Við erum þjóðin. Við erum búin að fá nóg.
- Við erum búin að fá nóg af valdastétt miðaldra karla af báðum kynjum sem eru svo uppteknir við að verja sitt eigið yfirráðasvæði að þeir láta sig ekki muna um að traðka á fórnarlömbum versta ofbeldis í stuðningi sínum hver við annan.
- Við erum búin að fá nóg af stjórnvöldum sem segja okkur ekki sannleikann ótilneydd - ekki fyrr en hann er rekinn hráblautur framan í andlitið á þeim.
- Við erum búin að fá nóg af hroka og fyrirlitningu þessara sömu stjórnvalda á þeim sem leitast við að upplýsa sannleikann.
- Við erum búin af fá nóg af þöggun, baktjaldamakki, lygum og yfirklóri þeirra sem þykir það mikilvægara að verja flokkinn sinn en að upplýsa sannleikann í hverju máli.
„Við erum búin að fá nóg af stjórnvöldum sem taka alltaf hag þeirra best settu í samfélaginu fram yfir hag þeirra sem eiga undir högg að sækja.“
- Við erum búin að fá nóg af stjórnvöldum sem taka alltaf hag þeirra best settu í samfélaginu fram yfir hag þeirra sem eiga undir högg að sækja.
- Við nennum ekki lengur að púkka uppá stjórnmálamenn sem níðast á börnum, gamalmennum og öryrkjum, hygla vinum sínum og skoðanabræðrum af stöku örlæti og þiggja fyrir það laun sem samsvara tíföldum lágmárkslaunum venjulegs fóks.
- Við erum búin að fá nóg af stjórmálamönnum sem flagga orðum eins og „gegnsæi“ fyrir kosningar, en hafa svo ekki minnsta grun um merkingu þess um leið og þeir eru sestir í valdastól.
- Við nennum ekki lengur íslensku spillingunni.
Nú langar okkur í eitthvað annað. #höfumhátt
Athugasemdir