Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 8 árum.

Plain Vanilla: Eftirsóttasti vinnustaður landsins logar í deilum

Starfs­fólk Plain Vanilla íhug­ar stöðu sína eft­ir að til­von­andi trún­að­ar­manni var sagt upp störf­um viku fyr­ir kosn­ing­ar. Heim­ild­ir herma að sum­ir starfs­menn séu að leita sér að nýrri vinnu. Sam­kvæmt bréfi til­von­andi trún­að­ar­manns eru starfs­menn hrædd­ir við rekstr­ar­stjóra.

Plain Vanilla: Eftirsóttasti vinnustaður landsins logar í deilum

Mikil ólga er nú meðal starfsmanna Plain Vanilla, framleiðanda spurningaleiksins QuizUp. Þrátt fyrir að tæplega hundrað manns vinni hjá fyrirtækinu, sem hefur vaxið ört síðustu misseri, er þar enginn starfandi trúnaðarmaður. Í stað trúnaðarmanns hangir tafla upp á vegg á skrifstofunni, þar sem ætlast er til að starfsmenn komi athugasemdum á framfæri, sem annars færu til trúnaðarmanns.

Starfsmenn hafa ekki verið sáttir við þetta fyrirkomulag. Hefur verið vaxandi þrýstingur innan félagsins að kosinn sé trúnaðarmaður innan þess, eins og kveðið er á um í lögum og kjarasamningum. Sá starfsmaður sem hvað harðast hafði gengið fram í þeirri kröfu, og var kominn með nægan stuðning til þess að hljóta kjör, var svo rekinn, viku áður en kosningin fór fram. Hann sendi bréf til Þorsteins Friðrikssonar, forstjóra fyrirtækisins, þar sem hann útlistar vandamál félagsins.

Reglulega birtast fréttir þar sem Plain Vanilla er málað sem einn eftirsóttasti vinnustaður á landinu. Vísir birti í fyrra frétt þar sem greint var frá því að kokkur frá Argentínu eldaði hádegismat, Nútíminn birti matseðilinn og Viðskiptablaðið greindi frá því að starfsmenn fengju vörur frá Apple.

Stundin náði tali af Þorsteini Friðrikssyni, forstjóra fyrirtækisins, þar hann var staddur í San Francisco um miðja nótt á staðartíma. Hann sagði fyrst að hann kannaðist ekkert við ólgu á meðal starfsmanna en þegar bréf trúnaðarmannsins var borið undir hann kaus hann að tjá sig ekki um málið. Ekki náðist í Gunnar Hólmstein Guðmundsson, rekstrarstjóra félagsins, við vinnslu fréttar.

Uppfært kl. 16:20Starfsmaðurinn sem var rekinn á dögunum hafði samband við Stundina og vildi að það kæmi skýrt fram að hann hafi ekki afhent Stundinni tölvupóst sinn til Þorsteins. Stundin hafði samband við manninn við vinnslu fréttar og vildi hann þá ekki tjá sig opinberlega um málið. 

Tússtafla í stað trúnaðarmanns

Umræddur fyrrverandi starfsmaður sendi Þorsteini Friðrikssyni, forstjóra fyrirtækisins, langt bréf í kjölfar brottrekstursins. Í bréfinu, sem Stundin hefur undir höndum, kemur fram að undanfarið hafi starfsmannamál félagsins verið í lamasessi. Líkt og hefur komið fram er enginn trúnaðarmaður en í stað hans kemur tússtafla í almennu rými þar sem starfsmenn eiga að skrifa niður áhyggjur sínar. Samkvæmt bréfi tilvonandi trúnaðarmanns var spurt á töflunni hvers vegna enginn trúnaðarmaður væri á vinnustaðnum. Þeirri spurningu á Gunnar Hólmsteinn Guðmundsson, rekstrarstjóri félagsins, að hafa svarað á þann veg að slíkt væri ónauðsynlegt þar sem allir væru duglegir að ræða málin á persónulegum og tilfinningalegum nótum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjaramál

Stefán Ólafsson um nýja kjarasamninga: „það er veðmál í þessu“
Fréttir

Stefán Ólafs­son um nýja kjara­samn­inga: „það er veð­mál í þessu“

Í sextánda þætti Pressu mættu Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dótt­ir, að­stoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Sam­taka at­vinnu­lífs­ins, og Stefán Ólafs­son, sér­fræð­ing­ur hjá Efl­ingu – stétt­ar­fé­lagi, til þess að ræða nýju kjara­samn­ing­anna. Í við­tal­inu við­ur­kenndi Stefán að samn­ing­ur­inn væri í raun nokk­urs kon­ar veð­mál, þar sem von­ir væru bundn­ar við hjöðn­un verð­bólgu til þess að skila launa­fólki ásætt­an­leg­um kjara­bót­um.
Samtök atvinnulífsins kjósa um verkbann á félagsmenn VR
FréttirKjaramál

Sam­tök at­vinnu­lífs­ins kjósa um verk­bann á fé­lags­menn VR

Stjórn Sam­taka at­vinnu­lífs­ins hef­ur sam­þykkt ein­róma að halda at­kvæða­greiðslu um hugs­an­legt verk­bann á fé­lags­menn VR. Í til­kynn­ingu frá Sam­tök­um at­vinnu­lífs­ins sem birt­ist fyr­ir skömmu seg­ir að verði verk­bann­ið sam­þykkt mun það ná til alls skrif­stofu­fólks með að­ild að VR. Um er ræða við­bragð við verk­falls­að­gerð­um sem VR hef­ur boð­að með­al starfs­manna í farg­þega- og hleðslu­þjón­ustu hjá Icelanda­ir
Ókeypis skólamáltíðir í Reykjavík munu kosta 1,7 milljarð króna á ári
FréttirKjaramál

Ókeyp­is skóla­mál­tíð­ir í Reykja­vík munu kosta 1,7 millj­arð króna á ári

Eitt um­fangs­mesta verk­efn­ið sem fólg­ið er í að­gerðapakka rík­is­ins og sveit­ar­fé­laga til að liðka fyr­ir gerð kjara­samn­inga, er að tryggja gjald­frjáls­ar skóla­mál­tíð­ir í grunn­skól­um. Tals­mað­ur Sam­bands ís­lenskra sveit­ar­fé­laga seg­ir að öll börn, óháð því hvort þau voru skráð í mat fyr­ir breyt­ing­arn­ar muni fá frí­ar skóla­mál­tíð­ir. Ekki ligg­ur fyr­ir hvernig verk­efn­ið verð­ur út­fært í skól­um sem hafa út­vistað mat­ar­þjón­ustu sinni.
Samninganefnd VR samþykkir atkvæðagreiðslu um verkfall
FréttirKjaramál

Samn­inga­nefnd VR sam­þykk­ir at­kvæða­greiðslu um verk­fall

Samn­inga­nefnd VR sam­þykkti í gær að halda at­kvæða­greiðslu um verk­föll með­al flug­vall­ar­starfs­manna sem starfa á Kefla­vík­ur­flug­velli. Um er að ræða um 150 starfs­menn sem starfa all­ir fyr­ir Icelanda­ir og sinna með­al ann­ars inn­rit­un, tösku­mót­töku, brott­för­um og þjón­ustu vegna týnds far­ang­urs. At­kvæða­greiðsl­an fer fram á mánu­dag­inn eft­ir helgi og verði vinnu­stöðv­un sam­þykkt er gert ráð fyr­ir að verk­föll hefj­ist 22. mars.
Tæplega helmingur launafólks á í fjárhagslegum erfiðleikum
FréttirKjaramál

Tæp­lega helm­ing­ur launa­fólks á í fjár­hags­leg­um erf­ið­leik­um

Sam­kvæmt nýrri könn­un Vörðu – Rann­sókn­ar­stofn­un­ar vinnu­mark­að­ar­ins á 40 pró­sent launa­fólks erfitt með að ná end­um sam­an. Skýrsl­an, sem kynnt var á fundi í Þjóð­menn­ing­ar­hús­inu í dag, leið­ir ljós að kjör til­tek­inna hópa sam­fé­lags­ins hafi versn­að um­tals­vert milli ára. Tæp­lega fjórð­ung­ur ein­hleypra for­eldra býr við efn­is­leg­an skort og fjár­hags­staða kvenna er verri en á karla á öll­um heild­ar­mæli­kvörð­um rann­sókn­ar­inn­ar. Þá mæl­ist staða inn­flytj­enda verri í sam­an­burði við inn­fædda Ís­lend­inga fjórða ár­ið í röð.

Mest lesið

„Mér hefur ekki verið nauðgað“
1
Fréttir

„Mér hef­ur ekki ver­ið nauðg­að“

„... þó að fjór­ar rík­is­stjórn­ir hafi geng­ið úr skugga um að flokka, bæla nið­ur og jafn­vel þurrka út eig­in­lega öll mest af­ger­andi sönn­un­ar­gögn­in tókst þeim ekki að halda lok­inu á sam­ráði og mis­ferli sínu,“ skrif­ar pró­fess­or Nils Melzer sem rann­sak­aði mál Ju­li­an Assange sem sér­stak­ur skýrslu­gjafi fyr­ir Sam­ein­uðu þjóð­irn­ar. Skýrsl­an kom út sem bók.
Halla Tómasdóttir
10
Aðsent

Halla Tómasdóttir

Með mennsk­una að leið­ar­ljósi

„Ég hvet ís­lensk fyr­ir­tæki til að velta fyr­ir sér hvernig þau geti lagst á ár­ar um að gefa fólki til­gang og tæki­færi, þeim og sam­fé­lag­inu til góðs,“ skrif­ar Halla Tóm­as­dótt­ir, for­setafram­bjóð­andi. Hún skrif­ar stutt­lega um sögu Hamdi Ulukaya sem er tyrk­nesk­ur smali sem flúði til Banda­ríkj­anna til að læra ensku. Hann stofn­aði stór fyr­ir­tæk­ið Chobani sem er í dag stærsti fram­leið­andi grísks jóg­úrts í Banda­ríkj­un­um og hvernig hann. Þar ræð­ur hann helst inn inn­flytj­end­ur og flótta­fólk til vinnu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
1
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
3
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.
Þórður Snær Júlíusson
8
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Elsku ráð­herr­ar, hætt­ið að gefa Ís­land

Nú stend­ur til að gefa norsk­um lax­eld­is­fyr­ir­tækj­um ís­lenska firði til eign­ar. Þeg­ar er bú­ið að gefa ör­fá­um út­gerð­ar­fjöl­skyld­um hundruð millj­arða króna hið minnsta af fé sem ætti að hafa far­ið í sam­fé­lags­lega upp­bygg­ingu. Vilji er til þess að gefa einka­að­il­um vindorku en eng­inn vilji til þess að rukka ferða­þjón­ustu fyr­ir nýt­ingu á al­manna­g­æð­um. Hvað geng­ur ís­lensk­um ráða­mönn­um eig­in­lega til?
Var dæmdur til dauða fyrir hryðjuverk
9
ViðtalÚkraínustríðið

Var dæmd­ur til dauða fyr­ir hryðju­verk

Bret­inn Shaun Pinner var ný­kom­inn úr löngu sam­bandi og fann fyr­ir lífs­kreppu sem marg­ir á miðj­um aldri upp­lifa. Hans lausn við henni var að fara til Úkraínu og þjálfa her­menn. Pinner var hand­tek­inn, stung­inn og pynt­að­ur af Rúss­um en var svo hluti af stór­um fanga­skipt­um sem áttu sér stað milli stríð­andi fylk­inga í sept­em­ber 2022. Ósk­ar Hall­gríms­son ræddi við Pinner.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
ViðtalFatlað fólk beitt nauðung

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
3
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
8
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
9
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár