Þessi grein birtist fyrir rúmlega 11 mánuðum.

Leigufélagið Alma vill sækja þriggja milljarða fjármögnun

Alma leigu­fé­lag held­ur áfram að bjóða fjár­fest­um upp á skulda­bréf og víxla til að fjár­magna fé­lag­ið. Stjórn­ar­formað­ur fé­lags­ins, Gunn­ar Þór Gísla­son, hef­ur sagt að snið­ganga líf­eyr­is­sjóða á fé­lag­inu grafi und­an hús­næð­is­mark­aðn­um en Alma hef­ur reynt að fá þá til að fjár­festa í fé­lag­inu. Formað­ur VR. Ragn­ar Þór Ing­ólfs­son, er á önd­verð­um meiði og seg­ir líf­eyr­is­sjóð­ina eiga að snið­ganga Ölmu.

Leigufélagið Alma vill sækja þriggja milljarða fjármögnun
Umræða um Ölmu og lífeyrissjóðina Nokkur umræða hefur verið um réttmæti þess að lífeyrissjóðir fjárfesti í leigufélaginu Ölmu, sem Gunnar Þór Gíslason, á. Alma hefur höfðað til lífeyrissjóðanna við útgáfu skuldabréfa og víxla.

Íbúðafélagið Alma heldur útboð á víxlum í vikunni til að fjármagna félagið. Útboðið er upp á að allt 3 milljarða króna og býður félagið hæstu mögulegu vexti. Um er að ræða lokað útboð sem er aðeins fyrir hæfa fjárfesta og fagfjárfesta. Greint er frá útboðinu í tilkynningu frá félaginu. Útboðið bendir til að Alma eigi í nokkrum erfiðleikum með að fjármagna sig þar sem vextirnir sem boðið er upp á eru svo háir. Um er að ræða skammtímafjármögnun til þriggja mánaða. 

Ljóst er að Alma er meðal annars að reyna að höfða til lífeyrissjóða í útboðinu en nokkur umræða hefur verið um fjárfestingar þeirra í skuldabréfum og víxlum Ölmu. Félagið hefur reynt að fá lífeyrissjóðina, meðal annars Lífeyrissjóð Verslunarmanna, til að fjárfesta í skuldabréfum félagsins en án árangurs. Lífeyrissjóðurinn Festa er einn sjóður sem hefur fjárfest í félaginu, fyrir tæplega 3 milljarða króna. 

„Það er bara gríðarlega mikilvægt að eftirlaunasjóðirnir okkar verði ekki notaðir til að fjárfesta í neinu sem tengist þessari siðlausu fjölskyldu.“
Ragnar Þór Ingólfsson,
formaður VR

Gagnrýnir tal um sjóðirnir sniðgangi Ölmu

Alma leigufélag hefur verið umtalað á síðustu mánuðum í kjölfarið á fregnum af stífum leiguhækkunum hjá félaginu í lok síðasta árs, bæði hjá íslenskum leigjendum sem og hjá flóttamönnum frá Úkraínu. Síðan þá hefur verið talsverð umræða um félagið og hafa forsvarsmenn þess reynt að réttlæta leiguhækkanirnar. Í maí skrifaði Gunnar Þór Gíslason, stjórnarformaður og stærsti hluthafi Ölmu, meðal annars grein á Vísi sem hann kallaði „Málsvörn leigusala

Í greininni sagði Gunnar Þór meðal annars að ekki væri gott að sumir verkalýðsforingjar hafi kallað eftir því að lífeyrissjóðir ættu að sniðganga skuldabréf Ölmu. „Sumir verkalýðsforingjar og aðrir sjálfskipaðir talsmenn leigjenda sem hafa haft sig mest í frammi í umræðunni um leigumarkaðinn hafa talað fyrir leiguþaki eða leigubremsu. Það hafa einnig komið fram kröfur úr sömu átt að lífeyrissjóðir skuli selja öll skuldabréf sem þeir eiga í Ölmu og alls ekki taka þátt í frekari fjármögnun félagsins. Slík „úrræði“ munu aðeins draga úr framboði á leiguhúsnæði og auka vandann á húsnæðismarkaði til lengri tíma litið.“

Mikilvægt að taka ekki þáttRagnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir mikilvægt að lífeyrissjóðirnir taki ekki þátt í fjármögnun Ölmu leigufélags.

Lífeyrissjóðirnir haldi að sér höndum

Með þessum orðum var Gunnar Þór meðal annars að vísa til þess sem Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hefur sagt um fjárfestingar í Ölmu en hann hefur talað gegn því að Lífeyrissjóður verslunarmanna fjárfesti í félaginu. VR er skipunaraðili í stjórn sjóðsins. „Við sem skipunaraðilar í stjórn sjóðsins höfum eftirlitshlutverki að gegna og framganga Ölmu brýtur gegn öllum þeim viðmiðum sem stjórnin hefur sett sér. Við munum því klárlega tala gegn því að sjóðurinn fjárfesti í félögum eins og Ölmu þó við ráðum því auðvitað ekki ein á endanum.“

Aðspurður um þetta víxlaútboð Ölmu segir Ragnar Þór að hann muni áfram beita sér gegn því, þrátt fyrir umræðu og rökstuðning Gunnars Þórs fyrir fjárfestingum lífeyrissjóða í félaginu, að sjóðirnir setji fé í Ölmu. „Það er bara gríðarlega mikilvægt að eftirlaunasjóðirnir okkar verði ekki notaðir til að fjárfesta í neinu sem tengist þessari siðlausu fjölskyldu.“

Þriðja sjónarmiðið, kom fram í máli Baldurs Stefánssonar hjá eignastýringu Festu lífeyrissjóðs í viðtali. Hann fer bil þeirra beggja, Gunnars Þórs og Ragnars, þar sem hann segist skilja gagnrýni á Ölmu á sama tíma og hann segir að lífeyrissjóðir þurfi að fjármagna leigufélögin í landinu. „Þetta er vandrataður vegur. Ef lífeyrissjóðirnir myndu allir bara alls ekki fjármagna leigufélögin þá er snúið að þau gætu verið til,“ sagði hann í lok síðasta árs. 

Óljóst af hverju Alma þarf þessa fjármögnun

Út frá tilkynningunni um útboðið er óljóst til hvers Alma þarf hana, í hvað á að nota peningana. Vextirnir sem félagið greiðir fyrir fjármögnunina eru hins vegar mjög háir, eins og segir í tilkynningunni: „Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu samþykktu flötu vöxtum. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og verða skráðir á Nasdaq Iceland. Alma íbúðafélag hf. áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.“ 

Alma hefur áður á þessu ári farið í víxlaútboð til skamms tíma, tveggja mánaða, og er líklegt að leigufélagið sé að rúlla skammtímavíxlum til að standa við skuldbindingar sínar í stað þess að fá langtímafjármögnun á félagið. Ekki er opinbert hvaða aðilar það eru sem kaupa skuldabréf og víxla félagsins. 

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Eru Ölmumenn ekki neðal þeirra bænda sem börðust gegn tollfrjálsum innflutningi kjúklinga frá Úkraínu til að bæta afkomu sína?
    0
  • Hlynur Vilhjálmsson skrifaði
    Hagnaðardrifinn leigufélagarekstur gengur ekki upp fyrir hagsmuni samfélags. Það er of mikil græðgi á markaðnum til þess að hægt sé að leyfa fólki eins og þessum að fíflast með lífshagi venjulegs fólks.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Leigufélagið Alma

Leigufélagið Alma stærir sig af samfélagslegri ábyrgð og segir ávinning hluthafa og almennings fara saman
GreiningLeigufélagið Alma

Leigu­fé­lag­ið Alma stær­ir sig af sam­fé­lags­legri ábyrgð og seg­ir ávinn­ing hlut­hafa og al­menn­ings fara sam­an

Í nýj­um árs­reikn­ingi Leigu­fé­lags­ins Ölmu svar­ar fé­lag­ið fyr­ir leigu­verðs­hækk­an­ir sín­ar. Fé­lag­ið und­ir­strik­ar að það sé sam­fé­lags­lega ábyrgt og rök­styð­ur að hækk­an­ir leigu­verðs séu stund­um bæði eðli­leg­ar og óhjá­kvæmi­leg­ar. Fé­lag­ið hef­ur ver­ið harð­lega gagn­rýnt fyr­ir ok­ur.
Saga Olgu: „Mér líður eins og svikara“
VettvangurLeigufélagið Alma

Saga Olgu: „Mér líð­ur eins og svik­ara“

Úkraínsk­ir flótta­menn í hótel­íbúð­um Ölmu við Lind­ar­götu þurfa að flytja út úr þeim í mars. Samn­ing­ur­inn sem gerð­ur var við Ölmu er einn versti og óhag­stæð­asti leigu­samn­ing­ur sem ís­lenska rík­ið hef­ur gert. Í hús­inu búa úkraínsk­ir flótta­menn sem hafa lent sér­stak­lega illa í stríð­inu í Úkraínu. Með­al þeirra eru Olga, sem gat ekki ver­ið við­stödd jarð­ar­för for­eldra sinna vegna flótt­ans og Di­ma, en fjöl­skylda hans hef­ur þrisvar sinn­um þurft að flýja stríðs­átök Rússa.
Þúsund verðtryggðir leigusamningar skila Ölmu 230 milljónum á mánuði
GreiningLeigufélagið Alma

Þús­und verð­tryggð­ir leigu­samn­ing­ar skila Ölmu 230 millj­ón­um á mán­uði

Leigu­fé­lag­ið Alma hef­ur um eitt þús­und heim­ili til út­leigu til ein­stak­linga. Íbúð­irn­ar eru að­al­lega stað­sett­ar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Suð­ur­nesj­um; um 800 íbúð­ir. Í hverj­um mán­uði tikka 220 millj­ón­ir inn í kass­ann vegna þess­ara íbúða, auk þess sem virði þeirra hef­ur vax­ið veru­lega á síð­ustu ár­um. Nær all­ir samn­ing­ar Ölmu við ein­stak­linga eru verð­tryggð­ir.
„Það sem er mikilvægast er að við erum öll á lífi“
VettvangurLeigufélagið Alma

„Það sem er mik­il­væg­ast er að við er­um öll á lífi“

Úkraínsku flótta­menn­irn­ir Volody­myr Cherniav­skyi og kona hans, Snizh­ana Prozhoha, búa ásamt tveim­ur dætr­um sín­um í íbúð á efstu hæð­inni í blokk leigu­fé­lags­ins Ölmu í Urriða­holts­stræti í Garða­bæ. Fjöl­skyld­an flutti til Ís­lands í mars í fyrra eft­ir að rúss­neski her­inn réðst inn í Úkraínu. Þau flúðu frá Kiev land­leið­ina til borg­ar­inn­ar Lviv í vest­ur­hluta lands­ins og komu sér það­an yf­ir til Pól­lands og svo til Ís­lands. Ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­inn­ar fékk að fylgj­ast með þeim í leik og starfi í nokk­ur skipti í byrj­un janú­ar og kynn­ast lífi þeirra á Ís­landi.

Mest lesið

„Það er svo ótrúlega helvíti erfitt að fara frá honum“
6
Viðtal

„Það er svo ótrú­lega hel­víti erfitt að fara frá hon­um“

Krist­inn Hrafns­son ræð­ir stöð­una á mál­um Ju­li­an Assange en um­ræð­an byrj­aði að breyt­ast eft­ir að Nils Melzer, þá­ver­andi skýrslu­gjafi Sam­ein­uðu þjóð­anna, gaf út á bók ár­ið 2022 og lagði áherslu á að eng­inn hef­ur axl­að ábyrgð á stríðs­glæp­um þeim sem Wiki­Leaks af­hjúp­aði á með­an Ju­li­an sæt­ir pynt­ing­um og yf­ir­völd fjög­urra landa hafa marg­brot­ið á hon­um. Bók­in hef­ur haft áhrif, jafn­vel á Joe Biden og Olaf Sholz.
Segir íslenskt kórastarf geta stuðlað að aukinni inngildingu
7
FréttirForsetakosningar 2024

Seg­ir ís­lenskt kór­astarf geta stuðl­að að auk­inni inn­gild­ingu

Halla Hrund Loga­dótt­ir vill hvetja út­lend­inga til að „læra tungu­mál­ið okk­ar í gegn­um söng og ís­lensk­una.“ Halla Hrund seg­ir að við þurf­um að vera að­eins meira skap­andi í því hvernig við nálg­umst við­fangs­efni inn­flytj­enda. Hún var með­al for­setafram­bjóð­enda sem mættu í pall­borð­sum­ræð­ur í síð­asta þætti Pressu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
1
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú
7
Greining

Sleppti mál­tíð­um til þess að kom­ast frá Ás­brú

„Stans­laust von­leysi vakn­ar um leið og þú mæt­ir,“ seg­ir ung­ur venesú­elsk­ur hæl­is­leit­andi um Ás­brú. Þar hafi ver­ið ómögu­legt fyr­ir hann, eða nokk­urn mann, að að­lag­ast ís­lensku sam­fé­lagi – sem er at­riði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hef­ur sagst vilja fleiri bú­setu­úr­ræði á borð við Ás­brú.
Fyrirtækið sem Kvika keypti kom að lánum til félags konu Ármanns
8
ViðskiptiKvika og Ortus

Fyr­ir­tæk­ið sem Kvika keypti kom að lán­um til fé­lags konu Ár­manns

Breska fyr­ir­tæk­ið Ort­us Capital, sem Ár­mann Þor­valds­son, nú­ver­andi for­stjóri al­menn­ings­hluta­fé­lags­ins Kviku, var hlut­hafi í var einn af lán­veit­end­um breska kráar­fyr­ir­tæk­is­ins Red Oak Taverns, sem eig­in­kona Ár­manns á hlut í. Þetta fyr­ir­tæki varð síð­ar að Kviku Secu­rities í Bretlandi og keypti það breskt lána­fyr­ir­tæki af við­skipta­fé­lög­um fyr­ir tveim­ur ár­um fyr­ir millj­arða króna.
Þórður Snær Júlíusson
9
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Elsku ráð­herr­ar, hætt­ið að gefa Ís­land

Nú stend­ur til að gefa norsk­um lax­eld­is­fyr­ir­tækj­um ís­lenska firði til eign­ar. Þeg­ar er bú­ið að gefa ör­fá­um út­gerð­ar­fjöl­skyld­um hundruð millj­arða króna hið minnsta af fé sem ætti að hafa far­ið í sam­fé­lags­lega upp­bygg­ingu. Vilji er til þess að gefa einka­að­il­um vindorku en eng­inn vilji til þess að rukka ferða­þjón­ustu fyr­ir nýt­ingu á al­manna­g­æð­um. Hvað geng­ur ís­lensk­um ráða­mönn­um eig­in­lega til?
Umsækjandi hjá MAST vill rökstuðning: „Ég er vonsvikinn“
10
FréttirLaxeldi

Um­sækj­andi hjá MAST vill rök­stuðn­ing: „Ég er von­svik­inn“

Eg­ill Stein­gríms­son dýra­lækn­ir var ann­ar af um­sækj­end­un­um um sviðs­stjórastarf hjá Mat­væla­stofn­un sem með­al ann­ars snýst um eft­ir­lit með lax­eldi. Fiska­líf­eðl­is­fræð­ing­ur­inn Þor­leif­ur Ág­ústs­son var ráð­inn fram yf­ir hann og vakti ráðn­ing­in at­hygli inn­an MAST vegna já­kvæðra skrifa hans um lax­eldi hér á landi.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
4
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
7
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Ráðning stjórnanda til MAST vekur athygli: „Ég er fagmaður"
10
FréttirLaxeldi

Ráðn­ing stjórn­anda til MAST vek­ur at­hygli: „Ég er fag­mað­ur"

MAST til­kynnti starfs­mönn­um sín­um um það á mið­viku­dag­inn að bú­ið væri að ráða Þor­leif Ág­ústs­son sem nýj­an sviðs­stjóra yf­ir með­al ann­ars fisk­eld­is­deild­ina hjá stofn­un­ina. Þor­leif­ur hef­ur skrif­að grein­ar þar sem hann tal­ar fyr­ir lax­eldi í sjókví­um. Þor­leif­ur seg­ist vera vís­inda­mað­ur og að hann taki ekki af­stöðu. For­stjóri MAST, Hrönn Jó­hann­es­dótt­ir vill ekki ræða um ráðn­ing­una þeg­ar eft­ir því er leit­að.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár