Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 5 árum.

Norðurlöndin bíða frekari upplýsinga um embættisfærslur Braga: „Fylgjumst með framgangi athugunarinnar“

„Við höf­um átt í sam­skipt­um við ís­lensk stjórn­völd og okk­ur er kunn­ugt um að þau hafi tek­ið mál­ið til skoð­un­ar,“ seg­ir upp­lýs­inga­full­trúi danska ut­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Norðurlöndin bíða frekari upplýsinga um embættisfærslur Braga: „Fylgjumst með framgangi athugunarinnar“

Framboð Braga Guðbrandssonar til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna nýtur stuðnings Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar og Finnlands þrátt fyrir að velferðarráðuneytið á Íslandi hafi snuprað hann fyrir óeðlileg afskipti af barnaverndarmáli. 

Eins og Stundin hefur fjallað ítarlega um beitti Bragi sér fyrir því að faðir fengi að umgangast dætur sínar þrátt fyrir grunsemdir barnaverndarnefndar og meðferðaraðila um að hann hefði misnotað þær kynferðislega. Síðar komst velferðarráðuneytið að þeirri niðurstöðu að Bragi hefði farið út fyrir valdsvið sitt með þessum afskiptum og sendi honum tilmæli vegna málsins. Alþingi og hinum Norðurlöndunum var ekki greint frá þessu fyrr en löngu eftir að ríkisstjórn Íslands ákvað að bjóða Braga fram til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna. 

Eftir að Stundin fjallaði um afskipti Braga Guðbrandssonar af Hafnarfjarðarmálinu þann 27. apríl síðastliðinn setti Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra af stað óháða úttekt á málinu og fól  Kjartani Bjarna Björgvinssyni héraðsdómara og Kristínu Benediktsdóttur dósent við lagadeild HÍ að rannsaka fyrirliggjandi gögn og málsmeðferð viðkomandi stjórnvalda. Gert er ráð fyrir að niðurstaða úttektarinnar liggi fyrir í byrjun júní. 

Áætlaður útlagður kostnaður íslenskra stjórnvalda við framboð og kosningabaráttu Braga er í kringum fjórar milljónir króna að sögn Sveins H. Guðmarssonar, upplýsingafulltrúa utanríkisráðuneytisins.

„Er þar einkum um ferðakostnað að ræða, auk útgáfu kynningarefnis. Þessi kostnaður fellur að mestu leyti á velferðarráðuneytið en framlag utanríkisráðuneytisins felst í aðstoð eins af starfsmönnum íslensku fastanefndarinnar í New York við þetta verkefni,“ segir í svari Sveins við fyrirspurn Stundarinnar. 

„Höfum átt í samskiptum við íslensk stjórnvöld“

Stundin sendi dönskum, finnskum, norskum og sænskum stjórnvöldum fyrirspurnir um framboð Braga í síðustu viku og fékk svör fyrir helgi. 

„Við getum staðfest að herra Bragi Guðbrandsson er Norðurlandaframbjóðandi og nýtur þar af leiðandi stuðnings Danmerkur. Við höfum átt í samskiptum við íslensk stjórnvöld og okkur er kunnugt um að þau hafi tekið málið til skoðunar. Við treystum íslenskum stjórnvöldum til ákvarðana um viðeigandi ráðstafanir ef þess gerist þörf í þessu máli,“ segir í svari frá utanríkisráðuneyti Danmerkur til Stundarinnar. 

Svör Svía eru í svipuðum dúr. „Framboð Íslands til Barnaréttarnefndar SÞ nýtur stuðnings Norðurlandanna, meðal annars Svíþjóðar. Nýlega var okkur greint frá því að sett hefði verið af stað óháð athugun á verklagi barnaverndaryfirvalda á Íslandi. Við fylgjumst með framgangi athugunarinnar í gegnum sendiráð okkar í Reykjavík og bíðum frekari upplýsinga,“ segir upplýsingafulltrúi hjá sænska utanríkisráðuneytinu í svari til Stundarinnar. 

„Norðurlöndin styðja almennt framboð hvers annars. Í þessu tilviki höfum við litið til bakgrunns og hæfni frambjóðandans með hefðbundnum hætti og á þeim grundvelli ákveðið að styðja frambjóðanda Íslands. Ef nýjar upplýsingar um frambjóðandann koma fram eftir formlegum leiðum, þá tökum við málið til endurskoðunar,“ segir í svari norska utanríkisráðuneytisins. 

„Við höldum áfram að styðja
frambjóðandann nema niðurstöður athugunarinnar gefi tilefni til annars“

Finnar taka í sama streng: „Finnland, rétt eins og hin Norðurlöndin, styður þennan frambjóðanda. Okkur er kunnugt um að nú stendur yfir óháð athugun á málsmeðferð innan barnaverndarkerfisins. Við höldum áfram að styðja frambjóðandann nema niðurstöður athugunarinnar gefi tilefni til annars.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
1
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Katrín telur sig ekki þurfa að svara spurningum um laxeldisfrumvarp
2
FréttirLaxeldi

Katrín tel­ur sig ekki þurfa að svara spurn­ing­um um lax­eld­is­frum­varp

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­setafram­bjóð­andi og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra þar til fyr­ir tæp­um mán­uði síð­an, tel­ur sig ekki þurfa að svara spurn­ing­um um mál sem hún kom að á Al­þingi sem enn eru í vinnslu þar. Í fyrsta skipti er for­setafram­bjóð­andi í þeirri stöðu að þurfa mögu­lega að sam­þykkja eða synja lög­um sem við­kom­andi kom að á þingi sem ráð­herra.
Formaður Sameykis sakaður um ógnarstjórn
3
Skýring

Formað­ur Sam­eyk­is sak­að­ur um ógn­ar­stjórn

Skrif­stofa Sam­eyk­is hef­ur und­an­far­ið ver­ið að glíma við ósætti á vinnu­staðn­um og slæm­an vinnu­anda. Sam­kvæmt ný­legri út­tekt sem gerð var á vinnu­staðn­um bend­ir ým­is­legt til að vand­ann megi rekja til fram­komu og stjórn­un­ar­hátta for­manns Sam­eyk­is, Þór­ar­ins Eyfjörð. Sjálf­ur seg­ist hann hafa tek­ið til sín eitt­hvað af þeirri gagn­rýni sem bein­ist gegn hon­um og að vinna við að bæta and­rúms­loft­ið á skrif­stof­unni sé vel á veg kom­inn.
Úr öskunni við Vesúvíus: Höfundur Atlantis skammar þrælastúlku á banabeðinu!´
10
Flækjusagan

Úr ösk­unni við Vesúvíus: Höf­und­ur Atlant­is skamm­ar þræla­stúlku á bana­beð­inu!´

Fyr­ir tæp­um fimm ár­um birt­ist á vef­síðu Stund­ar­inn­ar, sem þá hét, stutt flækj­u­sögu­grein um nýja tækni sem þá átti að fara að beita á fjöld­ann all­an af papýrus­roll­um sem fund­ist höfðu í stóru bóka­safni í bæn­um Hercul­an­um í ná­grenni Napólí. Þannig papýrus­roll­ur voru bæk­ur þess tíma. Þeg­ar Vesúvíus gaus ár­ið 79 ET (eft­ir upp­haf tíma­tals okk­ar) grófst Hercul­an­um á kaf...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
1
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.
Örlæti Haraldar kostar ríkissjóð yfir hálfan milljarð
3
Afhjúpun

Ör­læti Har­ald­ar kost­ar rík­is­sjóð yf­ir hálf­an millj­arð

Rík­is­sjóð­ur sit­ur uppi með yf­ir 500 millj­óna króna reikn­ing eft­ir að Har­ald­ur Johann­essen, fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri, hækk­aði líf­eyr­is­rétt­indi út­val­inna und­ir­manna sinna um helm­ing, án þess að hafa til þess heim­ild. Þetta er nið­ur­staða meiri­hluta Hæsta­rétt­ar sem kall­ar verk Har­ald­ar „ör­læt­is­gjörn­ing“. Stór hluti þess­ara und­ir­manna Har­ald­ar skrif­aði und­ir op­in­bera stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við hann stuttu síð­ar. Samn­ing­arn­ir standa samt því und­ir­menn­irn­ir vissu ekki bet­ur en að Har­ald­ur mætti gera þá. Um­mæli tveggja ráð­herra hafi styrkt þá trú þeirra.
Þórður Snær Júlíusson
6
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Dýr­asta kosn­ingalof­orð Ís­lands­sög­unn­ar

Ár­ið 2003 lof­aði Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 90 pró­sent lán­um til hús­næð­is­kaupa svo börn gætu flutt úr for­eldra­hús­um. Rík­is­ábyrgð var á fjár­mögn­un lán­anna. Nú, tveim­ur ára­tug­um síð­ar, stend­ur rík­is­sjóð­ur frammi fyr­ir því að vera að tapa að nokkr­um millj­örð­um króna á mán­uði vegna þess­ara lof­orða og það hef­ur aldrei ver­ið erf­ið­ara fyr­ir ungt fólk að kom­ast í eig­ið hús­næði.
Davíð kallar borgarstjórn bjálfa fyrir að taka niður styttuna af Séra Friðriki
7
FréttirSr. Friðrik og drengirnir

Dav­íð kall­ar borg­ar­stjórn bjálfa fyr­ir að taka nið­ur stytt­una af Séra Frið­riki

Rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins seg­ir upp­lýs­ing­ar um að Séra Frið­rik Frið­riks­son, stofn­andi KFUM, hafi beitt fjöl­marga drengi kyn­ferð­is­legu áreiti og of­beldi vera „get­gát­ur eins manns“ eft­ir að „ímynd­un­ar­afl hans fór loks í gang eft­ir tæp 75 ár.“ Það að stytta af hon­um hafi ver­ið fjar­lægð sé merki um of­stæki þeirra sem noti hvert tæki­færi til að þykj­ast betra og pen­inga­laus­ara en ann­að fólk.
Katrín telur sig ekki þurfa að svara spurningum um laxeldisfrumvarp
10
FréttirLaxeldi

Katrín tel­ur sig ekki þurfa að svara spurn­ing­um um lax­eld­is­frum­varp

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­setafram­bjóð­andi og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra þar til fyr­ir tæp­um mán­uði síð­an, tel­ur sig ekki þurfa að svara spurn­ing­um um mál sem hún kom að á Al­þingi sem enn eru í vinnslu þar. Í fyrsta skipti er for­setafram­bjóð­andi í þeirri stöðu að þurfa mögu­lega að sam­þykkja eða synja lög­um sem við­kom­andi kom að á þingi sem ráð­herra.

Mest lesið í mánuðinum

Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
2
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
6
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
7
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Skólastjórinn hættir eftir áralanga óánægju foreldra
10
Fréttir

Skóla­stjór­inn hætt­ir eft­ir ára­langa óánægju for­eldra

Móð­ir á Kirkju­bæj­arklaustri ætl­ar að flytja með börn­in sín úr bæn­um þar sem hún tel­ur ástand­ið í Kirkju­bæj­ar­skóla óvið­un­andi. Son­ur henn­ar hef­ur lít­ið mætt í skól­ann í á ann­að ár eft­ir at­vik í skól­an­um sem for­eldr­arn­ir kærðu til lög­reglu. Mál­ið var lát­ið nið­ur falla. Skóla­stjór­inn er nú á för­um en sveit­ar­stjór­inn seg­ir það „eng­um ein­um að kenna þeg­ar tveir deila“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár