Þessi færsla er meira en 3 ára gömul.

Hinum megin við Manhattan

Hinum megin við Manhattan

Ég var staddur í New York fyrir nokkrum árum. Í kringum árið 2008, áður en Uber var stofnað.

Leigubílstjórar í New York nenna ekki að keyra mann, þeir keyra bara ef maður er að fara í sömu átt og þeir vilja. Einn rússneskur sýndi mér þá góðmennsku að keyra mig yfir í Brooklyn.

Gatnamót, grænt ljós. Bíll keyrir í veg fyrir okkur, var seinn á þeim rauðu hinum megin frá. Það er afrískur ameríkani á tvítugsaldri sem keyrir. Rússi flautar. Sá þeldökki gefur honum svipljóta grettu.

Rússi mumlar "Ugly monkey", svo lágt að enginn gæti heyrt. Sá afríski keyrir í burtu.

2 mín síðar.

Sá afríski brunar framfyrir taxa og í veg fyrir bílinn, gengur út úr honum á miðri hraðbraut og að bílstjóranum, hallar sér fram í gegnum opna bílstjórarúðu og spyr kurteislega, "who the fuck are you calling an ugly monkey motherfucker".

Mér er það enn hulin ráðgáta hvernig í ósköpunum hann hefði getað heyrt þetta.

"Why don't you common out and I'll whip your white ass you racist motherfucker." Rússi þegir, mumlar, "you cross me at intersection ... ".

Ég hræddur afturí, þorði ekki að pípa mig inn í þetta.

Síðan fór drengurinn í burtu í bílinn en var ekkert að færa hann strax þannig að rússinn gat ekki farið. Sá þeldökki setti græjurnar í botn - harkalegt viðhorfs (attitude) rapp með djúpum bassa þannig að bílinn hjá rússanum titraði.

Ljúfur hversdagsleiki hinum megin við Manhattan brúna.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið á blogginu

Nýtt efni

Loka auglýsingu