Þessi grein birtist fyrir rúmlega 9 mánuðum.

Inga þakkar Samherja fyrir en telur að kvótakerfið hafi lagt landið í auðn

Inga Sæ­land, formað­ur Flokks fólks­ins, seg­ist hafa slíðr­að sitt póli­tíska sverð þeg­ar hún söng á Fiski­deg­in­um mikla á Dal­vík um helg­ina. Hún skrif­ar þakk­ar­grein í Mogg­ann í dag og þakk­ar Sam­herja fyr­ir Fiski­dag­inn. Sam­kvæmt Ingu kom hún ekki fram á Fiski­deg­in­um sem stjórn­mála­mað­ur held­ur sem mann­eskja í sum­ar­fríi.

Inga þakkar Samherja fyrir en telur að kvótakerfið hafi lagt landið í auðn
Slíðraði pólitíska sverðið og var manneskja Inga Sæland segist hafa slíðrað sitt pólitíska sverð og verið manneskja á Fiskideginum mikla þar sem hún söng Tinu Turner lag. Hún segir kvótakerfið það versta sem komið hefur fyrir íslenskt samfélag. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég er bara að þakka þeim fyrir Fiskidaginn. Ef það væri ekki fyrir Samherja þá væri enginn Fiskidagur. Ég var ekki að nota þessa grein í pólitískum tilgangi þó ég sé ekki sammála þeim og þeirri stefnu sem þeir reka. Ég er búinn að skamma þá og ég er búinn að rífast gegn kvótakerfinu og hvernig það hefur lagt landið í auðn. Kvótakerfið er það versta sem hefur komið fyrir okkur sem samfélag, segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, aðspurð um þátttöku sína á tónleikunum á Fiskideginum mikla á Dalvík um helgina og þakkagrein sem hún skrifar í Morgunblaðið í dag

„Ég held að engir peningamenn gefi peningana sína af því bara.“
Inga Sæland,
þingmaður og formaður Flokks fólksins

Í greininni þakkar Inga Samherja fyrir Fiskidaginn. Samherji hefur um árabil staðið straum á stórum hluta af kostnaðinum við Fiskidaginn: Greitt fyrir tónleikana á hátíðinni, flugeldasýninguna, barnaskemmtunina og gefið fiskinn sem í boði er fyrir gesti.

Niðurlag greinar Ingu í Mogganum er svona: „Ég var spurð að því hvort ég hefði gert mér grein fyrir því hverjir það væru sem stæðu undir kostnaði við Fiskidaginn mikla áður en ég ákvað að taka lagið. Ég vil svara þessum ágæta manni og öllum öðrum á einu bretti: Að sjálfsögðu veit ég það eins og öll þjóðin veit það. Samherji hefur kostað þessa stórkostlegu hátíð sem nú var haldin í tuttugasta sinn. Fyrir það á Samherji þakkir skildar.

Fyrsti Fiskidagurinn frá 2019

Á sínum tíma var sú hugmynd meðal annars uppi að bjóða sjávarútvegsráðherra Namibíu á hátíðina en hann er meðal þeirra namibísku áhrifamanna sem sitja í gæsluvarðhaldi þar í landi grunaðir um að hafa þegið mútur frá Samherja í skiptum fyrir kvóta.

Fiskidagurinn mikli hefur ekki verið haldin síðustu ár vegna Covid-faraldursins og fór nú fram í fyrsta skipti frá árinu 2019. Árið 2019 voru aðstandendur Fiskidagsins ósáttir við að Fiskidagurinn hafi verið til umfjöllunar í tengslum við mútumál Samherja í Namibíu. 

Heilsíðuauglýsing með þökkumÍ Mogganum í dag er líka birt heilsíðuauglýsing frá Samherja með þökkum fyrir komuna á Fiskidaginn mikla. Hátt í 7000 gestir komu á Fiskidaginn.

Segist hafa komið fram sem manneskjan Inga Sæland

Aðspurð segist Inga hafa verið í sumarfríi sem þingmaður þegar hún söng á hátíðinni - hún tók Tinu Turner lag - og að hún hafi ákveðið að gleyma pólitísku argaþrasi um hríð og vera bara glöð. „Mér er alveg sama þó ég heiti alþingismaður en ég er líka manneskja. Ég má líka eiga annað líf. [...] Það væri frekar dapurt ef maður, á fullorðsinsaldri, hefði ekki neitt annað fram að færa í lífinu en að vera í pólitík. [...] Við eigum okkar sex vikna sumarfrí. [...] Ég hreinsaði líkama og sál af þessu argaþrasi þarna í nokkra daga.

Þegar Inga er spurð að því hvort þingmenn fari einhvern tímann í fríi frá því að vera þingmenn segir hún. „En þarna var ég bara Inga Turner eða Tina Sæland og mér fannst það bara ótrúlega skemmtilegt. [...] Enginn er alvondur og það á að þakka fyrir það sem vel er gert.

Hún segist aðspurð ekkert hafa fengið greitt fyrir lagið sem hún söng. „Þetta var bara fyrir ánægjuna [...] Ég er þakklát fyrir að hafa fengið þetta tækifæri að upplifa þetta ævintýri. Ég mun aldrei gleyma þessu. 

Þegar Inga er spurð að því hvort hún telji ekki að stórfyrirtæki gefi ekki oft peninga, veiti styrki eða greiði fyrir samfélagsverkefni í ákveðnum PR-tilgangi segir hún. „Ég held að engir peningamenn gefi peningana sína af því bara. Ég held að það sé alltaf eitthvað á bak við það. Ég held að það sé bara common sense. Hvort svo sem fyrirtækið heiti Samherji, Brim, Norðurál eða eitthvað annað. Það er enginn sem gefur peninga bara til að gefa peninga.

Ísland og veruleikinn í Verbúðinni

Inga segir að það beri hins vegar að þakka Samherja fyrir það góða sem fyrirtækið gerir. Hún segir að án Samherja þá væri Dalvík ekki það sem bærinn er í dag. „Samherji er sá aðili sem hefur gert það að verkum að Dalvíkurbyggð blómstrar í dag. Það væri óskandi að kvótakerfið hefði ekki orðið til þess að öðrum dásamlegum sveitarfélögum allt í kringum landið er að blæða út.

Inga nefnir sérstaklega Ólafsfjörð sem dæmi um þetta, nágrannabæ Dalvíkur, þar sem lítil útgerð er stunduð í dag. „Ég er að horfa upp á litla bæjarfélagið, Ólafsfjörð, blæða út. Eins og svo mörgum öðrum blómlegum byggðum sem áður voru að blómstra.

Hún talar um sjónvarpsþættina Verbúðina sem dæmi um þá þróun á Íslandi sem kvótakerfið hefur leitt til og hún hefur gagnrýnt. „Verbúðin segir allt sem segja þarf. Verbúðin var náttúrulega bara snilld. Við vitum alveg hvernig búið er að mergsjúga litlu bæjarfélögin úti á landi. Núna síðast er búið að selja 70 prósent af Rammanum á Siglufirði til Ísfélagsins í Vestmannaeyjum. Dettur nokkrum í hug að þeir haldi áfram að gera út frá Siglufirði? Tröllaskagi er algjörlega að þorna upp hvað lítur að sjávarútvegi. Þessi þróun er skelfileg

Sjónvarpsþættirnir sem Inga vísar til hverfast meðal annars um það hvernig togari er seldur burt úr sjávarplássi með tilheyrandi afleiðingum fyrir byggðina. Sagan sem er sögð í þáttunum minnir á hvernig togarinn Guðbjörgin var seldur frá Ísafirði í lok síðustu aldar eftir að Samherji keypti skipið. 

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Á. skrifaði
    Flokkur Fólksins er til sölu og Inga Sæland var greinilega á útsölu á Fiskideginum mikla. Þessi flokkur mun svíkja lægstu stéttirnar við fyrsta tækifæri sem gefst, og sýna hollustu sína í verki við auðvaldið.
    0
  • GEK
    Guðrún Emilía Karlsdóttir skrifaði
    Já já sko við þurfum að fá karla sem ræna okkur ekki alveg innað nára
    0
  • VSE
    Virgil Scheving Einarsson skrifaði
    Þetta er Viðbjoður af versta tagi kvað Þetta Felag hefur komist upp með, og ekki er neitt gert Ja Glæpamenn af Grofasta tagi. Það er mikið að a Islandi þegar svona Firar Vaða uppi. Flokkurin stendur með þeim. Þatturin sem var a RUV fletti ofan af þessum Viðbjodi Var MEISTARA Verk, Folk sem lagði mikla vinnu og Metnað i að Fletta ofan af þessari Mafiu, var Hrakið burt fra RUV. Jimmy Hoffa Var latin Hverfa i USA þar Ættu Forkalfar Samherja a hættu að hljota sömu ÖRLÖG. FARIÐ HEFUR FE BETRA.
    1
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Þakka það "góða" sem vondi aðilinn gerir ?????

    Gott ódýrt PR og allt i dúllí fína ???

    Þið eruð illa klikkuð og á öngvan hátt treystandi.

    Barngóði handrukkarinn gefur barnaheimilunum rausnarlegar gjafir og styrki einu sinni á ári en hendir fjölskyldum út af heimilinum sínum 362 daga á ári. Nei ég á ekki við Samherja heldur bankana... þó svo samlíkingin eigi þar líka við.

    Þú getur ekki stutt eða þakkað þjófinum þegar hann skilar bara hluta þýfisins.

    Íslensk spilling í hnotskurn... og bankar og útgerðaraðilar og allir vondu karlarnir ykkar eru afleiðingar spillingarinnar.... ekki orsakirnar.

    Þessvegna er ekki hægt að hjálpa íslendingum... því þeir sjálfir eyðileggja alla möguleika á betra og réttlátara þjóðfélagi.

    Meðan kerfið er spillt eru allar leiðir dauðadæmdar... og kerfið okkar er spilltara en það var árið 2000.... og "góða fólkið" þorir ekki að horfa inn í skápana... heldur heldur bullbaráttunni áfram..... hún virkar ekki því henni er ekki beint að orsökunum.

    Og upphæðin um duldar fjárhæðir í aflandsleikjum er röng... ekki 40 til 60 milljarðar... heldur vel yfir 100 milljarðar ... aflandseyjaskilgreiningin er nefnilega röng... hún er nálgunarfræðileg... ekki landafræðileg.

    Orsakir íslenskrar spillingar ?

    Alþingi og framkvæmdarvaldið.
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Samherji gegndi lykilhlutverki í þessu hneyksli“ - Opið bréf til forsætisráðherra frá Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

„Sam­herji gegndi lyk­il­hlut­verki í þessu hneyksli“ - Op­ið bréf til for­sæt­is­ráð­herra frá Namib­íu

Slétt­um fjór­um ár­um eft­ir að ljóstr­að var upp um fram­ferði Sam­herja í Namib­íu kall­ar leið­togi namib­ísku stjórn­ar­and­stöð­unn­ar eft­ir því að ís­lensk stjórn­völd taki ábyrgð, í opnu bréfi til for­sæt­is­ráð­herra Ís­lands. Hundrað millj­óna rík­is­styrk­ur til Sam­herja vek­ur reiði í Namib­íu.
Lögmaður namibískra sjómanna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“
RannsóknirSamherjaskjölin

Lög­mað­ur namib­ískra sjó­manna við Sam­herja: „Borg­ið það sem þið skuld­ið þeim“

Lög­mað­ur skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmd­ar voru bæt­ur vegna ólög­legr­ar upp­sagn­ar Sam­herja­fé­lags í Namib­íu, kall­ar eft­ir því að Ís­lend­ing­ar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namib­íu. Það stand­ist enga skoð­un að Sam­herji hafi ekki vit­að af mál­inu. For­stjóri Sam­herja lof­aði því að fyr­ir­tæk­ið myndi sjá til þess að stað­ið yrði við all­ar skuld­bind­ing­ar og sér­stak­lega hug­að að sjó­mönn­um sem starf­að hefðu fyr­ir fé­lag­ið.
Namibískir sjómenn stefna Samherjamanni eftir tveggja ára bið eftir bótum
FréttirSamherjaskjölin

Namib­ísk­ir sjó­menn stefna Sam­herja­manni eft­ir tveggja ára bið eft­ir bót­um

Á þriðja tug namib­ískra sjó­manna sem voru dæmd­ar bæt­ur vegna ólög­mætr­ar upp­sagn­ar Sam­herja­fé­lags í Namib­íu, hafa enn ekki feng­ið þær greidd­ar. Lög­mað­ur þeirra gagn­rýn­ir for­svars­menn Sam­herja fyr­ir að gang­ast ekki við ábyrgð sinni og hef­ur nú stefnt ein­um stjórn­anda Sam­herja og dótt­ur­fé­lagi þess, fyr­ir dóm í Namib­íu.
Samherji vildi bjóða „Stóra manninum“ frá Namibíu á Fiskidaginn
FréttirSamherjaskjölin

Sam­herji vildi bjóða „Stóra mann­in­um“ frá Namib­íu á Fiski­dag­inn

Fiski­dag­ur­inn mikli á Dal­vík verð­ur hald­inn aft­ur í fyrsta skipti í ár frá því 2019 og styrk­ir Sam­herji há­tíð­ina. Út­gerð­ar­fé­lag­ið Sam­herji hef­ur ver­ið helsti styrktarað­ili Fiski­dags­ins í gegn­um tíð­ina. Ár­ið 2012 ræddu starfs­menn Sam­herja um mögu­leik­ann á því að bjóða sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra Namib­íu, Bern­h­ard Es­au, á Fiski­dag­inn og var það sögð vera sér­stök ósk Þor­steins Más Bald­vins­son­ar að hann væri á Ís­landi í kring­um þenn­an dag.

Mest lesið

Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
1
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Þórður Snær Júlíusson
4
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Elsku ráð­herr­ar, hætt­ið að gefa Ís­land

Nú stend­ur til að gefa norsk­um lax­eld­is­fyr­ir­tækj­um ís­lenska firði til eign­ar. Þeg­ar er bú­ið að gefa ör­fá­um út­gerð­ar­fjöl­skyld­um hundruð millj­arða króna hið minnsta af fé sem ætti að hafa far­ið í sam­fé­lags­lega upp­bygg­ingu. Vilji er til þess að gefa einka­að­il­um vindorku en eng­inn vilji til þess að rukka ferða­þjón­ustu fyr­ir nýt­ingu á al­manna­g­æð­um. Hvað geng­ur ís­lensk­um ráða­mönn­um eig­in­lega til?

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
1
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú
3
Greining

Sleppti mál­tíð­um til þess að kom­ast frá Ás­brú

„Stans­laust von­leysi vakn­ar um leið og þú mæt­ir,“ seg­ir ung­ur venesú­elsk­ur hæl­is­leit­andi um Ás­brú. Þar hafi ver­ið ómögu­legt fyr­ir hann, eða nokk­urn mann, að að­lag­ast ís­lensku sam­fé­lagi – sem er at­riði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hef­ur sagst vilja fleiri bú­setu­úr­ræði á borð við Ás­brú.
Fyrirtækið sem Kvika keypti kom að lánum til félags konu Ármanns
6
ViðskiptiKvika og Ortus

Fyr­ir­tæk­ið sem Kvika keypti kom að lán­um til fé­lags konu Ár­manns

Breska fyr­ir­tæk­ið Ort­us Capital, sem Ár­mann Þor­valds­son, nú­ver­andi for­stjóri al­menn­ings­hluta­fé­lags­ins Kviku, var hlut­hafi í var einn af lán­veit­end­um breska kráar­fyr­ir­tæk­is­ins Red Oak Taverns, sem eig­in­kona Ár­manns á hlut í. Þetta fyr­ir­tæki varð síð­ar að Kviku Secu­rities í Bretlandi og keypti það breskt lána­fyr­ir­tæki af við­skipta­fé­lög­um fyr­ir tveim­ur ár­um fyr­ir millj­arða króna.
Umsækjandi hjá MAST vill rökstuðning: „Ég er vonsvikinn“
7
FréttirLaxeldi

Um­sækj­andi hjá MAST vill rök­stuðn­ing: „Ég er von­svik­inn“

Eg­ill Stein­gríms­son dýra­lækn­ir var ann­ar af um­sækj­end­un­um um sviðs­stjórastarf hjá Mat­væla­stofn­un sem með­al ann­ars snýst um eft­ir­lit með lax­eldi. Fiska­líf­eðl­is­fræð­ing­ur­inn Þor­leif­ur Ág­ústs­son var ráð­inn fram yf­ir hann og vakti ráðn­ing­in at­hygli inn­an MAST vegna já­kvæðra skrifa hans um lax­eldi hér á landi.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
5
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
6
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
8
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Ráðning stjórnanda til MAST vekur athygli: „Ég er fagmaður"
10
FréttirLaxeldi

Ráðn­ing stjórn­anda til MAST vek­ur at­hygli: „Ég er fag­mað­ur"

MAST til­kynnti starfs­mönn­um sín­um um það á mið­viku­dag­inn að bú­ið væri að ráða Þor­leif Ág­ústs­son sem nýj­an sviðs­stjóra yf­ir með­al ann­ars fisk­eld­is­deild­ina hjá stofn­un­ina. Þor­leif­ur hef­ur skrif­að grein­ar þar sem hann tal­ar fyr­ir lax­eldi í sjókví­um. Þor­leif­ur seg­ist vera vís­inda­mað­ur og að hann taki ekki af­stöðu. For­stjóri MAST, Hrönn Jó­hann­es­dótt­ir vill ekki ræða um ráðn­ing­una þeg­ar eft­ir því er leit­að.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár