Bandarískir stjórnmálafræðingar og sagnfræðingar gera reglulegar kannanir í sínum hópi um hverjir séu bestu og verstu forsetarnir þar í landi. Og nú hefur verið birt fyrsta könnunin sem gerð hefur verið eftir að Donald Trump tók við embætti.
Ekki mun mörgum öðrum en hörðustu stuðningsmönnum hans koma á óvart að hann situr tryggilega í neðsta sætinu og þykir því verstur allra hinna 44ra forseta.
Trump ruddi James Buchanan úr neðsta sætinu en Buchanan er alræmdur fyrir að hafa látið reka á reiðanum í forsetatíð sinni 1857-1861 þegar leið að borgarastríðinu þar vestra.
Athygli vekur að Barack Obama tekur stórt stökk upp á við frá síðustu könnun af þessu tagi en hún var gerð 2014. Þá varð Obama í 18. sæti en fer nú í 8. sætið og er kominn í hóp allra bestu forsetanna að mati fræðimannanna, sem tilheyra samtökunum APSA.
Hér eru tíu bestu forsetarnir að mati fræðimannanna núna:
1. Abraham Lincoln 1861-1865
2. George Washington 1789-1797
3. Franklin D. Roosevelt 1933-1945
4. Theodore Roosevelt 1901-1909
5. Thomas Jefferson 1801-1809
6. Harry S. Truman 1945-1953
7. Dwight D. Eisenhower 1953-1961
8. Barack Obama 2009-2017
9. Ronald Reagan 1981-1989
10. Lyndon B. Johnson 1963-1968
Svo er Woodrow Wilson í 11. sæti, Bill Clinton í 13. sæti, John F. Kennedy í 15. sæti, Bush eldri í 17. sæti, Jimmy Carter er í 26. sæti og Bush yngri í 30. sæti og Richard Nixon í 33. sæti.
Tíu neðstu eru svo þessir hér:
35. Zachary Taylor 1849-1850, dó eftir aðeins ár á valdastóli án þess að hafa afrekað neitt.
36. Herbert Hoover 1929-1933, brást illa við kreppunni miklu og dýpkaði hana í raun verulega.
37. John Tyler 1841-1845, gerði ekkert í aðdraganda borgarastríðs.
38. Millard Fillmore 1850-1853, gerði ekkert í aðdraganda borgarastríðs.
39. Warren Harding 1821-1823, skammlífur en ótal hneykslismál komu upp í ríkisstjórn hans.
40. Andrew Johnson 1865-1869, klúðraði uppgjöri eftir borgarastríðið.
41. Franklin Pierce 1853-1857, gerði ekkert í aðdraganda borgarastríðs.
42. William Henry Harrison 1841, dó eftir aðeins mánuð í starfi.
43. James Buchanan 1857-1861, gerði ekkert í aðdraganda borgarastríðs.
44. Donald J. Trump 2017 og enn í dag.
Fræðimennirnir gefa forsetunum einkunnir fyrir hitt og þetta áður en heildareinkunn þeirra er reiknuð út og Trump mun hafa lent í neðsta sæti á nálega öllum einkunnaskölunum, nema þeim sem átti að mæla „umdeildasta forsetann“.
Þar vann Trump, en sá „sigur“ þykir raunar ekki jákvæður.
Athugasemdir