Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 6 árum.

Ráðgjafafyrirtæki fær 8,5 milljónir fyrir að verkstýra stefnumótun stjórnvalda í barnavernd

Sér­fræð­ing­um í fyr­ir­tækja­rekstri, við­skipta­þró­un og stefnu­mót­un hjá fyr­ir­tæk­inu Expect­us ehf var fal­ið að verk­stýra end­ur­skoð­un barna­vernd­ar­kerf­is­ins fyr­ir 25 þús­und krón­ur á tím­ann sam­kvæmt verk­samn­ingi sem Stund­in hef­ur und­ir hönd­um.

Ráðgjafafyrirtæki fær 8,5 milljónir fyrir að verkstýra stefnumótun stjórnvalda í barnavernd
Ásmundur Einar Daðason Félagsmálaráðherra hefur verið gagnrýndur fyrir að greina velferðarnefnd Alþingis ekki frá því að Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, hefði fengið tilmæli frá ráðuneytinu um að fara ekki út fyrir verksvið sitt, áður en ákveðið var að tilnefna hann sem fulltrúa Íslands í Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna. Mynd: Pressphotos.biz/Geirix

Fyrirtækið Expectus fær rúmlega 8,5 milljónir króna fyrir að verkstýra vinnu við stefnumótun stjórnvalda í barnavernd. Þetta kemur fram í verksamningi velferðarráðuneytisins og ráðgjafafyrirtækisins sem Stundin hefur undir höndum.  Gert er ráð fyrir 344 klukkustunda vinnu og 8,5 milljóna króna heildargreiðslu fyrir verkefnið auk virðisaukaskatts, eða um 25 þúsund krónum á tímann. 

Að því er fram kemur á vef fyrirtækisins er hlutverk þess að aðstoða „viðskiptavini á fyrirtækjamarkaði við að nýta þekkingu og upplýsingatækni til að auka hæfni þeirra, móta stefnu og koma áherslum í framkvæmd og skila þannig mælanlegum árangri“.

Enginn þeirra sem kemur að vinnunni við endurskipulagningu barnaverndarkerfisins fyrir hönd fyrirtækisins hefur sérfræðimenntun á sviði barnaverndarmála, félagsþjónustu, sálfræði, lögfræði eða opinberrar stjórnsýslu. Hins vegar njóta ráðgjafarnir aðstoðar sérfræðings úr velferðarráðuneytinu, Guðríðar Bolladóttur, við öflun upplýsinga, skipulagningu funda og önnur verkefni sem lúta að framgangi verkefnisins. Þá er starfrækt sérstök verkefnisstjórn og í henni sitja sérfræðingar í málaflokknum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, fræðasamfélaginu og stofnunum og félögum sem hafa með málaflokkinn að gera. 

Samkvæmt verksamningnum við Expectus er það Ragnar Þórir Guðgeirsson, ráðgjafi og stjórnarformaður þess, sem verkstýrir og stjórnar vinnu við stefnumótun stjórnvalda í barnavernd. Hann er með viðskiptafræðigráðu frá Háskóla Íslands og löggildingarpróf í endurskoðun og hefur starfað við viðskiptaþróun, stefnumótun og rekstrarlega endurskipulagningu fyrir mörg stærstu fyrirtæki landsins. 

Að afmörkuðum verkþáttum koma Anna Björk Bjarnadóttir, Sindri Sigurjónsson og Reynir Ingi Árnason. Anna Björk er íþróttafræðingur en jafnframt menntuð í markaðsfræði og með áralanga reynslu sem leiðtogi og stjórnandi í fjarskiptageiranum og víðar, meðal annars sem framkvæmdastjóri hjá Símanum frá 2008 til 2013 og svo sem framkvæmdastjóri tæknisviðs. Sindri er menntaður í iðnaðarverkfræði og aðgerðarrannsóknum og hefur talsverða reynslu af stefnumótun, fjármála- og árangurstjórnun, áætlanagerð og endurhönnun viðskiptaferla. Reynir Ingi er hagfræðingur sem hefur starfað sem ráðgjafi í fjármálum fyrirtækja á ráðgjafasviði Deloitte. Þar áður þá starfaði Reynir á sölu- og markaðssviði Nóa Siríusar sem sölumaður stórmarkaða.

Samkvæmt skjali sem fylgdi verksamningnum er meginmarkmið verkefnisins að greina núverandi stöðu á barnaverndarþjónustunni, móta stefnu og framtíðarsýn og leggja fram aðgerðaráætlun um nauðsynlegar breytingar. Gerð verður „ytri greining“ um það umhverfi sem þjónustan beinist að og jafnframt „innri greining“ með „mælingum á gæðum þjónustunnar“. Þá verður sett  fram framtíðarsýn og markmið til 2030 um þróun þjónustunnar. Í verkefninu er horft til ramma sem unnið var eftir við stefnumótun í heilbrigðismálum aldraðra 2015 til 2016 en Ragnar Þórir kom að þeirri vinnu. „Verkþættir og umfang þeirra er sett  fram að stórum hluta byggt á þeirri reynslu,“ segir í fylgiskjali verksamningsins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­arsátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrín­ar Jak­obs­dótt­ur er miðju­sæk­in íhalds­stjórn, að mati Ei­ríks Berg­manns Ein­ars­son­ar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyr­ir alla, að mati Stef­an­íu Ósk­ars­dótt­ur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aft­ur í sátt­mál­an­um en annarra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boð­ar einkafram­kvæmd­ir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerf­ið og stjórn­ar­skrá­in fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrín­ar Jak­obs­dótt­ur set­ur þrjú meg­in við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldrun­ar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ing­ar. Styðja á við sta­f­ræna tækni í heil­brigð­is­mál­um. Lít­ið er rætt um skatta­mál. Einkafram­kvæmd­ir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukk­að fyr­ir notk­un vega.
Nýja ríkisstjórnin: Umhverfismálin færast frá Vinstri grænum til Sjálfstæðisflokks
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Nýja rík­is­stjórn­in: Um­hverf­is­mál­in fær­ast frá Vinstri græn­um til Sjálf­stæð­is­flokks

Menn­ing­ar­mál og við­skipti fara í sama ráðu­neyti, og mennta­mál­in klofna í tvö ráðu­neyti. Guð­laug­ur Þór Þórð­ar­son úr Sjálf­stæð­is­flokki verð­ur um­hverf­is­ráð­herra í stað Guð­mund­ar Inga Guð­brands­son­ar úr Vinstri græn­um. Orku­mál­in verða færð und­ir um­hverf­is­ráð­herra.

Mest lesið

Öryggisverðir gæta Bjarna – „Nokkuð góðir í að vera ósýnilegir“
2
Fréttir

Ör­ygg­is­verð­ir gæta Bjarna – „Nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra vill ekki kalla þá líf­verði, ör­ygg­is­verð­ina sem fylgja hon­um hvert fót­mál. „Þeir eru nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir þannig að ég geti sinnt mín­um störf­um,“ seg­ir hann. Áhættumat vegna ör­ygg­is ráð­herra rík­is­stjórn­ar Ís­lands er í sí­felldri end­ur­skoð­un, sam­kvæmt embætti rík­is­lög­reglu­stjóra.
Þórður Snær Júlíusson
3
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Er það að gefa að minnsta kosti hálf­an millj­arð góð með­ferð op­in­bers fjár?

Fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri með sterk flokk­spóli­tísk tengsl tók ákvörð­un um að gera vel við nána sam­starfs­menn sína rétt áð­ur en þeir fóru á eft­ir­laun og rétt áð­ur en hann þurfti að semja um starfs­lok. Kostn­að­ur­inn við þessa ákvörð­un er að minnsta kosti rúm­lega 500 millj­ón­ir króna og skatt­greið­end­ur bera hann. Tveir nú­ver­andi ráð­herr­ar voru kolrang­stæð­ir í yf­ir­lýs­ing­um sín­um um mál­ið að mati Hæsta­rétt­ar og nú­ver­andi dóms­mála­ráð­herra get­ur ekki feng­ið sig til að biðja um rann­sókn á því.
Grátrana sást á Vestfjörðum
4
Fréttir

Grátr­ana sást á Vest­fjörð­um

Grátr­ana sást á túni vest­ur í Djúpi á Vest­fjörð­um. Um er ræða sjald­séð­an flæk­ings­fugl og þyk­ir það tíðund­um sæta að hann hafi sést á þess­um slóð­um en hing­að til hafa þeir að­eins fund­ist á Aust­ur­landi og á Norð-Aust­ur­landi. Fugl­inn varð á vegi hjón­anna Kristjáns Sig­ur­jóns­son­ar og Áslaug­ar Ótt­ars­dótt­ur sem náðu af smella af nokkr­um mynd­um af trön­unni áð­ur en hún flaug á brott.
Ójöfnuður kemur okkur öllum við
10
Viðtal

Ójöfn­uð­ur kem­ur okk­ur öll­um við

Alma Möller land­lækn­ir seg­ir að stjórn­völd og sam­fé­lag­ið allt þurfi að horf­ast í augu við að hér ríki ójöfn­uð­ur í heilsu. Rann­sókn­ir sýna að lífs­gæði og lífs­lík­ur þeirra sem búa við efna­hags­leg­an skort eru minni en þeirra sem ná vel end­um sam­an. Alma seg­ir mik­il­væg­ast að hlúa að börn­um sem al­ist upp í fá­tækt. „Því ef fólk fær vont start í líf­inu þá á það sér kannski ekki við­reisn­ar von.“

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
2
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Skuldir á hvern íbúa í Garðabæ og Hafnarfirði nálgast tvær milljónir króna
6
Greining

Skuld­ir á hvern íbúa í Garða­bæ og Hafnar­firði nálg­ast tvær millj­ón­ir króna

Mik­ið er skegg­rætt um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þeg­ar horft er á skulda­stöðu þess hluta rekst­urs þeirra sem er fjár­magn­að­ur með skatt­tekj­um er stað­an skást í Kópa­vogi og Reykja­vík en versn­ar hrað­ast í Garða­bæ og á Seltjarn­ar­nesi, þar sem veltu­fé frá rekstri var nei­kvætt í fyrra. Hafn­ar­fjörð­ur er eina sveit­ar­fé­lag­ið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem var með veltu­fjár­hlut­fall, sem seg­ir til um getu sveit­ar­fé­lags til að borga skuld­ir sín­ar, um­fram það sem æski­legt er. Heim­ild­in rýndi í árs­reikn­inga sveit­ar­fé­lag­anna.
Öryggisverðir gæta Bjarna – „Nokkuð góðir í að vera ósýnilegir“
8
Fréttir

Ör­ygg­is­verð­ir gæta Bjarna – „Nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir“

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra vill ekki kalla þá líf­verði, ör­ygg­is­verð­ina sem fylgja hon­um hvert fót­mál. „Þeir eru nokk­uð góð­ir í að vera ósýni­leg­ir þannig að ég geti sinnt mín­um störf­um,“ seg­ir hann. Áhættumat vegna ör­ygg­is ráð­herra rík­is­stjórn­ar Ís­lands er í sí­felldri end­ur­skoð­un, sam­kvæmt embætti rík­is­lög­reglu­stjóra.
Hvað gerist í huganum þegar við hreyfum okkur?
9
ViðtalHlaupablaðið 2024

Hvað ger­ist í hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur?

„Mögn­uð“ breyt­ing verð­ur á hug­an­um þeg­ar við hreyf­um okk­ur. Hreyf­ing virk­ar eins og þung­lynd­is­lyf á þau sem glíma við vægt eða miðl­ungs þung­lyndi. Endorfín, sem fást við hlaup, hafa áhrif á túlk­un til­finn­inga, deyfa sárs­auka og valda sælu­til­finn­ingu. Steinn B. Gunn­ars­son íþrótta- og lýð­heilsu­fræð­ing­ur veit­ir inn­sýn í áhrif­in og ráð til að fá hug­ann til að halda sig við hreyf­ing­una.
Katrín eini matvælaráðherra VG sem tekur ekki afstöðu gegn gjafakvótanum í laxeldinu
10
FréttirLaxeldi

Katrín eini mat­væla­ráð­herra VG sem tek­ur ekki af­stöðu gegn gjafa­kvót­an­um í lax­eld­inu

Bæði Bjarkey Gunn­ars­dótt­ir og Svandís Svavars­dótt­ir hafa lýst því yf­ir að þær vilji tíma­binda rekstr­ar­leyf­in í sjókvía­eld­inu. Eini mat­væla­ráð­herra VG á síð­asta og yf­ir­stand­andi kjör­tíma­bili sem ekki hef­ur gert slíkt hið sama er Katrín Jak­obs­dótt­ir for­setafram­bjóð­andi. Hún vann tals­vert að frum­varp­inu, fund­aði með hag­að­il­um um það og lét breyta ein­staka grein­um þess.

Mest lesið í mánuðinum

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
1
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
3
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Fékk ekki að segja bless við eiginmann sinn
6
Fréttir

Fékk ekki að segja bless við eig­in­mann sinn

Sara Sig­ur­björg Guð­munds­dótt­ir, eig­in­kona Precious Fel­ix Tani­mola sem var send­ur úr landi til Níg­er­íu í nótt, seg­ist ekki hafa feng­ið að kveðja hann: „Sím­inn var tek­inn af hon­um og ég fékk ekki að segja bless.“ Precious flúði til Ís­lands frá Úkraínu vegna stríðs­ins. Hon­um hafði ári áð­ur ver­ið boð­ið að spila þar fót­bolta með úkraínsku fé­lagsliði.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
10
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár