Elísabet Indra Ragnarsdóttir, dagskrárgerðarkona, hefur sagt upp störfum á Ríkisútvarpinu.
Elísabet er reynslumikil útvarpskona og hefur haft umsjón með þættinum Víðsjá um árabil. Hún hefur starfað í Efstaleiti undanfarin 14 ár en ákvað að segja starfi sínu lausu í dag.
Samkvæmt heimildum Stundarinnar tengjast starfslokin óánægju með starfsandann í Efstaleiti. Þá vega uppsagnir þeirra Sigríðar Stephensen og Hönnu G. Sigurðardóttur í síðustu viku einnig þungt.
Sjá einnig:
„Eins og þruma úr heiðskíru lofti“
Athugasemdir