Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 3 árum.

Samherji vill að Seðlabankinn endurgreiði laun sem útgerðin greiddi fyrrverandi starfsmanni bankans

Út­gerð­ar­fé­lag­ið Sam­herji vill 306 millj­ón­ir í skaða­bæt­ur frá Seðla­banka Ís­lands. Hluti upp­hæð­ar­inn­ar er vegna greiðslna til ráð­gjafa Sam­herja sem svo var með fyrr­ver­andi starfs­mann bank­ans í vinnu hjá sér.

Samherji vill að Seðlabankinn endurgreiði laun sem útgerðin greiddi fyrrverandi starfsmanni bankans
Endurgreiðslur vegna greiðslna til félags Jóns Óttars Rúmlega 130 milljónir af skaðabótakröfu Samherja, sem Þorsteinn Már Baldvinsson á og stýrir, eru vegna vinnu Jóns Óttars Ólafssonar fyrir útgerðina. Myndin er úr dómssal í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Mynd: Davíð Þór

Útgerðarfélagið Samherji vill að Seðlabanki Íslands, sem er í eigu íslenska ríkisins, endurgreiði útgerðinni þær 131 milljón krónur sem fyrirtækið greiddi ráðgjafafyrirtæki afbrotafræðingsins og fyrrverandi rannsóknarlögreglumannsins, Jóns Óttars Ólafssonar, á árunum 2013-2015. Kjarninn greindi frá þessu í dag og byggir á upplýsingum sem fram komu í aðalmeðferð skaðabótamáls Samherja gegn Seðlabanka Íslands sem hófst í morgun. 

Ekki allir þessir fjármunir runnu á endanum til Jóns Óttars sjálfs þar sem ráðgjafafyrirtæki hans, Juralis-ráðgjafarstofa slhf., réði einnig til sín aðra aðila, undirverktaka ef svo má segja, sem einnig unnu að Seðlabankamálinu fyrir hönd Samherja. 

Félag með 26 milljóna tekjur á tveimur árum

Vitni SamherjaHreiðar Eiríksson var vitni Samherja í skaðabótamálinu í dag.

Að minnsta kosti einn af þessum aðilum var félag í eigu fyrrverandi starfsmanns Seðlabanka Íslands, lögfræðingsins Hreiðars Eiríkssonr, en hann var forstöðumaður rannsóknardeildar gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands í upphafi rannsóknar Seðlabanka Íslands á útgerðinni árið 2012. Stundin fjallaði um mál Hreiðars fyrir stuttu. Hreiðar stýrði sem sagt rannsókninni á Samherja um hríð inni í bankanum. 

Árið 2013 stofnaði Hreiðar einkahlutafélagið Exitus ráðgjöf ehf. Árið eftir voru tekjur þessa félags tæplega 13,5 milljónir króna, ári síðar 12,9 milljónir og svo tæplega 900 þúsund árið 2016. 

Neitaði Samherja en ekki Juralis

Þegar Stundin spurði Hreiðar hvort hann hefði unnið fyrir Samherja neitaði hann því. En þegar hann var spurður að því hvort félag hans hefði unnið fyrir Juralis ráðgjafarstofu, félag Jóns Óttars, vildi hann ekki svara. „Ég hef aldrei unnið neitt fyrir Samherja .[…] Ég er ekki að fara að svara neinum spurningum frá fjölmiðlamönnum um þetta mál. Ég ætla ekki að svara neinum spurningum um það fyrir hverja ég vann sem lögmaður,“ sagði Hreiðar aðspurður fyrst um Samherja og svo Juralis ráðgjafarstofu. 

„Ég ætla ekki að svara neinum spurningum um það fyrir hverja ég vann sem lögmaður“

Síðar átti Hreiðar eftir að verða viðmælandi í þætti um Seðlabankamálið sem sjónvarpsstöðin Hringbraut gerði fyrir hönd Samherja um rannsókn bankans á meintum brotum útgerðarfélagsins á lögum um gjaldeyrismál. Í þættinum var Hreiðar kynntur með þeim hætti að rætt hafi verið við „Hreiðar Eiríksson, yfirmann rannsókna hjá gjaldeyriseftirliti Seðlabankans“. Hreiðar sagði við Stundina að hann hafi ekki vitað að þátturinn hafi verið kostaður af Samherja og að ef hann hefði vitað það þá hefði hann líklega ekki tekið þátt í þættinum. 

Í viðtalinu sagði Hreiðar frá fundi sem hann sat með ríkissaksóknara á meðan hann starfaði í Seðlabankanum. Á fundinum var rætt um brot á lögum um gjaldeyrismál. Þagnarskylda hvílir á starfsmönnum Seðlabankans um það sem þeir gera í störfum sínum. 

Vitni Samherja í dag

Staðan er því sú að hluti af skaðabótakröfu Samherja snýr að því að félagið vill fá endurgreiðslur frá Seðlabankanum fyrir vinnu ráðgjafafyrirtækis Jóns Óttars og undirverktaka þess, meðal annars fyrrverandi starfsmanns Seðlabanka Íslands.

131 miljónGreiðslur Samherja til ráðgjafafélags Jóns Óttars Ólafssonar námu 131 milljón á árunum 2013 til 2015. Jón Óttar sést hér fyrir utan Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun áður en hann gaf skýrslu í málinu.

Samkvæmt heimildum Stundarinnar byggðist viðskiptasamband félags Hreiðars og Juralis upp á vinnu hans fyrir Seðlabankann þar sem hann einn bjó yfir upplýsingum um málið og Samherji, eða Juralis-ráðgjafarstofa fyrir hönd útgerðarinnar, gat vart leitað annað eftir sömu þjónustu.  

Hreiðar kom einnig fyrir í dómssalnum í dag sem vitni Samherja í skaðabótamálinu gegn Seðlabanka Íslands. Lokað var á aðkomu fjölmiðla að vitnaskýrslu hans þar sem hann var að greina frá upplýsingum sem vörðuðu bankaleynd. Að Hreiðar er vitni Samherja í skaðabótamálinu í dag sýnir einnig þá stöðu sem hann er í sem fyrrverandi starfsmaður bankans og þau not sem Samherji telur sig getað haft af honum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins
FréttirSamherjamálið

Hlut­haf­ar Sam­herja taka út millj­arð í arð eft­ir upp­skipt­ingu fé­lags­ins

Veru­leg­ar breyt­ing­ar voru gerð­ar á upp­bygg­ingu út­gerð­arris­ans Sam­herja í fyrra þeg­ar fjár­fest­ing­ar­starf­sem­in var að­skil­in frá út­gerð­ar­rekstri með stofn­un eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Lík­legt er að eig­end­ur Sam­herja ætli sér einnig að færa út­gerð­ar­fé­lag­ið inn í eign­ar­halds­fé­lag­ið Látra­fjöll en skatta­leg­ar ástæð­ur geta leg­ið þar að baki.
Almenningshlutafélag í stórri eigu Samherja kaupir í sölufyrirtæki Samherja
FréttirSamherjamálið

Al­menn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Sam­herja kaup­ir í sölu­fyr­ir­tæki Sam­herja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Sam­herja og stjórn­ar­formað­ur Síld­ar­vinnsl­unn­ar, vék sæti þeg­ar al­menn­ings­hluta­fé­lag­ið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Sam­herja af út­gerð­inni. Síld­ar­vinnsl­an ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Kristjáns Vil­helms­son­ar fyr­ir rúm­lega 2 millj­arða króna.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eft­ir því“

Jó­hann­es Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herja­mál­inu, er sátt­ur við gang rann­sókn­ar­inn­ar hér á landi og seg­ir að fátt geti kom­ið í veg fyr­ir að mál­ið endi með dómi. Hann gagn­rýn­ir þó að­gerð­ar­leysi yf­ir­valda við því þeg­ar Sam­herja­menn hafa áreitt, njósn­að um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögð­um Sam­herja­fólks hafi þó kom­ið hon­um á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðr­um lið­ist.
Skattrannsókn á Samherja snýst um hundruð milljóna króna
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Skatt­rann­sókn á Sam­herja snýst um hundruð millj­óna króna

Skatt­rann­sókn, sem hófst í kjöl­far upp­ljóstr­ana um starfs­hætti Sam­herja í Namib­íu, hef­ur stað­ið frá árs­lok­um 2019. Sam­kvæmt heim­ild­um Stund­ar­inn­ar telja skatta­yf­ir­völd að fyr­ir­tæk­ið hafi kom­ið sér und­an því að greiða skatta í stór­um stíl; svo nem­ur hundruð­um millj­óna króna. Skúffu­fé­lag á Má­ritíus sem stofn­að var fyr­ir milli­göngu ís­lensks lög­manns og fé­lag á Mars­hall-eyj­um, sem for­stjóri Sam­herja þver­tók fyr­ir að til­heyrði Sam­herja, eru í skotlínu skatts­ins.
Færeyskur ráðherra krafinn svara um Samherjarannsókn
FréttirSamherjaskjölin

Fær­eysk­ur ráð­herra kraf­inn svara um Sam­herj­a­rann­sókn

Högni Hoy­dal, formað­ur Þjóð­veld­is­flokks­ins fær­eyska, hef­ur í fær­eyska þing­inu ósk­að eft­ir svör­um við því hvað líði rann­sókn lög­reglu á meint­um skatta­laga­brot­um Sam­herja í Fær­eyj­um. Sam­herji end­ur­greiddi 340 millj­ón­ir króna til fær­eyska Skatts­ins, sem vís­aði mál­inu til lög­reglu. Síð­an hef­ur lít­ið af því frést.
Félag Samherja sem átti útgerðina í Namibíu seldi kvóta sinn á Íslandi
FréttirSamherjamálið

Fé­lag Sam­herja sem átti út­gerð­ina í Namib­íu seldi kvóta sinn á Ís­landi

Eign­ar­halds­fé­lag­ið sem Sam­herji not­aði til að halda ut­an um rekst­ur sinn í Namib­íu seldi fisk­veiðikvóta sinn á Ís­landi til ís­lensks dótt­ur­fé­lags Sam­herja ár­ið 2020. Þetta fyr­ir­tæki, Sæ­ból fjár­fest­ing­ar­fé­lag, var í 28. sæti yf­ir stærstu kvóta­eig­end­ur á Ís­landi um vor­ið 2019. Í árs­reikn­ingi fé­lags­ins kem­ur fram hvernig reynt hef­ur ver­ið að skera á tengsl þess við Ís­land í kjöl­far Namib­íu­máls­ins.

Mest lesið

„Mér hefur ekki verið nauðgað“
2
Fréttir

„Mér hef­ur ekki ver­ið nauðg­að“

„... þó að fjór­ar rík­is­stjórn­ir hafi geng­ið úr skugga um að flokka, bæla nið­ur og jafn­vel þurrka út eig­in­lega öll mest af­ger­andi sönn­un­ar­gögn­in tókst þeim ekki að halda lok­inu á sam­ráði og mis­ferli sínu,“ skrif­ar pró­fess­or Nils Melzer sem rann­sak­aði mál Ju­li­an Assange sem sér­stak­ur skýrslu­gjafi fyr­ir Sam­ein­uðu þjóð­irn­ar. Skýrsl­an kom út sem bók.
Örlæti Haraldar kostar ríkissjóð yfir hálfan milljarð
3
Afhjúpun

Ör­læti Har­ald­ar kost­ar rík­is­sjóð yf­ir hálf­an millj­arð

Rík­is­sjóð­ur sit­ur uppi með yf­ir 500 millj­óna króna reikn­ing eft­ir að Har­ald­ur Johann­essen, fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri, hækk­aði líf­eyr­is­rétt­indi út­val­inna und­ir­manna sinna um helm­ing, án þess að hafa til þess heim­ild. Þetta er nið­ur­staða meiri­hluta Hæsta­rétt­ar sem kall­ar verk Har­ald­ar „ör­læt­is­gjörn­ing“. Stór hluti þess­ara und­ir­manna Har­ald­ar skrif­aði und­ir op­in­bera stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við hann stuttu síð­ar. Samn­ing­arn­ir standa samt því und­ir­menn­irn­ir vissu ekki bet­ur en að Har­ald­ur mætti gera þá. Um­mæli tveggja ráð­herra hafi styrkt þá trú þeirra.
Þórður Snær Júlíusson
4
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Dýr­asta kosn­ingalof­orð Ís­lands­sög­unn­ar

Ár­ið 2003 lof­aði Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 90 pró­sent lán­um til hús­næð­is­kaupa svo börn gætu flutt úr for­eldra­hús­um. Rík­is­ábyrgð var á fjár­mögn­un lán­anna. Nú, tveim­ur ára­tug­um síð­ar, stend­ur rík­is­sjóð­ur frammi fyr­ir því að vera að tapa að nokkr­um millj­örð­um króna á mán­uði vegna þess­ara lof­orða og það hef­ur aldrei ver­ið erf­ið­ara fyr­ir ungt fólk að kom­ast í eig­ið hús­næði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
2
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.
Var dæmdur til dauða fyrir hryðjuverk
5
ViðtalÚkraínustríðið

Var dæmd­ur til dauða fyr­ir hryðju­verk

Bret­inn Shaun Pinner var ný­kom­inn úr löngu sam­bandi og fann fyr­ir lífs­kreppu sem marg­ir á miðj­um aldri upp­lifa. Hans lausn við henni var að fara til Úkraínu og þjálfa her­menn. Pinner var hand­tek­inn, stung­inn og pynt­að­ur af Rúss­um en var svo hluti af stór­um fanga­skipt­um sem áttu sér stað milli stríð­andi fylk­inga í sept­em­ber 2022. Ósk­ar Hall­gríms­son ræddi við Pinner.
„Það er svo ótrúlega helvíti erfitt að fara frá honum“
7
Viðtal

„Það er svo ótrú­lega hel­víti erfitt að fara frá hon­um“

Krist­inn Hrafns­son ræð­ir stöð­una á mál­um Ju­li­an Assange en um­ræð­an byrj­aði að breyt­ast eft­ir að Nils Melzer, þá­ver­andi skýrslu­gjafi Sam­ein­uðu þjóð­anna, gaf út á bók ár­ið 2022 og lagði áherslu á að eng­inn hef­ur axl­að ábyrgð á stríðs­glæp­um þeim sem Wiki­Leaks af­hjúp­aði á með­an Ju­li­an sæt­ir pynt­ing­um og yf­ir­völd fjög­urra landa hafa marg­brot­ið á hon­um. Bók­in hef­ur haft áhrif, jafn­vel á Joe Biden og Olaf Sholz.
Segir íslenskt kórastarf geta stuðlað að aukinni inngildingu
8
FréttirForsetakosningar 2024

Seg­ir ís­lenskt kór­astarf geta stuðl­að að auk­inni inn­gild­ingu

Halla Hrund Loga­dótt­ir vill hvetja út­lend­inga til að „læra tungu­mál­ið okk­ar í gegn­um söng og ís­lensk­una.“ Halla Hrund seg­ir að við þurf­um að vera að­eins meira skap­andi í því hvernig við nálg­umst við­fangs­efni inn­flytj­enda. Hún var með­al for­setafram­bjóð­enda sem mættu í pall­borð­sum­ræð­ur í síð­asta þætti Pressu.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
ViðtalFatlað fólk beitt nauðung

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
3
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
8
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
9
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu