Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 7 árum.

Fótbolti og fegurð í Frakklandi

Þús­und­ir Ís­lend­inga munu halda til Frakk­lands að fylgj­ast með lands­lið­inu taka þátt í bar­átt­unni um Evr­ópu­meist­ara­titil­inn. Um átta pró­sent Ís­lend­inga sóttu um miða á leik­ina, eða nærri 27 þús­und manns, en fyr­ir hvern leik hef­ur Ís­land mögu­leika á um 7–15 þús­und miða. En hvað get­ur mað­ur dund­að sér við á með­an mað­ur bíð­ur eft­ir leikn­um?

Fyrsti leikur Íslands verður 14. júní á móti Portúgal og í borginni Saint Étienne. Borgin á uppruna sinn að rekja til klausturbyggðar á tólftu öld sem síðar varð að bæ þekktum fyrir vopnaframleiðslu og kolanámur. Það er ekki tilviljun að leikir fari fram þar, fótboltaklúbbur bæjarins er einn sá stærsti í Frakklandi og hefur unnið frönsku deildina tíu sinnum. (Það er kannski ekki skrítið að Étienne hafi orðið mikilvæg fyrir knattspyrnu í Frakklandi, fótboltaklúbburinn Arsenal var stofnaður af verkamönnum sem unnu í vopnaverksmiðjum og Liverpool, Manchester og önnur bæjarfélög á Englandi sem eiga góð lið, gamlir verkamanna- og kolanámubæir líka).

Ráfi maður um í borginni má sjá margar fallegar byggingar. Hægt er að taka sporvagninn framhjá La Martre eða dómkirkjunni og njóta þannig arkitektúrs gamla bæjarins. Nútímalistasafnið þykir einnig vera nokkuð gott á franskan, og þar með alþjóðlegum, mælikvarða. En sennilega, ef heimsókn á námuverkamannasafnið eða vopnaframleiðslusafnið heillar ekki, er best að fara í útsýnisferð og skoða annaðhvort Alpana eða gömlu kastalana í nágrenninu. Chateau de Rochetaillée þykir býsna flottur.

Lyon er í klukkustundarkeyrslu frá Saint Étienne og umtalsvert stærri borg. Þar eru enn glæsilegri byggingar, fleiri veitingastaðir og söguminjar. Það væri hægt að gera margt vitlausara en að leigja hjól fyrir alla fjölskylduna og kanna þannig það helsta í héraðinu eftir að Íslendingar gjörsigra Portúgal, 3-0.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu