Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 6 árum.

Maðurinn kom að heimili hennar eftir að henni var synjað um nálgunarbann

Hanna Krist­ín Skafta­dótt­ir fær ekki frið fyr­ir mann­in­um sem var hand­tek­inn fyr­ir að ráð­ast á hana. Lög­regl­an hafn­aði því að setja nálg­un­ar­bann á mann­inn.

Maðurinn kom að heimili hennar eftir að henni var synjað um nálgunarbann
Hanna Kristín Skaftadóttir Hefur opnað sig um heimilisofbeldi, en fékk stefnu frá manninum sem handtekinn var fyrir að beita hana ofbeldi. Mynd: Facebook / Hanna Kristín Skaftadóttir

Þrátt fyrir að fyrrverandi kærasti hennar hafi verið handtekinn fyrir að beita hana ofbeldi og hann láti hana ekki í friði, hefur Hanna Kristín Skaftadóttir ekki fengið Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu til að samþykkja að manninum verði meinað að nálgast hana. 

Maðurinn kom að heimili hennar í gær.  „Síminn hringir og hringir og sms hrúgast inn. Hann er að leita að mér,“ lýsir hún í færslu á Facebook.

Þarf meira slæmt að gerast?

Í færslunni á Facebook vill Hanna Kristín láta fólk vita, rétt eins og hún hefur tilkynnt málið til 112. Hún óttast nefnilega að eitthvað svakalegt þurfi að gerast til þess að hún fái frið. 

Hún hefur kært manninn fyrir að beita sig ofbeldi, ásamt því að leggja fram áverkavottorð. Maðurinn setur sig stöðugt í samband við hana og sinnir því ekki þegar hún biður hann að hætta.

„Beiðni minni um nálgunarbann á hendur fyrrum kærasta míns var hafnað fyrir nokkru síðan. Síðan þá hefur ekki liðið sá dagur að maðurinn með einum eða öðrum hætti setji sig ekki í samband við mig. Við erum að tala um mann sem sérsveitin var kölluð til út af fyrir ca 3 vikum, þegar hann var handtekinn fyrir ölvunarakstur. Sérsveitina. Eftir ölvunarakstur. Hvernig getur lögreglan talið að öryggi mínu sé ekki ógnað?“

„En hvað þarf til?“

Hanna Kristín segist horfa í kringum sig þegar hún fer út um dyrnar á heimili sínu. Hún spyr sig hvort eitthvað fleira slæmt þurfi að gerast til þess að hún fái frið. Því kerfið vill ekki taka af skarið og takmarka rétt mannsins til að nálgast hana.

„Tilfinningin að vera í mínum sporum er ólýsanleg. Skrýtið sambland af baráttuvilja en á sama tíma fullkomnu skorti á þreki og depurð. Mikill ótti en samt öryggi í að á einhverjum tímapunkti mun eitthvað svo slæmt gerast og ÞÁ verður hann handtekinn. En hvað þarf til?“ spyr hún.

Lög um nálgunarbann virka með þeim hætti að ef lagt er á nálgunarbann getur sakborningur áfrýjað því til héraðsdóms. Ef því er hins vegar synjað getur þolandi skotið synjuninni til ríkissaksóknara. Hanna Kristín hefur áfrýjað málinu til ríkissaksóknara og er beðið niðurstöðu hans.

„Hún fær ekki frið“

„Við teljum vera rök fyrir nálgunarbanni og sér í lagi eftir samskipti undanfarna daga, þar sem maðurinn er stöðugt að hafa samband við hana. Hún fær ekki frið,“ segir  Arnar Þór Stefánsson, lögmaður Hönnu Kristínar. „Það er einhver rannsókn í gangi, láttu þá bara brotaþolann í friði,“ bætir hann við.

Sendi lögfræðihótun

Hanna Kristín er ekki eina konan sem greint hefur frá sambærilegri reynslu af manninum. „Ég var í sömu sporum með þessum sama manni í allt, allt of langan tíma,“ sagði önnur kona á Facebook, sem lýsti einnig ofbeldi af hans hálfu.

Fyrir utan að setja sig í samband við hana og koma að heimili hennar hafa viðbrögð mannsins, Magnúsar Jónssonar, verið að senda Hönnu Kristínu lögfræðikröfu þar sem hann fer fram á að hún greiði henni 1,5 milljónir króna vegna meiðyrða. Þar er einnig lögð fram krafa um að hún „verði látin sæta ýtrustu refsingu sem lög leyfa“, en meiðyrði flokkast undir almenn hegningarlög og er hámarksrefsing fangelsisvist. Meðal annars hótar Magnús að kæra Hönnu Kristínu á grundvelli þess að hún hafi sagt frá „einkamálefnum“ og svo að hún hafi breitt út hatursáróður og móðgað eða smánað fyrrverandi maka. Lagagreinar sem lögmaður Magnúsar vitnar hafa refsiramma upp á tveggja ára fangelsisdóm, og er farið fram á hámarksrefsingu.

Sjálfur hefur hann tvívegis verið handtekinn fyrir ölvunarakstur frá því að hann kom aftur frá Texas, þar sem hann var handtekinn fyrir líkamsárás á hendur þáverandi kærustu sinni, Hönnu Kristínu, í mars. 

 Færsla Hönnu Kristínar

Ég heyri strákana mína hlægja. Þeir eru í rúminu mínu að horfa á Guardians of the Galaxy fyrir háttinn. "Mamma! er baðið nice?" Mikael skottast inn og strýkur mér um hárið og kyssir mig á ennið. Ég rétt náði að þurrka tárin. Þeir vita ekkert. Bað og kertaljós. Það hjálpar manni aðeins að slaka á. Síminn hringir og hringir og sms hrúgast inn. Hann er að leita að mér.

Beiðni minni um nálgunarbann á hendur fyrrum kærasta míns var hafnað fyrir nokkru síðan. Síðan þá hefur ekki liðið sá dagur að maðurinn með einum eða öðrum hætti setji sig ekki í samband við mig. Við erum að tala um mann sem sérsveitin var kölluð til út af fyrir ca 3 vikum, þegar hann var handtekinn fyrir ölvunarakstur. Sérsveitina. Eftir ölvunarakstur. Hvernig getur lögreglan talið að öryggi mínu sé ekki ógnað?

Núna er ég fangi. Frelsi mitt er lítið sem ekkert. Stöðugur ótti. Mig langar ekkert meira en að einhver taki utan um mig og segi af fullkomnu öryggi "þetta verður allt í lagi".... en nei, ég kasta daglega Molotov kokteilum í átt að öllum þeim sem koma nálægt mér því ég vil ekki að fleiri flækist inn í líf mitt. Tel mig vera að vernda fólk með því að halda þeim frá mér. Þetta er mitt vandamál, mín barátta og ég þarf að þrauka. Verð að sigra. Vera sterk. Alltaf að vera sterk og jákvæð.

Ef ég sýni ótta þá skynja strákarnir mínir það og umfram allt þarf ég að halda daglegri rútínu án þess að þeir skynji hvað sé í gangi. Ég þarf að vinna mína vinnu með bros á vör og skýrri hugsun. Halda fókus. Koma drengjunum í skólann og vera til staðar með hlýju í hjarta og hella upp á kakó og gefa þeim köku. Aftur, vera sterk og með bros á vör. Leyfa þeim að upplifa það frelsi að búa við öryggi. 

En... hoppandi höfrungar! - hvað þetta er hrikalega erfitt. Stöðugt áreiti allan daginn, sama hvaða leiðir hann notar til að nálgast mig.

Er ekki nóg að ég hafi lagt fram kærur í nokkrum liðum um líkamlegt ofbeldi? Að það sé til áverkavottorð af líkamsáverkum mínum, nokkur? Að hann hafi í beinum orðum haft í hótunum við mig? Að hann hafi birt nektarmynd af mér á facebook? Að hann setji sig stöðugt í samband við mig allan sólarhringinn? Að hann komi upp að heimili mínu til að athuga hvort ég sé heima? Að hann sé með ágiskanir um að ég sé að hitta hinn og þennan mann og leiti þá uppi?

Hvar drögum við mörkin? Hvað er hægt að gera? 

Tilfinningin að vera í mínum sporum er ólýsanleg. Skrýtið sambland af baráttuvilja en á sama tíma fullkomnu skorti á þreki og depurð. Mikill ótti en samt öryggi í að á einhverjum tímapunkti mun eitthvað svo slæmt gerast og ÞÁ verður hann handtekinn. En hvað þarf til?

Þetta er ekkert líf fyrir þann sem þarf að þola stöðugt áreiti. Maður einangrast mikið og upplifir vanmátt gagnvart aðstæðum. Ég lít stöðugt um öxl þegar ég fer út að skokka ein. Opna hurðina heima varlega og lít í kringum mig. 

En að hlusta á hlátur drengjanna minna, óttaleysið þeirra... það fleytir mér áfram. Það hjálpar mér að vera sterk og brosa. Sama hversu erfitt þetta er. Það er býsna stór áskorun að standa keik í þessum aðstæðum og viðurkenna vanmátt sinn og þurfa að horfast í augu við að þetta eru aðstæður núna og vonandi kemur betra tímabil eftir þetta. Eins og pabbi minn hefur alltaf sagt af sinni stóísku ró "This too shall pass".

Búin að hringja í 112 í kvöld og láta vita af áhyggjum mínum. Þið vitið af áhyggjum mínum. Lögmaður minn stendur þétt við bakið á mér. Krossum fingur og vonum að næst fáist nálgunarbannið í gegn án þess að það þurfi eitthvað svakalegt að gerast í millitíðinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
2
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.
„Það er svo ótrúlega helvíti erfitt að fara frá honum“
3
Viðtal

„Það er svo ótrú­lega hel­víti erfitt að fara frá hon­um“

Krist­inn Hrafns­son ræð­ir stöð­una á mál­um Ju­li­an Assange en um­ræð­an byrj­aði að breyt­ast eft­ir að Nils Melzer, þá­ver­andi skýrslu­gjafi Sam­ein­uðu þjóð­anna, gaf út á bók ár­ið 2022 og lagði áherslu á að eng­inn hef­ur axl­að ábyrgð á stríðs­glæp­um þeim sem Wiki­Leaks af­hjúp­aði á með­an Ju­li­an sæt­ir pynt­ing­um og yf­ir­völd fjög­urra landa hafa marg­brot­ið á hon­um. Bók­in hef­ur haft áhrif, jafn­vel á Joe Biden og Olaf Sholz.
Segir íslenskt kórastarf geta stuðlað að aukinni inngildingu
4
FréttirForsetakosningar 2024

Seg­ir ís­lenskt kór­astarf geta stuðl­að að auk­inni inn­gild­ingu

Halla Hrund Loga­dótt­ir vill hvetja út­lend­inga til að „læra tungu­mál­ið okk­ar í gegn­um söng og ís­lensk­una.“ Halla Hrund seg­ir að við þurf­um að vera að­eins meira skap­andi í því hvernig við nálg­umst við­fangs­efni inn­flytj­enda. Hún var með­al for­setafram­bjóð­enda sem mættu í pall­borð­sum­ræð­ur í síð­asta þætti Pressu.
Var dæmdur til dauða fyrir hryðjuverk
8
ViðtalÚkraínustríðið

Var dæmd­ur til dauða fyr­ir hryðju­verk

Bret­inn Shaun Pinner var ný­kom­inn úr löngu sam­bandi og fann fyr­ir lífs­kreppu sem marg­ir á miðj­um aldri upp­lifa. Hans lausn við henni var að fara til Úkraínu og þjálfa her­menn. Pinner var hand­tek­inn, stung­inn og pynt­að­ur af Rúss­um en var svo hluti af stór­um fanga­skipt­um sem áttu sér stað milli stríð­andi fylk­inga í sept­em­ber 2022. Ósk­ar Hall­gríms­son ræddi við Pinner.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
1
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú
7
Greining

Sleppti mál­tíð­um til þess að kom­ast frá Ás­brú

„Stans­laust von­leysi vakn­ar um leið og þú mæt­ir,“ seg­ir ung­ur venesú­elsk­ur hæl­is­leit­andi um Ás­brú. Þar hafi ver­ið ómögu­legt fyr­ir hann, eða nokk­urn mann, að að­lag­ast ís­lensku sam­fé­lagi – sem er at­riði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hef­ur sagst vilja fleiri bú­setu­úr­ræði á borð við Ás­brú.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
8
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.
Þórður Snær Júlíusson
9
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Elsku ráð­herr­ar, hætt­ið að gefa Ís­land

Nú stend­ur til að gefa norsk­um lax­eld­is­fyr­ir­tækj­um ís­lenska firði til eign­ar. Þeg­ar er bú­ið að gefa ör­fá­um út­gerð­ar­fjöl­skyld­um hundruð millj­arða króna hið minnsta af fé sem ætti að hafa far­ið í sam­fé­lags­lega upp­bygg­ingu. Vilji er til þess að gefa einka­að­il­um vindorku en eng­inn vilji til þess að rukka ferða­þjón­ustu fyr­ir nýt­ingu á al­manna­g­æð­um. Hvað geng­ur ís­lensk­um ráða­mönn­um eig­in­lega til?
Fyrirtækið sem Kvika keypti kom að lánum til félags konu Ármanns
10
ViðskiptiKvika og Ortus

Fyr­ir­tæk­ið sem Kvika keypti kom að lán­um til fé­lags konu Ár­manns

Breska fyr­ir­tæk­ið Ort­us Capital, sem Ár­mann Þor­valds­son, nú­ver­andi for­stjóri al­menn­ings­hluta­fé­lags­ins Kviku, var hlut­hafi í var einn af lán­veit­end­um breska kráar­fyr­ir­tæk­is­ins Red Oak Taverns, sem eig­in­kona Ár­manns á hlut í. Þetta fyr­ir­tæki varð síð­ar að Kviku Secu­rities í Bretlandi og keypti það breskt lána­fyr­ir­tæki af við­skipta­fé­lög­um fyr­ir tveim­ur ár­um fyr­ir millj­arða króna.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
3
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
7
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár