Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 5 árum.

Samherji vonar að Ríkisútvarpið „dragi lærdóm“ eftir „ánægjulega“ leiðréttingu

Út­gerð­ar­fé­lag­ið Sam­herji fagn­ar leið­rétt­ingu Rík­is­út­varps­ins á full­yrð­ingu, þar sem sagt var í frétt að Sam­herji hefði beitt mút­um til að kom­ast yf­ir afla­heim­ild­ir í Namib­íu.

Samherji vonar að Ríkisútvarpið „dragi lærdóm“ eftir „ánægjulega“ leiðréttingu
Fréttastjóri RÚV Rakel Þorbergsdóttir, fréttastjóri RÚV, bað Samherja velvirðingar í fréttum í gærkvöldi og leiðrétti staðhæfingu um að Samherji hefði greitt mútur. Mynd: RÚV

„Það er ánægjulegt að RÚV hafi áttað sig á mistökunum og viðurkennt að flutt hafi verið frétt með fullyrðingum sem eiga ekki við nein rök að styðjast,“ segir í yfirlýsingu útgerðarfélagsins Samherja vegna ákvörðunar fréttastofu RÚV um að biðja félagið velvirðingar og leiðrétta frétt þar sem sagt var að Samherja hefði tekist að „afla sér kvóta í [Namibíu] með því að múta embættismönnum“. 

Fjallað var um stórfelldar greiðslur Samherja til embættis- og stjórnmálamanna í Stundinni, Kveik, The Namibian og Al Jazeera í nóvember, en umfjöllunin byggðist á gögnum um millifærslur, tölvupóstsamskiptum og frásögn fyrrverandi framkvæmdastjóra Samherja í Namibíu. Tíu manns hafa verið handteknir eða ákærðir í Namibíu vegna málsins, þar á meðal tveir fyrrverandi ráðherrar. Seinast var fyrrverandi framkvæmdastjóri ríkisfyrirtækisins Fishcor, sem gefur út kvóta í Namibíu, handtekinn í gær.

Málið er til skoðunar hjá Héraðssaksóknara hérlendis, en ekki hafa fengist frekari upplýsingar um stöðu þess.

Sjávarútvegsráðherra og forstjóriBernhard Esau, sjávarútvegsráðherra Namibíu, var handtekinn í kjölfar þess að Al Jazeera sýndi fram á að hann tók við mútum, með földum myndavélum. Hér er hann með Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja, sem fór í leyfi eftir umfjöllun Kveiks og Stundarinnar.

„Samherji vonar að fréttastofan dragi lærdóm af þessu máli“

„Samherji vonar að fréttastofan dragi lærdóm af þessu máli til að fyrirbyggja að slík mistök endurtaki sig í framtíðinni,“ segir Samherji í yfirlýsingu sinni.

Rakel Þorbergsdóttir, fréttastjóri RÚV, sagði í leiðréttingu sem lesin var upp í tíufréttum í gærkvöldi, að fréttastofan stæði enn við aðrar fréttir af málinu, sem og umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kveiks í nóvember, þar sem sýnt var fram á fjármagnsflutninga Samherja til einstaklinga í stjórnkerfi og stjórnmálum í Namibíu, sem leitt hafa til ákæra og handtaka í landinu. 

Meðal þess sem lögfræðingur Samherja fullyrti í bréfi sínu til 12 stjórnarmanna og annarra forsvarsmanna Ríkisútvarpsins, var að félagið hefði ekki fengið tækifæri til að svara ásökunum um mútugreiðslur og því hefði fréttamaður RÚV brotið siðareglur þess efnis. Þorsteinn Már Baldvinsson, fyrrverandi forstjóri Samherja, fékk hins vegar tækifæri til að svara skriflega og í viðtali við fréttamann Kveiks í nóvember. Í bréfinu sagði lögfræðingur Samherja að brot Ríkisútvarpsins gegn hegningarlögum gætu varðað allt að tveggja ára fangelsi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Lögreglan á nýrri slóð: Fundu skilaboð Þorsteins
AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­regl­an á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönn­um á veg­um hér­aðssak­sókn­ara tókst á dög­un­um að end­ur­heimta á ann­að þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­son­ar og Jó­hann­es­ar Stef­áns­son­ar, á með­an sá síð­ar­nefndi var við störf í Namib­íu. Skila­boð­in draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðr­ir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.
„Samherji gegndi lykilhlutverki í þessu hneyksli“ - Opið bréf til forsætisráðherra frá Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

„Sam­herji gegndi lyk­il­hlut­verki í þessu hneyksli“ - Op­ið bréf til for­sæt­is­ráð­herra frá Namib­íu

Slétt­um fjór­um ár­um eft­ir að ljóstr­að var upp um fram­ferði Sam­herja í Namib­íu kall­ar leið­togi namib­ísku stjórn­ar­and­stöð­unn­ar eft­ir því að ís­lensk stjórn­völd taki ábyrgð, í opnu bréfi til for­sæt­is­ráð­herra Ís­lands. Hundrað millj­óna rík­is­styrk­ur til Sam­herja vek­ur reiði í Namib­íu.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lög­mað­ur namib­ískra sjó­manna við Sam­herja: „Borg­ið það sem þið skuld­ið þeim“

Lög­mað­ur skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmd­ar voru bæt­ur vegna ólög­legr­ar upp­sagn­ar Sam­herja­fé­lags í Namib­íu, kall­ar eft­ir því að Ís­lend­ing­ar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namib­íu. Það stand­ist enga skoð­un að Sam­herji hafi ekki vit­að af mál­inu. For­stjóri Sam­herja lof­aði því að fyr­ir­tæk­ið myndi sjá til þess að stað­ið yrði við all­ar skuld­bind­ing­ar og sér­stak­lega hug­að að sjó­mönn­um sem starf­að hefðu fyr­ir fé­lag­ið.
Namibískir sjómenn stefna Samherjamanni eftir tveggja ára bið eftir bótum
FréttirSamherjaskjölin

Namib­ísk­ir sjó­menn stefna Sam­herja­manni eft­ir tveggja ára bið eft­ir bót­um

Á þriðja tug namib­ískra sjó­manna sem voru dæmd­ar bæt­ur vegna ólög­mætr­ar upp­sagn­ar Sam­herja­fé­lags í Namib­íu, hafa enn ekki feng­ið þær greidd­ar. Lög­mað­ur þeirra gagn­rýn­ir for­svars­menn Sam­herja fyr­ir að gang­ast ekki við ábyrgð sinni og hef­ur nú stefnt ein­um stjórn­anda Sam­herja og dótt­ur­fé­lagi þess, fyr­ir dóm í Namib­íu.

Mest lesið

Íslendingar vísa trans konu á flótta frá Bandaríkjunum úr landi
1
Fréttir

Ís­lend­ing­ar vísa trans konu á flótta frá Banda­ríkj­un­um úr landi

Kona sem er á flótta frá Banda­ríkj­un­um með son sinn sótti um al­þjóð­lega vernd á Ís­landi. Fyr­ir Út­lend­inga­stofn­un lýsti hún því hvernig hat­ur hafi far­ið vax­andi þar í landi gagn­vart kon­um eins og henni – trans kon­um – sam­hliða að­gerð­um stjórn­valda gegn trans fólki. Sjálf hafi hún orð­ið fyr­ir að­kasti og ógn­un­um. „Með hverj­um deg­in­um varð þetta verra og óhugn­an­lega.“

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Júlía Margrét Alexandersdóttir
1
Það sem ég hef lært

Júlía Margrét Alexandersdóttir

Ekki hlusta á allt sem heil­inn seg­ir þér

Júlía Mar­grét Al­ex­and­ers­dótt­ir hef­ur lif­að með geð­hvörf­um í 15 ár. Hún hef­ur kljáðst við dekksta lit þung­lynd­is og fund­ið fyr­ir und­ur­vellíð­an í man­íu. Í ferl­inu hef­ur Júlía lært að stund­um á hvorki hjart­að né heil­inn at­kvæð­is­rétt. „Stund­um eru það annarra manna heil­ar og annarra manna hjörtu sem vita best.“
Íslendingar vísa trans konu á flótta frá Bandaríkjunum úr landi
3
Fréttir

Ís­lend­ing­ar vísa trans konu á flótta frá Banda­ríkj­un­um úr landi

Kona sem er á flótta frá Banda­ríkj­un­um með son sinn sótti um al­þjóð­lega vernd á Ís­landi. Fyr­ir Út­lend­inga­stofn­un lýsti hún því hvernig hat­ur hafi far­ið vax­andi þar í landi gagn­vart kon­um eins og henni – trans kon­um – sam­hliða að­gerð­um stjórn­valda gegn trans fólki. Sjálf hafi hún orð­ið fyr­ir að­kasti og ógn­un­um. „Með hverj­um deg­in­um varð þetta verra og óhugn­an­lega.“

Mest lesið í mánuðinum

Sælukot hagnast um tugi milljóna en starfsfólk og foreldrar lýsa skorti
4
Rannsókn

Sælu­kot hagn­ast um tugi millj­óna en starfs­fólk og for­eldr­ar lýsa skorti

Einka­rekni leik­skól­inn Sælu­kot, sem hef­ur feng­ið millj­arð króna í op­in­ber fram­lög síð­asta ára­tug, hef­ur hagn­ast vel og nýtt pen­ing­ana til að kaupa fast­eign­ir fyr­ir stjórn­ar­for­mann­inn. Stjórn­end­ur leik­skól­ans segja mark­mið­ið vera að ávaxta rekstr­araf­gang, en fyrr­ver­andi starfs­menn og for­eldr­ar nem­enda kvarta und­an langvar­andi skorti. Skól­an­um var ný­lega lok­að tíma­bund­ið vegna óþrifn­að­ar og mein­dýra.
Hollt mataræði lykilatriði að góðri heilsu
6
Fréttir

Hollt mataræði lyk­il­at­riði að góðri heilsu

Ax­el F. Sig­urðs­son, sér­fræð­ing­ur í hjarta­lækn­ing­um, hef­ur skoð­að tengsl fæðu og lífs­stíls við sjúk­dóma, einkum hjarta- og æða­sjúk­dóma. Tal­að hef­ur ver­ið um að lífs­stíls­sjúk­dóm­ar séu stærsta ógn­in við heilsu fólks og heil­brigðis­kerfi til næstu ára­tuga. Ax­el seg­ir að fólk geti breytt miklu með hollu mataræði og hreyf­ingu. Fé­lags­leg tengsl séu líka mik­il­væg. Hann ráð­legg­ur hreina fæðu til að sporna við kvill­um.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár