Jón Baldvin svarar í Silfrinu: Sviðsett veisla, öfgahópur í stríði gegn réttarríkinu og sjúkt hugarfar
Fámennur hópur öfgamanna hefur sagt réttarríkinu stríð á hendur, að sögn Jóns Baldvins Hannibalssonar, sem svaraði fyrir ásakanir þrettán kvenna á hendur honum um kynferðislega áreitni í viðtali í Silfrinu. Hann segir veislu hafa verið sviðsetta á þaki húss til þess að styðja málstað dóttur hans, sem hann segir glíma við „óra úr sjúku hugarfari“.
Maðurinn sem plokkaði Samherjamerkið af vinnufötunum sínum: „Það átti bara að vera til ein skoðun“
Guðmundur Már Beck, fyrrum starfsmaður Samherja, segir sér hafa liðið mjög illa eftir að hafa fylgst með fréttaflutningi af framferði Samherja í Namibíu, svo illa að hann lýsir því sem áfalli.
2
FréttirHeimavígi Samherja
43337
Samherji notaði sex milljarða frá Kýpur og Afríku til að kaupa kvóta og fiskvinnslu á Akureyri
Stórfelldar lánveitingar Samherja frá Kýpur til félaga á Akureyri sína hvernig peningarnir komast til Íslands frá fiskmiðunum í Afríku sem Samherji hefur hagnast svo vel á.
3
ViðtalHeimavígi Samherja
17126
Samherji og líkindin við Kaupfélagið: Fólk óttast að tjá sig
Kvikmyndagerðarmaðurinn Grímur Hákonarson kynntist starfsháttum Kaupfélags Skagfirðinga í gegnum bæjarbúa þegar hann dvaldi þar í mánuð við rannsóknir fyrir kvikmyndina Héraðið.
4
Myndband
1
„Fólk óttast að tjá sig“
Kvikmyndagerðarmaðurinn Grímur Hákonarson kynntist starfsháttum Kaupfélags Skagfirðinga í gegnum bæjarbúa þegar hann dvaldi þar í mánuð við rannsóknir fyrir kvikmyndina Héraðið.
5
Fréttir
1531
Teatime í þrot og segir upp 16 manns
Tekjur af tölvuleik tæknifyrirtækisins dugðu ekki til. Viðræður um sölu á fyrirtækinu eða aukið fjármagn báru ekki árangur.
6
Aðsent
18231
Margrét Sölvadóttir
„Yngri eldri borgarar“
Hvers vegna er manneskja sem verður 67 ára skyndilega sett í flokk með öryrkjum og fólki á hjúkrunarheimilum og svo rænd tækifærum í lífinu? Margrét Sölvadóttir skrifar á móti fordómum gegn yngri eldri borgurum.
7
FréttirSkjálftahrina á Reykjanesi
126
Óttast stóran Brennisteinsfjallaskjálfta í kjölfar skjálftahrinunnar
Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvöktunar á Veðurstofu Íslands, varar við því að enn stærri skjálfti, yfir 6, gæti komið í kjölfarið á skjálftahrinunni á Reykjanesi.
Prentútgáfa Stundarinnar kemur næst út þann 12. mars.
Mynd: RÚV
„Ég er hér á sakamannabekk hjá þér og reyna að bera af mér sakir og reyna að bera á borð staðreyndir um mín mál,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra, í viðtali við Silfrið í morgun, þar sem hann svaraði fyrir ásakanir þrettán kvenna um kynferðislega áreitni hans í þeirra garð.
Skýringar Jóns Baldvins á atvikunum spanna allt frá geðveiki dóttur hans, til stríðs fámenns öfgahóps gegn íslenska réttarríkinu, ásamt því sem hann segir að veisla á þaki hafi verið „sviðsett“ til þess að koma á hann höggi. Loks setur hann nektarsund hans sem kennara í dimmisjónferð með menntaskólanemum í samhengi við ákvörðun Seðlabanka Íslands að fjarlægja málverk af nöktum konum úr skrifstofum yfirmanna bankans.
Jón Baldvin gagnrýndi ítrekað Fanneyju Birnu Jónsdóttur þáttarstjórnanda í viðtalinu. „Hvar eru ykkar siðareglur?“ spurði hann.
Hann sakaði hana um að hafa ekki kynnt sér málin til hlítar, meðal annars um skilyrði þess að fá framgengt nauðungarvistun vegna andlegra veikinda, en það liggur fyrir að Jón Baldin fór fram á nauðgunarvistun Aldísar dóttur sinnar með beiðni á bréfsefni sendiráðs Íslands í Washington, sem skilgreind var „aðstoð við erlent sendiráð“.
Beðist oft afsökunar
Eitt atvikanna, sem komst í hámæli árið 2012, sneri að því að Jón Baldvin sendi bréf á unglingsstúlku, frænku eiginkonu sinnar, þar sem fram komu erótískar lýsingar, meðal annars á kynlífi hans með eiginkonu hans. Þá bað hann um að koma í heimsókn til stúlkunnar, sem þá var 16 til 17 ára gömul.
Stúlkan, Guðrún Harðardóttir, segir bréfaskriftirnar hafa hafist þegar hún var tíu ára gömul og að Jón Baldvin hafi áður en yfir lauk beðið hana að halda þeim leyndum. Einnig hafi hann snert hana óþægilega mikið og meðal annars reynt að kyssa hana.
„Það er ekki samasem kynferðislegt afbrot að setja sólarolíu á barnskropp í viðurvist ömmu og móður.“
„Það er ekki samasem kynferðislegt afbrot að setja sólarolíu á barnskropp í viðurvist ömmu og móður. Þetta eru náttúrlega ekki alvöru sakargiftir og það þýðir ekkert að halda því fram,“ sagði Jón Baldvin í Silfrinu.
Spurður hvort hann teldi að bréfasendingarnar hefðu „ekki verið alvarlegar“ svaraði Jón Baldvin: „Þessi spurning er óþörf. Vegna þess að um leið og ég áttaði mig á þessum dómgreindarbresti um leið, ég var ekkert að fela neitt eða færast undan. Ég hef beðist afsökunar, ég hef beðist fyrirgefningar. Ég skrifaði þegar í stað afsökunarbréf til Guðrúnar. Í því bréfi kemur reyndar fram staðreynd málsins, nefnilega ég segi, ég held að ég muni þetta orðrétt, ég veit að þú veist að ég hef aldrei snert þig, þvingað þig til neinnar kynferðislegra afnota,“ sagði Jón Baldvin.
Hann sagðist ítrekað hafa beðist afsökunar og reynt að gera yfirbót fyrir þessi „ósæmilegu“ skrif, án þess að hafa fengið viðbrögð.
„Það er aðeins eitt bréf sem sætti kæru. Ég er að tala um þau bréf frá árinu 2001 sem Guðrún Harðardóttir fékk til Venesúela. Ef þú hefur kynnt þér málið þá veistu það, að málið snerist um eitt bréf. Ég hef beðist afsökunar á því. Ég hef beðist fyrirgefningar. Ég hef leitað sátta. Ég hef skrifað, ekki bara Guðrúnu sjálfri heldur fjölskyldunni. Ég hef boðist til þess að mæta sálfræðingum, félagsráðgjöfum, hverjum sem einum. Ég hef gert allt sem ég hef mögulega getað til þess að bæta fyrir það.“
Kvaðst Jón Baldvin hafa verið níu klukkustundir á flugvelli við bjórnleyslu þegar hann skrifaði bréfið til Guðrúnar, um bók eftir „afburðarhöfund“.
Áfengisneyslan sem væri „skýring en ekki afsökun“.
Þrettán konur sögðu frá
Málin sem umræðir snúa að frásögnum þrettán kvenna, sem hafa nú sagt sögu sína, og þar af sjö undir nafni. Ein þeirra er dóttir Jóns Baldvins, Aldís.
Hann segir eitt einkenni geðrænna veikinda vera „þráhyggja sem snýst um kynlíf og kynmök.“ Hann segir hana glíma við sjúkt hugarfar. „Aldís hefur aldrei kært neitt, þrátt fyrir það að hún hafi borið mig þessum sökum. Þetta eru órar úr sjúku hugarfari.“
Spurður hvort allar konurnar væru haldnar sömu órum, svaraði Jón Baldvin. „Nei, leyfðu mér að tala. Ég á tvær dætur. Þegar þær heyrðu þetta kröfðust þær þess að Aldís bæðist fyrirgefningar. Það endaði með vinslitum milli systranna.“
Þá fullyrti Jón Baldvin að hann hefði undir höndum skriflega yfirlýsingu frá lögreglu um að lögregla hefði oft haft afskipti af dóttur hans, en aldrei fyrir hans atbeina. „Það er ósatt. Það er algjörlega ósatt. Það getur enginn einstaklingur, ef mér mislíkar það sem dóttir mín getur sagt, dettur þér í hug að ég geti bara sigað lögreglu á hana og fært hana í járnum inn á Landspítalann?“
Samkvæmt eldri löggjöf þurfti samþykki aðstandenda til að nauðungarvista einstaklinga á geðdeild, og sagði Jón Baldvin að dóttir sín hefði treyst sér einum til þess að veita þá heimild.
Strákanir voru naktir
Fjórar af frásögnum kvennana snúa að því þegar Jón Baldvin starfaði sem kennari í Hagaskóla í Reykjavík og sem skólameistari Menntaskólans á Ísafirði. Ein frásögnin snýr að því að Jón Baldvin hafi berað sig í ölvunarástandi og synt nakinn til kvenkyns nemenda í dimmisjón-ferð í Bolungarvík, auk þess að hafa elt þær og snert. „Ég hef haft samband við marga af nemendum og kennurum og það ber öllum saman um það að frásögnin þar er alger skrumskæling. Hefðin var sú að það var farið í sjóferð. Við þiggjum boð í heimahús hjá einum nemenda. Strákar henda sér í sundlaug, naktir, skýlulausir,“ segir hann. Einn af strákunum var hann sjálfur, og kveðst hann þá hafa „fengið skýlu til að hylja nekt sína“ þegar stúlkurnar komu. Jón Baldvin var um fertugt þegar atvikið átti sér stað. „Það er engin kynferðisleg áreitni. Þetta er ærsladagur, já. Það var neytt áfengis, já,“ lýsti Jón Baldvin yfir.
Hann setti hann atvikið í samhengi við ákvörðun Seðlabanka Íslands um að fjarlægja nektarmálverk af konum af skrifstofum yfirmanna, að „nekt er svona offensife að hún er fjarlægð af almannarými og sett inn í kjallara.“
Hvað varðar framkomu hans í garð kvenkyns nemenda í Hagaskóla, sagðist Jón Baldvin ekki vilja svara því, enda hafi hann ekki fundið nein gögn þess efnis að hann hefði verið kennari á viðkomandi sviði í Hagaskóla á téðum tímasetningum.
Sviðsett veisla á þaki í Andalúsíu
Nýjasta tilfellið þar sem kona kvartar undan kynferðislegri áreitni átti sér stað á Spáni í fyrra.
Carmen Jóhannsdóttir, 34 ára, og móðir hennar, vinkona Jóns Baldvins og Bryndísar, voru staddar í veislu á þaki heimilis hjónanna í Andalúsíu á Suður-Spáni, þegar þær sögðu að Jón Baldvin hefði tekið sig til við að þukla á Carmen. Ég horfði á þetta gerast,“ sagði móðir hennar, í samtali við Stundina.
„Veislan á þakinu var sviðsett“
Jón Baldvin afskrifaði hins vegar atvikið á þeim forsendum að hann hafi það vottfest frá Hugrúnu Jónsdóttur, sem einnig var viðstödd, að hún hefði ekki orðið vör við snertinguna. „Veislan á þakinu var sviðsett. Hún er ósönn. Ég meina það, að það getur ekki verið neitt annað að baki þessari heimsókn en að setja þetta á svið.“
Spurður hvers vegna móðirin ætti að koma í heimsókn til að „siga dóttur sinni“ á hann: „Það er ekki mitt að skýra það.“ Hann kveðst vera með bók um málið í undirbúningi.
Stríð „fámenns öfgahóps“ gegn réttarríkinu
Jón Baldvin sagði að margar konur gætu borið vitni um það að hann bæri virðingu fyrir konum og væri „óvenjuháttvís og tillitssamur“.
Hann segir að tilefnið til að „vekja upp“ frásagnir af framkomu hans hafi verið útgáfa nýrrar bókar hans. Nú hefur verið frestað útgáfu bókar um feril hans, Tæpitungulaust. Jón Baldvin segist hins vegar vera með aðra bók í vinnslu. „Á næstunni mun ég gefa út bók um þetta mál: Það heitir: „Vörn fyrir æru - Hvernig fámennur öfgahópur hefur sett réttarríkinu á Íslandi stríð á hendur“. Og ég lýsi hér með eftir útgefanda.“
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Stundin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Mest lesið
1
ViðtalHeimavígi Samherja
75373
Maðurinn sem plokkaði Samherjamerkið af vinnufötunum sínum: „Það átti bara að vera til ein skoðun“
Guðmundur Már Beck, fyrrum starfsmaður Samherja, segir sér hafa liðið mjög illa eftir að hafa fylgst með fréttaflutningi af framferði Samherja í Namibíu, svo illa að hann lýsir því sem áfalli.
2
FréttirHeimavígi Samherja
43337
Samherji notaði sex milljarða frá Kýpur og Afríku til að kaupa kvóta og fiskvinnslu á Akureyri
Stórfelldar lánveitingar Samherja frá Kýpur til félaga á Akureyri sína hvernig peningarnir komast til Íslands frá fiskmiðunum í Afríku sem Samherji hefur hagnast svo vel á.
3
ViðtalHeimavígi Samherja
17126
Samherji og líkindin við Kaupfélagið: Fólk óttast að tjá sig
Kvikmyndagerðarmaðurinn Grímur Hákonarson kynntist starfsháttum Kaupfélags Skagfirðinga í gegnum bæjarbúa þegar hann dvaldi þar í mánuð við rannsóknir fyrir kvikmyndina Héraðið.
4
Myndband
1
„Fólk óttast að tjá sig“
Kvikmyndagerðarmaðurinn Grímur Hákonarson kynntist starfsháttum Kaupfélags Skagfirðinga í gegnum bæjarbúa þegar hann dvaldi þar í mánuð við rannsóknir fyrir kvikmyndina Héraðið.
5
Fréttir
1531
Teatime í þrot og segir upp 16 manns
Tekjur af tölvuleik tæknifyrirtækisins dugðu ekki til. Viðræður um sölu á fyrirtækinu eða aukið fjármagn báru ekki árangur.
6
Aðsent
18231
Margrét Sölvadóttir
„Yngri eldri borgarar“
Hvers vegna er manneskja sem verður 67 ára skyndilega sett í flokk með öryrkjum og fólki á hjúkrunarheimilum og svo rænd tækifærum í lífinu? Margrét Sölvadóttir skrifar á móti fordómum gegn yngri eldri borgurum.
7
FréttirSkjálftahrina á Reykjanesi
126
Óttast stóran Brennisteinsfjallaskjálfta í kjölfar skjálftahrinunnar
Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvöktunar á Veðurstofu Íslands, varar við því að enn stærri skjálfti, yfir 6, gæti komið í kjölfarið á skjálftahrinunni á Reykjanesi.
Mest deilt
1
Fréttir
46405
Horfði á sjónvarpsfréttir og fann sig knúna til að hefja undirskriftasöfnun
„Stórslys“, sem er í uppsiglingu varðandi heilsu íslenskra kvenna, er hvatinn að undirskriftasöfnuninni „Stöðvum aðför að heilsu kvenna“. Aðdragandinn er að greining leghálssýna á að fara fram í Danmörku í stað Íslands. Erna Bjarnadóttir, forsprakki söfnunarinnar, segir vanta upp á virðingu við notendur krabbameinsskimana.
2
ViðtalHeimavígi Samherja
75369
Maðurinn sem plokkaði Samherjamerkið af vinnufötunum sínum: „Það átti bara að vera til ein skoðun“
Guðmundur Már Beck, fyrrum starfsmaður Samherja, segir sér hafa liðið mjög illa eftir að hafa fylgst með fréttaflutningi af framferði Samherja í Namibíu, svo illa að hann lýsir því sem áfalli.
3
FréttirHeimavígi Samherja
43337
Samherji notaði sex milljarða frá Kýpur og Afríku til að kaupa kvóta og fiskvinnslu á Akureyri
Stórfelldar lánveitingar Samherja frá Kýpur til félaga á Akureyri sína hvernig peningarnir komast til Íslands frá fiskmiðunum í Afríku sem Samherji hefur hagnast svo vel á.
4
FréttirSamherjaskjölin
50297
Þorsteinn Már: „Hafi greiðslur átt sér stað sem eru ólögmætar þá voru þær á ábyrgð Jóhannesar Stefánssonar“
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, heldur áfram að kenna Jóhannesi Stefánssyni einum um ætlaðar „óeðlilegar“ greiðslur í Namibíu. Samherji hefur aldrei útskýrt hvernig það gat gerst að mútugreiðslur frá Samherjafélögum til „hákarlanna“ svökölluðu héldu áfram í þrjú ár eftir að Jóhannes hætti hjá Samherja.
5
Fréttir
59290
Landsréttarmálið hefur kostað 141 milljón og enn bætist við
Ólögleg skipan dómara í landsrétt reynist kosrnaðarsöm. Kostnaður vegna settra dómara við Landsrétt vegur þyngst eða 73 milljónir króna. Kostnaður vegna málareksturs og dóms Mannréttindadómstóls Evrópu nam 45,5 milljónum króna
6
Aðsent
9231
Gabríela B. Ernudóttir og Sigrún Sif Jóelsdóttir
Er réttarkerfið í stakk búið til að gæta hagsmuna barna í forsjármálum?
Notkun matstækja sem skortir próffræðilegan áreiðanleika í forsjármálum hefur alvarlegar afleiðingar. Ekki er gerð nægileg krafa um sérþekkingu dómkvaddra matsmanna á ofbeldi og það slegið útaf borðinu svo niðurstaða dóms reynist barninu skaðleg.
7
Aðsent
18229
Margrét Sölvadóttir
„Yngri eldri borgarar“
Hvers vegna er manneskja sem verður 67 ára skyndilega sett í flokk með öryrkjum og fólki á hjúkrunarheimilum og svo rænd tækifærum í lífinu? Margrét Sölvadóttir skrifar á móti fordómum gegn yngri eldri borgurum.
Mest lesið í vikunni
1
Leiðari
71634
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
Heyrðist ekki í henni?
Skýr afstaða var tekin þegar fyrstu frásagnir bárust af harðræði á vistheimilunum Varpholti og Laugalandi. Forstjóri Barnaverndarstofu lýsti fullu trausti á hendur meðferðarfulltrúanum. Eftir sat stelpa furðu lostin, en hún lýsir því hvernig hún hafði áður, þá sautján ára gömul, safnað kjarki til að fara á fund forstjórans og greina frá slæmri reynslu af vistheimilinu.
2
Pistill
102816
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
Verðirnir og varðmenn þeirra
Það er undarlegt að athygli stjórnmálamanna eftir morðið í Rauðagerði skuli beinast að því hvort lögreglan þurfi ekki fleiri byssur. Margt bendir til að samstarf lögreglu við þekktan fíkniefnasala og trúnaðarleki af lögreglustöðinni sé undirrót morðsins. Af hverju vekur það ekki frekar spurningar?
3
Afhjúpun
56180
Siggi hakkari aftur af stað og kærður fyrir að falsa skjöl
Sigurður Þórðarson, öðru nafni Siggi hakkari, kemur nú að sex félögum og segir lögmaður undirskrift sína hafa verið falsaða til að sýna fram á 100 milljóna hlutafé í tveimur fasteignafélögum. Siggi hakkari hefur verið eitt af lykilvitnum í rannsókn FBI á WikiLeaks. Viðskiptafélagar segjast hafa verið blekktir, en að enginn hafi hlotið skaða af.
4
ViðtalHeimavígi Samherja
75369
Maðurinn sem plokkaði Samherjamerkið af vinnufötunum sínum: „Það átti bara að vera til ein skoðun“
Guðmundur Már Beck, fyrrum starfsmaður Samherja, segir sér hafa liðið mjög illa eftir að hafa fylgst með fréttaflutningi af framferði Samherja í Namibíu, svo illa að hann lýsir því sem áfalli.
5
RannsóknHeimavígi Samherja
94372
Áhrif Namibíumálsins á íbúa Akureyrar: „Fólki þykir almennt rosalega vænt um Samherja“
Hvaða áhrif hefur það á 20 þúsund manna samfélag á Íslandi þegar stærsta fyrirtækið í bænum, útgerð sem veitir rúmlega 500 manns vinnu og styrkir góð málefni um allt að 100 milljónir á ári, er miðpunktur í alþjóðlegri spillingar- og sakamálarannsókn sem teygir sig víða um heim? Stundin spurði íbúa Akureyrar að þessari spurningu og kannaði viðhorf íbúa í Eyjafirði og á Íslandi öllu til Samherjamálsins í Namibíu. Rúmt ár er liðið frá því málið kom upp og nú liggja fyrir ákærur í Namibíu gegn meðal annars Samherjamönnum og embætti héraðssaksóknara og skattrannsóknarstjóri eru með málið til meðferðar á Íslandi.
6
MyndbandHeimavígi Samherja
5798
Hvað finnst Akureyringum um Samherja?
Stundin spurði Akureyringa út í mikilvægi og áhrif stórfyrirtækisins Samherja á lífið í Eyjafirði.
7
Fréttir
50240
Hæstiréttur dæmir Þórhall miðil í 18 mánaða fangelsi
Þórhallur Guðmundssonar þarf að greiða 1,2 milljónir króna í miskabætur og sæta fangelsisvist fyrir nauðgun.
Mest lesið í mánuðinum
1
ViðtalVarnarlaus börn á vistheimili
94276
Ingjaldur hafnar öllum ásökunum og kennir bróður sínum um
Ingjaldur Arnþórsson, fyrrverandi forstöðumaður Varpholts og Laugalands, segist orðlaus yfir lýsingum hóps kvenna á ofbeldi sem hann eigi að hafa beitt þær. Hann segist aldrei hafa beitt ofbeldi eða ofríki í störfum sínum. Augljóst sé að einhver sem sé verulega illa við sig standi að baki lýsingunum.
2
ViðtalVarnarlaus börn á vistheimili
103520
„Kerfið brást dóttur minni og fjölskyldunni allri“
Dagný Rut Magnúsdóttir segir að orð geti ekki lýst því hvernig sér hafi liðið á meðferðarheimilinu Laugalandi. Þetta hafi verið hræðilegur tími. Hún var þar um nokkurra mánaða skeið þegar hún var fimmtán ára. Pabbi hennar, Magnús Viðar Kristjánsson, óttast að hún jafni sig aldrei að fullu eftir reynsluna sem hún hafi orðið fyrir á meðferðarheimilinu. Hann segir að kerfið hafi ekki aðeins brugðist Dagnýju heldur allri fjölskyldunni.
3
ViðtalVarnarlaus börn á vistheimili
93836
„Upphafið að versta tímabili lífs míns“
„Ég er búin að vera að reyna að safna kjarki í mörg ár til að stíga fram og segja frá því sem ég upplifði á meðferðarheimilunum Varpholti og Laugalandi þegar ég var unglingur. Ég vissi alltaf að ég þyrfti að segja frá því sem gerðist,“ segir Kolbrún Þorsteinsdóttir, sem var fyrst vistuð á meðferðarheimilinu Varpholti, sem árið 2000 var flutt í Laugaland í Eyjafirði. Ingjaldur Arnþórsson stýrði báðum heimilunum.
4
Leiðari
193614
Jón Trausti Reynisson
Harmleikur Katrínar Jakobsdóttur
Ólíkt fyrri forsætisráðherrum talar Katrín Jakobsdóttir ekki niður til fólks.
5
ViðtalVarnarlaus börn á vistheimili
127994
„Ég lærði að gráta í þögn“
Á því rúma ári sem Sigurósk Tinna Pálsdóttir var vistuð á meðferðarheimilinu Laugalandi var hún brotin þannig niður að allt hennar líf hefur litast af því. Hún lýsir óttanum og vanlíðaninni sem var viðvarandi á heimilinu. Þegar Tinna greindi frá kynferðisbrotum sem hún hafði orðið fyrir var henni ekki trúað og hún neydd til að biðjast afsökunar á að hafa sagt frá ofbeldinu. „Ég gerði ekki neitt, það voru þau.“
6
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili
1981.560
Varnarlaus börn á vistheimili upplifðu ótta og ofríki
Sex konur stíga fram í Stundinni og lýsa alvarlegu ofbeldi sem þær segjast hafa orðið fyrir á meðan þær dvöldu á meðferðarheimilunum Varpholti og Laugalandi, sem stýrt var af sömu aðilum. Forstöðumaður heimilanna hafnar ásökunum. Ábendingar um ofbeldið bárust þegar árið 2000 en Barnaverndarstofa taldi ekkert hafa átt sér stað. Konurnar upplifa að málum þeirra hafi verið sópað undir teppið. „Við vorum bara börn.“
7
Aðsent
991.265
Dagný Halla Ágústsdóttir, Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir og Karitas M. Bjarkadóttir
Dökka hlið TikTok algóriþmans
Opið bréf til foreldra um notkun barna á TikTok - frá þremur unglingum sem nota TikTok.
Nýtt á Stundinni
Þrautir10 af öllu tagi
3555
305. spurningaþraut: Hvað gerðu þeir Viktor, Páll og Óli af sér?
Sko, hér er þrautin frá í gær! * Fyrri aukaspurning. Myndin hér að ofan er tekin 17. júní 1939. Hvað ætli sé þarna að gerast? Hér þurfiði sjálfsagt að giska en svarið verður eigi að síður að vera nokkuð nákvæmt. * Aðalspurningar: 1. Á hvaða reikistjörnu sólkerfisins er mestur hiti? Þá er átt við yfirborðshita. 2. Al Thani-fjölskyldan er auðug...
Mynd dagsins
1
Vá... loftlagsvá
Mál málanna í dag er auðvitað jarðskjálftarnir á Reykjanesskaganum, þeirri vá getum við ekki stjórnað. En til lengri tíma eru það auðvitað loftlagsmálin sem taka þarf föstum tökum áður en stefnir í óefni. Og þar getum við haft bein áhrif. Íslensk stjórnvöld hafa sent frá sér uppfærð markmið í loftslagsmálum. Þar kemur fram að Ísland ætlar að minnka losun um...
ViðtalHeimavígi Samherja
17126
Samherji og líkindin við Kaupfélagið: Fólk óttast að tjá sig
Kvikmyndagerðarmaðurinn Grímur Hákonarson kynntist starfsháttum Kaupfélags Skagfirðinga í gegnum bæjarbúa þegar hann dvaldi þar í mánuð við rannsóknir fyrir kvikmyndina Héraðið.
Myndband
1
„Fólk óttast að tjá sig“
Kvikmyndagerðarmaðurinn Grímur Hákonarson kynntist starfsháttum Kaupfélags Skagfirðinga í gegnum bæjarbúa þegar hann dvaldi þar í mánuð við rannsóknir fyrir kvikmyndina Héraðið.
Fréttir
5
Sendiráð Íslands í Washington dregst inn í umræðu um bresti sonar Bandaríkjaforseta
Sendiráð Íslands í Washington er í húsi þar sem Hunter Biden. sonur Bandaríkjaforseta, var með skrifstofu. Hunter braut öryggisreglur hússins ítrekað og fékk ákúrur vegna þeirra sendiráða sem eru í húsinu. Geir H. Haarde var sendiherra Íslands í Washington á þessum tíma.
FréttirSkjálftahrina á Reykjanesi
126
Óttast stóran Brennisteinsfjallaskjálfta í kjölfar skjálftahrinunnar
Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvöktunar á Veðurstofu Íslands, varar við því að enn stærri skjálfti, yfir 6, gæti komið í kjölfarið á skjálftahrinunni á Reykjanesi.
FréttirSkjálftahrina á Reykjanesi
1058
Stórir skjálftar ríða yfir Reykjanesið og höfuðborgarsvæðið
Skjálftar um og yfir 5 á Richter hafa riðið yfir Reykjanesið. Staðsetningin er í kringum Fagradalsfjall. Sá fyrsti mældist 5,7 að stærð, 3,3 kílómetrum suðsuðvestur af Keili. Skjálftarnir teygja sig í átt að höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt frumniðurstöðum Veðurstofunnar.
FréttirSamherjaskjölin
50297
Þorsteinn Már: „Hafi greiðslur átt sér stað sem eru ólögmætar þá voru þær á ábyrgð Jóhannesar Stefánssonar“
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, heldur áfram að kenna Jóhannesi Stefánssyni einum um ætlaðar „óeðlilegar“ greiðslur í Namibíu. Samherji hefur aldrei útskýrt hvernig það gat gerst að mútugreiðslur frá Samherjafélögum til „hákarlanna“ svökölluðu héldu áfram í þrjú ár eftir að Jóhannes hætti hjá Samherja.
Fréttir
354
Undanþága til hjúskapar barna verður felld úr gildi
Samkvæmt frumvarpi dómsmálaráðherra verður ekki lengur heimilt að veita undanþágu til barna undir 18 ára aldri til að ganga í hjúskap.
Þrautir10 af öllu tagi
3759
304. spurningaþraut: „Heyrðu snöggvast Snati minn ... lof mér nú að leika að ...“
Þraut númer 303 frá í gær. * Fyrri aukaspurning: Hver er íþróttakonan sem prýddi forsíðu janúarheftis Vogue? * Aðalspurningar: 1. Í hvaða landi er borgin Luzern eða Lucerne? 2. En hvað heitir höfuðborgin í Sýrlandi? 3. Íslendingur einn sat árum saman í fangabúðum Þjóðverja í Sachsenhausen í síðari heimsstyrjöld. Um hann skrifaði Garðar Sverrisson magnaða bók sem hét Býr Íslendingur...
Blogg
441
Halldór Auðar Svansson
Týndar tengingar
Lost Connections heitir bók eftir Johann Hari sem kom út árið 2018. Ég kynntist þessum breska/svissneska blaðamanni þegar hann kom hingað til lands í nóvember 2019 í tilefni af útgáfu íslenskrar þýðingar á annarri bók hans, Chasing the Scream eða Að hundelta ópið, sem fjallar um fáránleika og skaðsemi stríðsins gegn fíkniefnum. Í Lost Connections leggur hann í það metnaðarfulla verkefni að skoða áhrifaþætti...
Fréttir
46405
Horfði á sjónvarpsfréttir og fann sig knúna til að hefja undirskriftasöfnun
„Stórslys“, sem er í uppsiglingu varðandi heilsu íslenskra kvenna, er hvatinn að undirskriftasöfnuninni „Stöðvum aðför að heilsu kvenna“. Aðdragandinn er að greining leghálssýna á að fara fram í Danmörku í stað Íslands. Erna Bjarnadóttir, forsprakki söfnunarinnar, segir vanta upp á virðingu við notendur krabbameinsskimana.
Þín áskrift hefur áhrif
Almenningur hefur viðhaldið Stundinni með áskriftum og styrkjum frá febrúar 2015. Með því að kaupa áskrift styrkir þú sjálfstæða rannsóknarblaðamennsku.
Athugasemdir