Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 6 árum.

Samráðsleysi við fatlað fólk

Samn­ing­ur Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks var full­gild­ur á síð­asta ári, án sam­ráðs við fatl­að fólk. Enn á eft­ir að inn­leiða samn­ing­inn í ís­lensk lög og dóm­stól­ar dæma ekki sam­kvæmt hon­um.

Samráðsleysi við fatlað fólk
Gerard Quinn Mynd: Heiða Helgadóttir

Alþingi fullgilti Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks þann 20. september á síðasta ári, rúmum níu árum eftir að hann var undirritaður, án samráðs við fatlað fólk – þrátt fyrir að skýrt komi fram í sáttmálanum að það eigi að hafa náið samráð við fatlað fólk þegar ákvarðanir eru teknar um þeirra hagi. Sáttmálinn hefur enn ekki verið innleiddur í íslensk lög og dómstólar eru ekki farnir að dæma í samræmi við sáttmálann. Þá eru alvarlegar þýðingarvillur í samningnum sem var fullgildur. 

„Mér hefur því miður ekki fundist vera pólitískur áhugi eða metnaður til að gera vel í þessum málaflokki,“ segir Rannveig Traustadóttir, prófessor í fötlunarfræði við Háskóla Íslands. 

Stundin fylgdist með fundi fulltrúa hagsmunasamtaka fatlaðs fólks með dr. Gerard Quinn, prófessor og mannréttindalögmanni, sem tók þátt í gerð Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Á fundinum var meðal annars farið yfir hlutverk fatlaðs fólks við innleiðingu og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu