Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 4 árum.

Gunnar Bragi segir Samherjamálið „æsifréttir“ og vill stöðva styrki til einkafjölmiðla

Gunn­ar Bragi Sveins­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, seg­ist hugsa um börn starfs­manna Sam­herja vegna frétta um mútu­greiðsl­ur í Namib­íu, sem hann viti ekki hvort séu sann­ar. Hann seg­ir RÚV og Stund­ina oft hafa gert hlut­ina verri og vill stöðva op­in­bera styrki til einka­fjöl­miðla.

Gunnar Bragi segir Samherjamálið „æsifréttir“ og vill stöðva styrki til einkafjölmiðla
Gunnar Bragi Sveinsson Þingmaðurinn segir RÚV og Stundina oft hafa „matreitt málin eftir eigin höfði til þess eins að gera hlutina enn verri“. Mynd: Miðflokkurinn

Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins, segir „æsifréttir“ einkenna umfjöllun um Samherjamálið og að það þurfi að stöðva opinbera styrki til einkarekinna fjölmiðla. Í grein í Morgunblaðinu í dag segist hann hugsa til barna stjórnenda Samherja og starfsmanna.

„Ég hugsa til starfsmanna Samherja sem horfa nú á stríðsfyrirsagnir um fyrirtækið og stjórnendur þess,“ skrifar hann. „Sérstakt samband virðist milli Ríkisútvarpsins og Stundarinnar enda er oft sagt að líkur sæki líkan heim.“

Þingmaðurinn segist ekki vita hvort eitthvað sé til í ásökununum á hendur Samherja og það verði dómstólar að leiða í ljós. „Ríkisútvarpið og Stundin hafa áður sængað saman og þá matreitt málin eftir eigin höfði til þess eins að gera hlutina enn verri. Því er mikilvægt að bíða eftir heildarmyndinni áður en opinberar aftökur hefjast. Auðvitað vonar maður að það taki ekki of langan tíma að rannsaka málið og að starfsmenn Samherja haldi áfram stoltir að búa til gjaldeyri fyrir þjóðina,“ segir hann. Í umfjöllun Stundarinnar og Kveiks, sem unnin er í samstarfi við Wikileaks og Al Jazeera kemur er sýnt fram á víðtæk brot Samherja í Namibíu með mútustarfsemi.

„Þeir og aðrir sem að fyrirtækinu standa eða starfa hjá því eiga fjölskyldur, börn sem skilja ekki orðin sem notuð“

Gunnar Bragi segir suma fjölmiðla reyna að hneyksla með æsifréttastíl og ekki hugsa um annað en áhorfstölur og „klikk“ á vefsíðum. „Það er slæmt fyrir okkur öll þegar eitt af öflugustu fyrirtækjum landsins er sakað um vafasama viðskiptahætti,“ skrifar hann. „Eðlilegt er að þeir sem ábyrgð bera svari fyrir það. Þeir og aðrir sem að fyrirtækinu standa eða starfa hjá því eiga fjölskyldur, börn sem skilja ekki orðin sem notuð eru eða hvers vegna fjölskyldufaðirinn eða móðirin blandast inn í þá umræðu sem búin var til með æsifréttastílnum. Æsingur fjölmiðilsins til að ná athyglinni er stundum svo mikill að annað skiptir ekki máli. Athygliskeppnin er eins og aurskriða sem engu eirir og síst sannleikanum sem kannski kemur í ljós seint og um síðir. Á þá ekki að upplýsa um það sem miður fer eða þegar líkur eru á einhverju broti? Jú, svo sannarlega en hvernig það er gert skiptir máli.“

Endar Gunnar Bragi pistilinn á því að lýsa hugmyndum Miðflokksins um að stöðva fyrirhugaða styrki til reksturs einkarekinna fjölmiðla sem Lilja Alfreðsdóttir, mennta-og menningarmálaráðherra, hefur lagt til. Í frumvarpinu er lagt til að endurgreiddur verði ritstjórnarkostnaður einkafjölmiðla, en þó aldrei um meira en nemur 50 milljónum króna á ári. „Miðflokkurinn lagði m.a fram tillögu um að hætt yrði við að ríkisvæða fjölmiðla á einkamarkaði en stjórnarflokkarnir leggja til að 400 milljónir króna renni til miðla á einkamarkaði,“ skrifar hann. „Galin hugmynd þegar ríkið er nú þegar að setja 5 þúsund milljónir króna í ríkisrekinn fjölmiðil. Það að reyna að koma öllum fjölmiðlum á ríkisspenann minnir óþægilega á samfélög þar sem stjórnvöld reyna að stýra öllum fjölmiðlum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að ís­lensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Sam­herja“

Leið­togi namib­ísku stjón­ar­and­stöð­unn­ar seg­ir landa sína undr­ast þögn ís­lenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namib­íu hafi orð­ið til fyr­ir til­stilli ís­lensks fyr­ir­tæk­is. Spyr hvort hundrað millj­óna styrk­ur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og send­ir for­sæt­is­ráð­herra op­ið bréf og ósk­ar liðsinn­is henn­ar við að fá Sam­herja til að greiða bæt­ur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Sam­herji sak­að­ur um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namib­íu og framsalskrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namib­íu er enn ákveð­inn í því að óska eft­ir framsali þriggja stjórn­enda Sam­herja­fé­laga í Namib­íu og seg­ir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lög­um muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efn­in á hend­ur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herja­fé­laga sögð til rann­sókn­ar. Sam­herja­mað­ur seg­ir ís­lensk yf­ir­völd þeg­ar hafa neit­að að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Ís­lands­vin­kona svo gott sem orð­in for­seti Namib­íu

Net­um­bo Nandi-Ndaitwah, ut­an­rík­is­ráð­herra Namib­íu, sem kom hing­að til lands í júní og ræddi Sam­herja­mál­ið við ís­lenska ráð­herra og að­stoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem bú­in að tryggja sér for­seta­embætt­ið í Namib­íu. Hún var í morg­un kjör­in arftaki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helg­an stein. Flokk­ur­inn nýt­ur slíks yf­ir­burð­ar­fylg­is að inn­an­flokks­kosn­ing­in er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eft­ir því“

Jó­hann­es Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herja­mál­inu, er sátt­ur við gang rann­sókn­ar­inn­ar hér á landi og seg­ir að fátt geti kom­ið í veg fyr­ir að mál­ið endi með dómi. Hann gagn­rýn­ir þó að­gerð­ar­leysi yf­ir­valda við því þeg­ar Sam­herja­menn hafa áreitt, njósn­að um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögð­um Sam­herja­fólks hafi þó kom­ið hon­um á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðr­um lið­ist.
Færeyskur ráðherra krafinn svara um Samherjarannsókn
FréttirSamherjaskjölin

Fær­eysk­ur ráð­herra kraf­inn svara um Sam­herj­a­rann­sókn

Högni Hoy­dal, formað­ur Þjóð­veld­is­flokks­ins fær­eyska, hef­ur í fær­eyska þing­inu ósk­að eft­ir svör­um við því hvað líði rann­sókn lög­reglu á meint­um skatta­laga­brot­um Sam­herja í Fær­eyj­um. Sam­herji end­ur­greiddi 340 millj­ón­ir króna til fær­eyska Skatts­ins, sem vís­aði mál­inu til lög­reglu. Síð­an hef­ur lít­ið af því frést.
Fjármálastjóri hjá Samherja segir mútugreiðslur í Afríku nauðsynlegar
FréttirSamherjaskjölin

Fjár­mála­stjóri hjá Sam­herja seg­ir mútu­greiðsl­ur í Afr­íku nauð­syn­leg­ar

Brynj­ar Þórs­son, fjár­mála­stjóri Sam­herja á Kana­ríeyj­um, sem með­al ann­ars kom að greiðsl­um til namib­ískra ráða­manna, seg­ir að „svo­kall­að­ar mútu­greiðsl­ur“ séu „stand­ard“ í Afr­íku. Þetta kom fram í yf­ir­heyrsl­um yf­ir Brynj­ari sem hef­ur stöðu vitn­is í rann­sókn Sam­herja­máls­ins hjá hér­aðssak­sókn­ara. Brynj­ar sagði Sam­herja hafa beitt sömu að­ferð­um til að kom­ast yf­ir kvóta í Mar­okkó og Má­rit­an­íu, áð­ur en fyr­ir­tæk­ið hóf út­gerð í Namib­íu.

Mest lesið

Örlæti Haraldar kostar ríkissjóð yfir hálfan milljarð
2
Afhjúpun

Ör­læti Har­ald­ar kost­ar rík­is­sjóð yf­ir hálf­an millj­arð

Rík­is­sjóð­ur sit­ur uppi með yf­ir 500 millj­óna króna reikn­ing eft­ir að Har­ald­ur Johann­essen, fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri, hækk­aði líf­eyr­is­rétt­indi út­val­inna und­ir­manna sinna um helm­ing, án þess að hafa til þess heim­ild. Þetta er nið­ur­staða meiri­hluta Hæsta­rétt­ar sem kall­ar verk Har­ald­ar „ör­læt­is­gjörn­ing“. Stór hluti þess­ara und­ir­manna Har­ald­ar skrif­aði und­ir op­in­bera stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við hann stuttu síð­ar. Samn­ing­arn­ir standa samt því und­ir­menn­irn­ir vissu ekki bet­ur en að Har­ald­ur mætti gera þá. Um­mæli tveggja ráð­herra hafi styrkt þá trú þeirra.
Þórður Snær Júlíusson
4
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Dýr­asta kosn­ingalof­orð Ís­lands­sög­unn­ar

Ár­ið 2003 lof­aði Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 90 pró­sent lán­um til hús­næð­is­kaupa svo börn gætu flutt úr for­eldra­hús­um. Rík­is­ábyrgð var á fjár­mögn­un lán­anna. Nú, tveim­ur ára­tug­um síð­ar, stend­ur rík­is­sjóð­ur frammi fyr­ir því að vera að tapa að nokkr­um millj­örð­um króna á mán­uði vegna þess­ara lof­orða og það hef­ur aldrei ver­ið erf­ið­ara fyr­ir ungt fólk að kom­ast í eig­ið hús­næði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
1
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.
Var dæmdur til dauða fyrir hryðjuverk
4
ViðtalÚkraínustríðið

Var dæmd­ur til dauða fyr­ir hryðju­verk

Bret­inn Shaun Pinner var ný­kom­inn úr löngu sam­bandi og fann fyr­ir lífs­kreppu sem marg­ir á miðj­um aldri upp­lifa. Hans lausn við henni var að fara til Úkraínu og þjálfa her­menn. Pinner var hand­tek­inn, stung­inn og pynt­að­ur af Rúss­um en var svo hluti af stór­um fanga­skipt­um sem áttu sér stað milli stríð­andi fylk­inga í sept­em­ber 2022. Ósk­ar Hall­gríms­son ræddi við Pinner.
Segir íslenskt kórastarf geta stuðlað að aukinni inngildingu
7
FréttirForsetakosningar 2024

Seg­ir ís­lenskt kór­astarf geta stuðl­að að auk­inni inn­gild­ingu

Halla Hrund Loga­dótt­ir vill hvetja út­lend­inga til að „læra tungu­mál­ið okk­ar í gegn­um söng og ís­lensk­una.“ Halla Hrund seg­ir að við þurf­um að vera að­eins meira skap­andi í því hvernig við nálg­umst við­fangs­efni inn­flytj­enda. Hún var með­al for­setafram­bjóð­enda sem mættu í pall­borð­sum­ræð­ur í síð­asta þætti Pressu.
Við hvaða götu býr Ragnar? Reykás
10
Helgi skoðar heiminn

Við hvaða götu býr Ragn­ar? Reykás

Sauð­kræk­ing­ur­inn Ragn­ar Páll Árna­son, sem starfar hjá Öss­uri, býr í ná­grenni höf­uð­stöðva fyr­ir­tæk­is­ins, við göt­una Reykás. Seg­ist ekki hafa ætl­að að ílengj­ast þar, en kann nú hvergi bet­ur við sig. Siggi Sig­ur­jóns, guð­fað­ir Ragn­ars Reykáss, kann vel að meta sög­una af „nafna“ sín­um. Hann á sjálf­ur pín­lega en um leið drep­fyndna sögu tengda göt­unni í Ár­bæn­um.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
ViðtalFatlað fólk beitt nauðung

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
3
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
8
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
9
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu