Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 5 árum.

Seðlabankinn heldur leynd yfir rannsóknargögnunum í Samherjamálinu

Seðla­banki Ís­lands ber fyr­ir sig ákvæði um þagn­ar­skyldu í Sam­herja­mál­inu. Bank­inn af­hend­ir ekki gögn­in sem varp­að geta ljósi á af hverju rann­sókn­in á Sam­herja hófst.

Seðlabankinn heldur leynd yfir rannsóknargögnunum í Samherjamálinu
Leynd ríkir um forsendur Samherjamálsins Seðlabanki Íslands hefur ekki viljað afhenda gögnin sem rannsóknin á Samherja byggir á. Mynd: Pressphotoz

Seðlabanki Íslands vill ekki afhenda Stundinni gögnin sem rannsókn bankans á útgerðarfélaginu Samherja byggir á og vísar til þagnarskyldu starfsmanna bankans um málið.

Í síðasta tölublaði fjallaði Stundin um eitt af þeim gögnum sem rannsóknin á meintum brotum Samherja á lögum um gjaldeyrismál byggði á en í því komu fram hugmyndir um hvernig Samherji gæti notast við félög á lágskattasvæðum til að lækka skiptahlut sjómanna í erlendri starfsemi Samherja og til að stýra því hvar hagnaðurinn af veiðum félagsins myndaðist.  Þetta gagn, tölvupóstur frá syni Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, er hins vegar aðeins eitt af fjölmörgum gögnum sem rannsóknin byggði á. Þorsteinn Már Baldvinsson sagði við Stundina að einungis hafi verið um að ræða hugmyndir sem settar voru fram í viðkomandi tölvupósti og að þær hafi aldrei verið framkvæmdar.  

Eins og margoft hefur komið fram opinberlega sendi Seðlabanki Íslands kæru til sérstaks saksóknara út af meintum lögbrotum Samherja en embættið vísaði kærunni síðar frá. Dómstólar hafa einnig dæmt sektargreiðslu sem Seðlabanki Íslands lagði á Samherja sem ólöglega. Þorsteinn Már hefur sagt að hann telji að Samheri hafi unnið „fullnaðarsigur“ í málinu. Gögnin í málinu, það er að segja nákvæmlega á hvaða forsendum Seðlabanki Íslands taldi að ákæruvaldið þyrfti að rannsaka málið, hafa hins vegar aldrei verið gerð opinber. 

Segir Má vera með þráhyggjuÞorsteinn Már Baldvinsson gagnrýndi bréf Más og sagði hann haldinn „sjúklegri þráhyggju“.

Telur úrskurð dómara þurfa að liggja fyrir

Seðlabanki Íslands hafnaði beiðni Stundarinnar um Samherjagögnin með tölvupósti sem sendur var þann 18. febrúar.

Orðrétt sagði í svarinu: „Rík þagnarskylda hvílir á starfsmönnum Seðlabanka Íslands um allt það sem varðar hagi viðskiptamanna bankans og málefni bankans sjálfs, svo og um önnur atriði sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum eða eðli máls, nema dómari úrskurði að upplýsingar sé skylt að veita fyrir dómi eða til lögreglu eða skylt sé að veita upplýsingar lögum samkvæmt, sbr. nánar 1. mgr. 35. gr. laga nr. 36/2001 um Seðlabanka Íslands, sbr. einnig 15. gr. gjaldeyrislaga nr. 87/1992. Upplýsingar þær sem þú óskar eftir eru þess eðlis að þær varða málefni bankans og teljast því ekki til opinberra upplýsinga. Slíkar upplýsingar eru háðar þagnarskyldu nema úrskurður dómara eða lagaboð geri bankanum skylt að láta þær af hendi. Með hliðsjón af þessu er beiðni þinni um afhendingu umræddra upplýsinga hafnað.“

„Það liggur fyrir að héraðsdómur taldi að sérstakur saksóknari hafi ekki litið svo á að málatilbúnaður Seðlabankans hafi verið tilhæfulaus.“

Már ekki mótfallinn birtingu gagna

Eftir að Seðlabanki Íslands hafnaði beiðni Stundarinnar og eftir að fjallað var um eitt gagnanna í Samherjamálinu í blaðinu, birti Seðlabanki Íslands bréf frá Má Guðmundssyni seðlabankastjóra til Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra þar sem fram kemur að Már sé ekki mótfallinn því að gögnin í Samherjamálinu verði gerð opinber. Þetta bréf sendi Már til Katrínar í lok janúar en það var ekki gert opinbert fyrr en í lok febrúar

Í bréfinu sagði Már orðrétt: „Ég hefði reyndar ekkert á móti því að öll gögn málsins yrðu gerð opinber. Það verður hins vegar ekki gert nema að fengnu samþykki Samherja og það yrði að stroka yfir upplýsingar sem koma fram um þriðju aðila.“

Af þeim ástæðum sem Már rekur þarna er því ljóst af hverju Seðlabanki Íslands má ekki veita Stundinni aðgang að rannsóknargögnunum í málinu.

Í bréfi sínu útskýrði Már einnig að líta þyrfti til heildarsamhengis Samherjamálsins og að ljóst væri að embætti sérstaks saksóknara hafi ekki talið að kæra bankans gegn Samherja hafi verið tilefnislaus: „Það liggur fyrir að héraðsdómur taldi að sérstakur saksóknari hafi ekki litið svo á að málatilbúnaður Seðlabankans hafi verið tilhæfulaus. Í niðurstöðu dómsins er sagt að embætti sérstaks saksóknara hafi ekki talið efni til að vísa kærunni frá á grundvelli laga um meðferð sakamála og að af því mætti ráða að það væri ekki mat sérstaks saksóknara að efnisatriði kærunnar væru á engum rökum reist. Sérstakur saksóknari hafði málið til rannsóknar í um það bil tvö ár eftir að seinni kæran var send. Það hefði hann varla gert ef hann hefði talið málið tilhæfulaust,“ sagði Már í bréfinu.

Már sagði svo enn frekar að þagnarskyldan sem hvílir á Seðlabankanum í málinu geri það að verkum að bankinn geti ekki greint frá forsendum rannsóknarinnar, meðal annars gögnum eins og áðurnefndum tölvupósti frá syni Þorsteins Más: „Eftirlitsstofnanir, lögregla og saksóknarar verða oft fyrir gagnrýni á opinberum vettvangi af hálfu þeirra sem aðgerðir þeirra beinast að. Þá spyrja fjölmiðlar stundum út í slík mál og krefjast upplýsinga og skýringa. Eðlileg þagnarskylda gerir það hins vegar að verkum að það er oft ekki hægt og er þá viðtekið svar að viðkomandi geti ekki tjáð sig um einstök mál. Þetta á einnig við um Seðlabankann þegar kemur að málum einstakra aðila varðandi gjaldeyrislög, hvort sem það er eftirlit, undanþágur eða rannsóknir.“

Þorsteinn Már Baldvinsson sagði við Viðskiptablaðið í síðustu viku að þetta bréf Más væri „sprengja“ og að hann væri greinilega haldinn „sjúklegri þráhyggju“. 

Stundin mun kæra þá niðurstöðu Seðlabanka Íslands að veita blaðinu ekki aðgang að gögnum í Samherjamálinu til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Þar til umrædd gögn verða gerð opinber er ómögulegt að meta þær forsendur sem Seðlabanki Íslands hafði til að byggja á þegar stofnunin kærði Samherja til sérstaks saksóknara. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Davíð kallar borgarstjórn bjálfa fyrir að taka niður styttuna af Séra Friðriki
3
FréttirSr. Friðrik og drengirnir

Dav­íð kall­ar borg­ar­stjórn bjálfa fyr­ir að taka nið­ur stytt­una af Séra Frið­riki

Rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins seg­ir upp­lýs­ing­ar um að Séra Frið­rik Frið­riks­son, stofn­andi KFUM, hafi beitt fjöl­marga drengi kyn­ferð­is­legu áreiti og of­beldi vera „get­gát­ur eins manns“ eft­ir að „ímynd­un­ar­afl hans fór loks í gang eft­ir tæp 75 ár.“ Það að stytta af hon­um hafi ver­ið fjar­lægð sé merki um of­stæki þeirra sem noti hvert tæki­færi til að þykj­ast betra og pen­inga­laus­ara en ann­að fólk.
Steinunn Ólína segist ekki bjóða sig fram gegn Katrínu vegna persónulegrar óvildar
5
Fréttir

Stein­unn Ólína seg­ist ekki bjóða sig fram gegn Katrínu vegna per­sónu­legr­ar óvild­ar

Stein­unn Ólína Þor­steins­dótt­ir sagð­ist í Pressu fara fram fyr­ir hönd þeirra sem upp­lifa valda­leysi gagn­vart stjórn­völd­um. Taldi hún for­seta­kosn­ing­arn­ar vera af­ar póli­tísk­ar að þessu sinni. Þrátt fyr­ir gagn­rýni sína á rík­is­stjórn Katrín­ar Jak­obs­dótt­ur, ít­rek­aði Stein­unn að fram­boð henn­ar væri ekki vegna per­sónu­legra óvild­ar henn­ar í garð Katrínu.
Formaður Sameykis sakaður um ógnarstjórn
7
Skýring

Formað­ur Sam­eyk­is sak­að­ur um ógn­ar­stjórn

Skrif­stofa Sam­eyk­is hef­ur und­an­far­ið ver­ið að glíma við ósætti á vinnu­staðn­um og slæm­an vinnu­anda. Sam­kvæmt ný­legri út­tekt sem gerð var á vinnu­staðn­um bend­ir ým­is­legt til að vand­ann megi rekja til fram­komu og stjórn­un­ar­hátta for­manns Sam­eyk­is, Þór­ar­ins Eyfjörð. Sjálf­ur seg­ist hann hafa tek­ið til sín eitt­hvað af þeirri gagn­rýni sem bein­ist gegn hon­um og að vinna við að bæta and­rúms­loft­ið á skrif­stof­unni sé vel á veg kom­inn.
Katrín telur sig ekki þurfa að svara spurningum um laxeldisfrumvarp
8
FréttirLaxeldi

Katrín tel­ur sig ekki þurfa að svara spurn­ing­um um lax­eld­is­frum­varp

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­setafram­bjóð­andi og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra þar til fyr­ir tæp­um mán­uði síð­an, tel­ur sig ekki þurfa að svara spurn­ing­um um mál sem hún kom að á Al­þingi sem enn eru í vinnslu þar. Í fyrsta skipti er for­setafram­bjóð­andi í þeirri stöðu að þurfa mögu­lega að sam­þykkja eða synja lög­um sem við­kom­andi kom að á þingi sem ráð­herra.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Örlæti Haraldar kostar ríkissjóð yfir hálfan milljarð
5
Afhjúpun

Ör­læti Har­ald­ar kost­ar rík­is­sjóð yf­ir hálf­an millj­arð

Rík­is­sjóð­ur sit­ur uppi með yf­ir 500 millj­óna króna reikn­ing eft­ir að Har­ald­ur Johann­essen, fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri, hækk­aði líf­eyr­is­rétt­indi út­val­inna und­ir­manna sinna um helm­ing, án þess að hafa til þess heim­ild. Þetta er nið­ur­staða meiri­hluta Hæsta­rétt­ar sem kall­ar verk Har­ald­ar „ör­læt­is­gjörn­ing“. Stór hluti þess­ara und­ir­manna Har­ald­ar skrif­aði und­ir op­in­bera stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við hann stuttu síð­ar. Samn­ing­arn­ir standa samt því und­ir­menn­irn­ir vissu ekki bet­ur en að Har­ald­ur mætti gera þá. Um­mæli tveggja ráð­herra hafi styrkt þá trú þeirra.
Þórður Snær Júlíusson
9
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Dýr­asta kosn­ingalof­orð Ís­lands­sög­unn­ar

Ár­ið 2003 lof­aði Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 90 pró­sent lán­um til hús­næð­is­kaupa svo börn gætu flutt úr for­eldra­hús­um. Rík­is­ábyrgð var á fjár­mögn­un lán­anna. Nú, tveim­ur ára­tug­um síð­ar, stend­ur rík­is­sjóð­ur frammi fyr­ir því að vera að tapa að nokkr­um millj­örð­um króna á mán­uði vegna þess­ara lof­orða og það hef­ur aldrei ver­ið erf­ið­ara fyr­ir ungt fólk að kom­ast í eig­ið hús­næði.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
ViðtalFatlað fólk beitt nauðung

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
3
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
7
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
8
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár