Þessi færsla er meira en 6 ára gömul.

TRÓPÍ OG MINUTE MAID ER SAMI DRYKKURINN

Ég er áhugamanneskja um ávaxtasafa.  Mér þykja þeir bragðgóðir og mér er sagt að þeir séu hollir ef neysla þeirra sé innan skynsemismarka.  Ég á mér engann uppáhaldssafa – þannig séð – en fátt jafnast á við nýpressaðan appelsínusafa. Slíkir fást t.d í Hagkaup út á Seltjarnarnesi og sennilega víðar.

Ég held að margar fjölskyldur kaupi reglulega inn svona safa.  Ég skrifaði einu sinni blogg um appelsínusafa og mér til undrunar kom í ljós að heimur appelsínusafans er afar áhugaverður.

Þegar Costco opnaði var hægt að kaupa allskonar djúsa á góðu verði.  Ég bragðaði nokkra þeirra og þeir voru allir ágætir. Sumir voru reyndar betri en aðrir. Þar sem ég kann að lesa innihaldslýsingar á matvörum sá ég að sumt er bara djús eins og maður blandar sjálfur.  Ávaxtaþykkni sem er búið að blanda.  Það er ekkert sérstaklega sniðug innkaup. Þá er bara betra að kaupa þykkni.

Sparar peninga og pláss.

Bryndís mín er frekar vanaföst. Fær sér alltaf hafragraut á morgnanna og eitt glas af appelsínudjúsi. Alltaf Trópí þangað til við prófuðum eitthvað djús í Costco.  Um daginn vantaði djús og ég fór út í Iceland og þar blasti við mér heill veggur af djúsum.

Ég sveif á Trópi-hilluna og var alveg reiðubúinn að taka girnilegan safann og færa í körfuna, en sá því miður við jaðar sjónsviðsins aðra sort.  -Minute Maid.

 

Forvitni ég fór að lesa innihaldslýsinguna.  Þetta reyndist nánast alveg eins og Trópí-ið.  Ég keypti báðar fernurnar enda nennti ég ekki að fá þetta á heilann.  Þegar heim var komið bar ég þetta saman.  Það er smávegis munur á kalóríum en annars enginn.

 

 

 

 

 

Munurinn var fyrst og fremst í því að Trópísafinn kostaði 249 krónur  en Minute Maid kostaði 149 krónur  – Það er 40% munur.

Ég tók því skrefið til fulls og gerði einskonar Pepsi challenge á heimilisfólkinu.  Niðurstaðan var eiginlega sú að báðir safarnir fengu sömu einkunn.  Allir sammála um að bragðið væri eiginlega það sama.  Bryndís féll á prófinu og sagði Minute Maid vera aðeins betri.  Nokkuð sem er sérkennilegt því manneskjan hefur drukkið hundruð lítra af Trópí í gegnum tíðina.  Hún sagði þó vera afar lítinn mun á þessum söfum.

Gott og vel.  Nú kaupi ég Minute Maid héðan í frá. 40% verðmunur er of mikill til að afsaka hina „íslensku“ framleiðslu.

Svo fór ég að undirbúa þetta blogg. Las mér aðeins til.  Rifjaði upp gamla bloggið og googlaði Minute Maid sem bragðast eins og Trópí en er 40% ódýrara.  Það kom skemmtilega á óvart.

Minute Maid er risafyrirtæki og hluti  af Coca Cola Company síðan 1960.  Minute Maid er selt undir öðrum nöfnum í öðrum löndum.  Minute Maid heitir Cappy í Mið-Evrópu og Fruktopia í Noregi.  Það heitir De Valle í Kólumbíu og Frugos í Paraguay.

Og á Íslandi heitir Minute Maid. . .

. . . .Trópí.

Þannig að….

 

Sama djúsið kostar 149 krónur umbúðum frá Minute Maid en 249 krónur í umbúðum frá Trópí.

 

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni

Loka auglýsingu