Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra afsalaði sér íbúð sinni á Ránargötu til eignarhaldsfélags stjórnarformanns jarðvarmafyrirtækisins Orku Energy í fyrra. Þetta kemur fram í afsali um viðskiptin fra því þann 23. júní í fyrra. Eignarhaldsfélagið sem eignaðist íbúðina heitir OG Capital en Illugi var jafnframt áður 100 prósent eigandi, prókúruhafi og stjórnarmaður í því félagi. Illugi var orðinn menntamálaráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins þegar viðskiptin áttu sér stað.
Í afsalinu segir: „Brynhildur Einarsdóttir [...] og Illugi Gunnarsson [...], Ránargötu 6a, 101 RVK, afsala neðangreindri eign til OG Capital ehf. [...] til fullrar eignar og umráða. Afsöluð eign er að Ránargötu 6a, 101 RVk.“ Illugi leigir svo íbúðina af eignarhaldsfélaginu.
Íbúðin var talsvert veðsett þegar eignarhaldsfélag stjórnarformannsins, Hauks Harðarsonar, keypti hana en samkvæmt afsalinu hvíldu þá á henni 55 milljónir króna. Fasteignamat íbúðarinnar var hins vegar 39,5 milljónir króna. OG Capital yfirtók þær áhvílandi skuldbindingar sem voru á íbúðinni, samkvæmt afsalinu, en ekkert kaupverð er annars tekið fram í því.
Athugasemdir