Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 5 árum.

Var andvígur frekari uppbyggingu félagslegs húsnæðis fyrir kosningar en gagnrýnir nú meirihlutann fyrir að hunsa vandann

Ey­þór Arn­alds lýsti sig ger­sam­lega mót­fall­inn auk­inni áherslu á upp­bygg­ingu fé­lags­legs hús­næð­is í Reykja­vík í kosn­inga­prófi RÚV í að­drag­anda sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga. Nú legg­ur hann fram bók­an­ir þar sem meiri­hlut­inn er gagn­rýnd­ur fyr­ir að „hunsa mála­flokk­inn“.

Var andvígur frekari uppbyggingu félagslegs húsnæðis fyrir kosningar en gagnrýnir nú meirihlutann fyrir að hunsa vandann

Eyþór Arnalds, leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í borginni og borgarráðsfulltrúi, lýsti sig mótfallinn aukinni áherslu á uppbyggingu félagslegs húsnæðis í Reykjavík í kosningaprófi RÚV í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Í gær lagði hann hins vegar fram bókanir, ásamt fleiri borgarráðsfulltrúum minnihlutans, þar sem fundið er að stöðu félagslegs húsnæðis í Reykjavík og borgin sögð hafa hunsað málaflokkinn um langa hríð. 

„Það er hjákátlegt að meirihlutinn ætlar að varpa ábyrgðinni á aðgerðarleysi borgarinnar síðustu árin að fjölga félagslegum íbúðum yfir á ríkið,“ segir í bókun sem borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram ásamt áheyrnarfulltrúa Miðflokksins og Flokks fólksins. „Þessi meirihluti eins og síðustu tveir virðist algjörlega vera búinn að gleyma því að borgin fer með skipulagsvaldið, sér um lóðaúthlutanir og á Félagsbústaði og gat byggt og keypt litlar íbúðir síðustu árin. Viljinn var hins vegar enginn.“ Í annarri bókun, sem fulltrúi Sósíalistaflokksins stóð einnig að, segir: „Sú staða sem nú er uppi í Reykjavík hvað varðar félagslegt húsnæði er á ábyrgð fráfarandi meirihluta borgarstjórnar. Hvað gera á til framtíðar er góðra gjalda vert en breytir því ekki að þessi málaflokkur hefur verið hundsaður hjá borginni um langa hríð.“

Snæbjörn Brynjarsson, rithöfundur og varaþingmaður Pírata, bendir á það á Facebook að þegar Eyþór tók kosningapróf RÚV í vor og lýsti afstöðu sinni til ýmissa mála lýsti hann sig fullkomlega andvígan frekari uppbyggingu félagslegsra íbúða í Reykjavík. Hér má sjá skjáskot af vef RÚV:

Svona svaraði Eyþór.

Í bókun frá borgarráðsfulltrúum Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna er bent á að aldrei hafa verið fleiri íbúðir í uppbyggingu í sögu Reykjavíkur. „Hvergi á Íslandi eru framlög til húsnæðismála hærri en í Reykjavík. Á árunum 2018-2022 eru framlögin áætluð upp á 70 milljarða og þar af eru 14,2 milljarðar áætlaðir í ár. Þá fjölgar félagslegu húsnæði ört enda kaupa Félagsbústaðir íbúðir í nær öllum uppbyggingarverkefnum sem nú eru í gangi í Reykjavík með það fyrir augum að stytta til muna biðlista eftir félagslegu leiguhúsnæði,“ segir í bókuninni. „Ef öll sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu ættu sama hlutfall félagslegra íbúða og Reykjavík þá væru líklega engir biðlistar eftir félagslegu húsnæði. Það væri því æskilegt að sett verði lög um lágmarkshlutfall félagslegra íbúða í eigu sveitarfélaga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2018

Hagsmunatengsl borgarfulltrúa: Eyþór enn í stjórnum fimm félaga
ÚttektBorgarstjórnarkosningar 2018

Hags­muna­tengsl borg­ar­full­trúa: Ey­þór enn í stjórn­um fimm fé­laga

Ey­þór Arn­alds sit­ur enn í stjórn­um fimm fé­laga og eru tvö þeirra eign­ar­halds­fé­lög með rúm­an einn og hálf­an millj­arð í eign­ir. Hann lof­aði að skilja sig frá við­skipta­líf­inu þeg­ar hann vann leið­toga­próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í janú­ar. Odd­viti Við­reisn­ar og fleiri ný­ir borg­ar­full­trú­ar sitja í stjórn­um fé­laga.
Vildi ekki verða „húsþræll“ í vinstri- og miðjusamstarfi en myndaði atkvæðablokk með Sjálfstæðisflokknum
FréttirBorgarstjórnarkosningar 2018

Vildi ekki verða „hús­þræll“ í vinstri- og miðju­sam­starfi en mynd­aði at­kvæða­blokk með Sjálf­stæð­is­flokkn­um

Sanna Magda­lena Mörtu­dótt­ir, borg­ar­full­trúi Sósí­al­ista­flokks­ins, sæt­ir harðri gagn­rýni fyr­ir að hafa stillt sér upp með Sjálf­stæð­is­flokkn­um og Mið­flokkn­um af praktísk­um ástæð­um. „Fram­kvæmd­ar­stjóri borg­ar­stjórn­ar­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins sendi fyr­ir hönd allr­ar stjórn­ar­and­stöð­unn­ar skip­an okk­ar í nefnd­ir,“ sagði Hild­ur Björns­dótt­ir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í dag.
Dagur áfram borgarstjóri í nýjum meirihluta
FréttirBorgarstjórnarkosningar 2018

Dag­ur áfram borg­ar­stjóri í nýj­um meiri­hluta

Full­trú­ar Við­reisn­ar verða formað­ur borg­ar­ráðs og for­seti borg­ar­stjórn­ar. Nýr meiri­hluti Sam­fylk­ing­ar, Við­reisn­ar, Vinstri grænna og Pírata var kynnt­ur við Breið­holts­laug í dag. Líf Magneu­dótt­ir, odd­viti Vinstri grænna, raul­aði „Im­per­ial March“, stef Darth Vader úr Star Wars mynd­un­um og upp­skar mik­inn hlát­ur við­staddra.

Mest lesið

Davíð kallar borgarstjórn bjálfa fyrir að taka niður styttuna af Séra Friðriki
2
FréttirSr. Friðrik og drengirnir

Dav­íð kall­ar borg­ar­stjórn bjálfa fyr­ir að taka nið­ur stytt­una af Séra Frið­riki

Rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins seg­ir upp­lýs­ing­ar um að Séra Frið­rik Frið­riks­son, stofn­andi KFUM, hafi beitt fjöl­marga drengi kyn­ferð­is­legu áreiti og of­beldi vera „get­gát­ur eins manns“ eft­ir að „ímynd­un­ar­afl hans fór loks í gang eft­ir tæp 75 ár.“ Það að stytta af hon­um hafi ver­ið fjar­lægð sé merki um of­stæki þeirra sem noti hvert tæki­færi til að þykj­ast betra og pen­inga­laus­ara en ann­að fólk.
Steinunn Ólína segist ekki bjóða sig fram gegn Katrínu vegna persónulegrar óvildar
4
Fréttir

Stein­unn Ólína seg­ist ekki bjóða sig fram gegn Katrínu vegna per­sónu­legr­ar óvild­ar

Stein­unn Ólína Þor­steins­dótt­ir sagð­ist í Pressu fara fram fyr­ir hönd þeirra sem upp­lifa valda­leysi gagn­vart stjórn­völd­um. Taldi hún for­seta­kosn­ing­arn­ar vera af­ar póli­tísk­ar að þessu sinni. Þrátt fyr­ir gagn­rýni sína á rík­is­stjórn Katrín­ar Jak­obs­dótt­ur, ít­rek­aði Stein­unn að fram­boð henn­ar væri ekki vegna per­sónu­legra óvild­ar henn­ar í garð Katrínu.
Katrín telur sig ekki þurfa að svara spurningum um laxeldisfrumvarp
6
FréttirLaxeldi

Katrín tel­ur sig ekki þurfa að svara spurn­ing­um um lax­eld­is­frum­varp

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­setafram­bjóð­andi og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra þar til fyr­ir tæp­um mán­uði síð­an, tel­ur sig ekki þurfa að svara spurn­ing­um um mál sem hún kom að á Al­þingi sem enn eru í vinnslu þar. Í fyrsta skipti er for­setafram­bjóð­andi í þeirri stöðu að þurfa mögu­lega að sam­þykkja eða synja lög­um sem við­kom­andi kom að á þingi sem ráð­herra.
Formaður Sameykis sakaður um ógnarstjórn
7
Skýring

Formað­ur Sam­eyk­is sak­að­ur um ógn­ar­stjórn

Skrif­stofa Sam­eyk­is hef­ur und­an­far­ið ver­ið að glíma við ósætti á vinnu­staðn­um og slæm­an vinnu­anda. Sam­kvæmt ný­legri út­tekt sem gerð var á vinnu­staðn­um bend­ir ým­is­legt til að vand­ann megi rekja til fram­komu og stjórn­un­ar­hátta for­manns Sam­eyk­is, Þór­ar­ins Eyfjörð. Sjálf­ur seg­ist hann hafa tek­ið til sín eitt­hvað af þeirri gagn­rýni sem bein­ist gegn hon­um og að vinna við að bæta and­rúms­loft­ið á skrif­stof­unni sé vel á veg kom­inn.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Örlæti Haraldar kostar ríkissjóð yfir hálfan milljarð
3
Afhjúpun

Ör­læti Har­ald­ar kost­ar rík­is­sjóð yf­ir hálf­an millj­arð

Rík­is­sjóð­ur sit­ur uppi með yf­ir 500 millj­óna króna reikn­ing eft­ir að Har­ald­ur Johann­essen, fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri, hækk­aði líf­eyr­is­rétt­indi út­val­inna und­ir­manna sinna um helm­ing, án þess að hafa til þess heim­ild. Þetta er nið­ur­staða meiri­hluta Hæsta­rétt­ar sem kall­ar verk Har­ald­ar „ör­læt­is­gjörn­ing“. Stór hluti þess­ara und­ir­manna Har­ald­ar skrif­aði und­ir op­in­bera stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við hann stuttu síð­ar. Samn­ing­arn­ir standa samt því und­ir­menn­irn­ir vissu ekki bet­ur en að Har­ald­ur mætti gera þá. Um­mæli tveggja ráð­herra hafi styrkt þá trú þeirra.
Þórður Snær Júlíusson
8
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Dýr­asta kosn­ingalof­orð Ís­lands­sög­unn­ar

Ár­ið 2003 lof­aði Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 90 pró­sent lán­um til hús­næð­is­kaupa svo börn gætu flutt úr for­eldra­hús­um. Rík­is­ábyrgð var á fjár­mögn­un lán­anna. Nú, tveim­ur ára­tug­um síð­ar, stend­ur rík­is­sjóð­ur frammi fyr­ir því að vera að tapa að nokkr­um millj­örð­um króna á mán­uði vegna þess­ara lof­orða og það hef­ur aldrei ver­ið erf­ið­ara fyr­ir ungt fólk að kom­ast í eig­ið hús­næði.
Davíð kallar borgarstjórn bjálfa fyrir að taka niður styttuna af Séra Friðriki
10
FréttirSr. Friðrik og drengirnir

Dav­íð kall­ar borg­ar­stjórn bjálfa fyr­ir að taka nið­ur stytt­una af Séra Frið­riki

Rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins seg­ir upp­lýs­ing­ar um að Séra Frið­rik Frið­riks­son, stofn­andi KFUM, hafi beitt fjöl­marga drengi kyn­ferð­is­legu áreiti og of­beldi vera „get­gát­ur eins manns“ eft­ir að „ímynd­un­ar­afl hans fór loks í gang eft­ir tæp 75 ár.“ Það að stytta af hon­um hafi ver­ið fjar­lægð sé merki um of­stæki þeirra sem noti hvert tæki­færi til að þykj­ast betra og pen­inga­laus­ara en ann­að fólk.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
ViðtalFatlað fólk beitt nauðung

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
3
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
7
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
8
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár