sleginn í gadda.
Athugasemdir