Hversvegna finnst mér erfitt að skrifa?
Þessi spurning er eins og sú um himininn bláa - þegar maður spyr sig þessarar spurningar þá er það merki um að maður hafi rekist á vegg í skrifum.
"Af hverju sestu bara ekki niður og skrifar
Sem eru góðar fréttir og slæmar. Góðar; viðkomandi hefur verið að rembast mikið við að skrifa, og út af þessum rembingi er viðkomandi búin að finna vegginn. Slæmar; hvernig á að komast í gegnum vegg þegar maður:
-
A) Veit ekki hversu þykkur hann er
-
B) Úr hverju hann er gerður
-
C) Er ekki með þrefalda háskólagráðu í veggjabrjótun
-
D) Hefur mínus núll áhuga á veggjabrjótun
-
E) Netflix er með tilboðsmánuð
-
F) Tinder, Insta, Twitti og Fésið kalla á þig eins og deyjandi börn
-
G) Langaði aldrei að komast hvort eð er ekkert í gegnum vegginn þó, þúst að mar viti að fjársjóður lífs mans gæti leynst þar. (áhersla á 'gæti').
Þegar við þróum með okkur kjark og visku til að grafa aðeins lengra, þá sjáum við að veggurinn er ekki veggur, heldur spegill. Það er óþægilegt að horfa í beint í hann án þess að finna fyrir pepp-njálg eða niðurtals-njálg.
Spegill hefur þann mátt að gera okkur að fórnarlömbum eigin viðbragða. Þegar okkur tekst að standa fyrir framan hann og horfa um þagnarstund kemur í ljós að það er enginn veggur, heldur heill heimur sem hægt er að teygja sig í.
Að 'teygja sig í’ - hljómar einfalt. "Af hverju sestu bara ekki niður og skrifar bara," heyrist eitthvað segja þegar þú reynir að bera hendi að hliðinu. Í spegilmyndinni verður við ekki bara skömminni að bráð, því fyrir aftan hana er miklu stærra skrímsli sem heitir vanmat.
Jafnan flækist þegar þú ætlar að skrifa úr eigin hugmyndabrunni.
"Það geta allir skrifað." - Já, það er rétt. Jafnan flækist þegar þú ætlar að skrifa úr eigin hugmyndabrunni. Þessi sambræðingur af skömm, minnimáttarkennd, mikilmennskubrjálæði, vanmati formúlerast fljótlega í eitthvað óyfirstíganlegt. Við heyrum hvísl frá hugmynd, og eftir nokkrar sekúndur er þessi hugmynd orðin að sjálfslemjandi vendi.
Það er þarna sem listræn einkaþjálfun kemur inn. Í gegnum hana aðstoða ég þig við að búa til orðabók á þínu tungumáli - SVO AÐ - þú getir brotið niður veggina í viðráðanleg - órómantísk skref. Að skrifa er ein aðferð til að mæta augunum í speglinum og sjá fjársjóðinn.
Athugasemdir