Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 2 árum.

Forseti ASÍ gagnrýnir hópuppsögn á skrifstofu Eflingar

„Við mynd­um for­dæma öll fyr­ir­tæki sem stæðu fyr­ir slík­um gjörð­um,“ skrif­ar Drífa Snæ­dal, for­seti Al­þýðu­sam­bands Ís­lands, í yf­ir­lýs­ingu vegna ákvörð­un­ar stjórn­ar Efl­ing­ar um að segja upp öllu starfs­fólki stétt­ar­fé­lags­ins.

Forseti ASÍ gagnrýnir hópuppsögn á skrifstofu Eflingar
Harðorð Drífa Snædal, forseti ASÍ, er harðorð í yfirlýsingu sinni vegna ákvörðunar stjórnar Eflingar um að segja upp öllu starfsfólki skrifstofu stéttarfélagsins. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Hópuppsagnir að nauðsynjalausu eru ekkert annað en aðför að réttindum launafólks og ganga gegn því sem verkalýðshreyfingin stendur fyrir: Atvinnu- og afkomuöryggi,“ skrifar Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, á Facebook. Tilefnið er uppsögn stjórnar Eflingar á öllu starfsfólki stéttarfélagsins. „Við myndum fordæma öll fyrirtæki sem stæðu fyrir slíkum gjörðum.“

Fréttir bárust af því í gærkvöldi að ný stjórn Eflingar, með Sólveigu Önnu Jónsdóttur í fararbroddi, hefði ákveðið að segja upp öllu starfsfólki á skrifstofu félagsins. Til stæði að endurskipuleggja reksturinn. Málið hefur vakið athygli en mikil átök hafa verið á skrifstofu stéttarfélagsins að undanförnu. Sólveig Anna sagði af sér sem formaður félagsins seint á síðasta ári vegna þeirra en bauð sig fram að nýju og hlaut aftur kjör sem formaður. 

„Við myndum fordæma öll fyrirtæki sem stæðu fyrir slíkum gjörðum.“

Til umfjöllunar á vettvangi ASÍ

Drífa segir málið verði tekið upp á vettvangi Alþýðusambandsins og hvetur hún stjórnarmenn í Eflingu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna María Sverrisdóttir skrifaði
    Þetta er ömurleg staða en ef litið er til forsögunnar er þetta líklega óhjákvæmilegt.
    Það hefur ekki farið framhjá nokkrum sem fylgist með að frá því Sólveig Anna tók við formennsku í fyrra sinnið og byrjaði sína einörðu baráttu hafa fjármálaöflin óttast hana eins og heitan eldinn. Það hefur verið róið að því öllum árum að grafa undan henni.
    Nú er hún endurkjörin og bara síðan þá hafa allir séð að fyrri stjórn og margt starfsfólk skrifstofu hefur gert allt til að berjast vonlausri baráttu til að ófrægja hana og helst að draga eins og hægt er að hún fái að taka við.
    Hún fékk ömurlegar móttökur þegar hún tók við og var ekki einu sinni boðin velkomin.
    Það þarf afskaplega mikla bjartsýni til að ímynda sér að það verði starfhæft þarna nema byrja upp á nýtt. Ráða fólk á þeim forsendum að það fylgi stefnu stjórnarinnar.
    1
  • SVB
    Skjöldur Vatnar Björnsson skrifaði
    Drífa er bara gengin til liðs við hálauna elítu landsins og berst nú gegn því að lang launahægsta fólk landsins fái launahækkanir.
    0
  • Geir Birgir Guðmundsson
    Kona líttu þér nær ! það eru ekki nema ca. 2 mánuðir síðan að á milli 20 -30 manns var sagt upp störfum hjá Barnavernd Reykjavíkur vegna skipulagsbreitinga þá heyrðist ekkert í ykkur verkalíðsleiðtogunum, svo ég spyr hvað er svona merkilegt við þessar uppsagnir ?
    -3
  • Sigurður Sigmannsson skrifaði
    Ef ráðinn er framkvæmdastjóri af eigendum hjá stóru fyrirtæki og eigendur eru ánægðir með. Starfsfólk gerir uppreisn á móti þessum framkvæmdastjóra. Á þá að láta þá ráða og komast upp með það. Ég held að enginn stjórnandi fyrirtækis láti það yfir sig ganga ekki einu sinni stjórn ASÍ.
    -2
  • Jóhannes Ragnarsson skrifaði
    En það er auðséð að krataeðlissjúklingarnir, ekki síður en atvinnurekendaauðvaldið, eru trylltir af vonsku og ausa úr sjúkum skálum reiði sinnar yfir Sólveigu Önnu og spara hvurgi stóryrðin og brigslanir um stalínisma, ógnarstjórn og einræði, svo fátt eitt sé nefnt af morgunblaðslærðum fúkyrðum hinna jafnvægislausu krataeðlissálna.
    -2
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Þegar spilling yfirtekur kerfi þá er það hægt og hljótt og stutt af þeim spilltu sem fyrir eru. Þegar þrífa þarf til... þarf að byrja frá grunni... svo hinir spilltu sem fyrir eru spilli ekki nýliðunum. Merkilegt hversu háværir hinir þaulsetnu eru á þær aðferðir sem notaðar eru til að tryggja að skemmdu eplin séu fjarlægð... en hljóðir þegar skemmdu eplin skemma... ekki satt Drifa ? En kannski er ASI gersamlega frítt við spillingu þrátt fyrir vísbendingar og áratuga setu aðila sem hafa reynst flatir fyrir andstæðingnum.

    Byltingin í Eflingu sem Sólveig stóð fyrir í fyrra skiftið ... át börnin sín ... því henni láðist að fyrirbyggja og loka smitleiðunum... svo þetta er eina rétt sem er í stöðunni. Og eðlilega óttast gamlir hundar um sitt... þegar þeir missa handgengna aðila sem þeir gátu notað.

    Þið sjáið samanburðinn með samanburði á bankasölunni núna og áður... hér er spillingarkerfið að verja sig fyrir afleiðingum. Þar á bæ var aldrei tekið til og eftirlitsstofnanir jafn handónýtar og þegar bankarnir voru seldir fyrir áratugum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Baráttan um Eflingu

Formaður VR lagðist gegn ályktun sem fordæmdi Eflingar-uppsagnir
FréttirBaráttan um Eflingu

Formað­ur VR lagð­ist gegn álykt­un sem for­dæmdi Efl­ing­ar-upp­sagn­ir

Ragn­ar Þór Ing­ólfs­son, formað­ur VR, lagð­ist gegn því að trún­að­ar­ráð fé­lags­ins sendi frá sér álykt­un, þar sem hópupp­sagn­ir Efl­ing­ar voru for­dæmd­ar. Fyrr­ver­andi formað­ur VR seg­ist hissa á því að formað­ur VR geti op­in­ber­lega stutt for­manns­fram­bjóð­anda í Efl­ingu, en ekki gagn­rýnt það þeg­ar hún segi upp fé­lags­mönn­um hans.
Trúnaðarmenn Eflingar:  Sólveig Anna fer með fleipur um að samkomulag hafi náðst
FréttirBaráttan um Eflingu

Trún­að­ar­menn Efl­ing­ar: Sól­veig Anna fer með fleip­ur um að sam­komu­lag hafi náðst

Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, formað­ur Efl­ing­ar, fund­aði ekki sjálf með trún­að­ar­mönn­um starfs­manna á skrif­stofu Efl­ing­ar held­ur fól lög­manni stjórn­ar stétt­ar­fé­lags­ins að gera það. Trún­að­ar­menn mót­mæla því að um sam­ráð við þá hafi ver­ið að ræða við fram­kvæmd hópupp­sagn­ar starfs­manna Efl­ing­ar.
Hvað gerðist á skrifstofu Eflingar?
FréttirBaráttan um Eflingu

Hvað gerð­ist á skrif­stofu Efl­ing­ar?

Starfs­menn á skrif­stofu Efl­ing­ar lýsa van­líð­an og kvíða yf­ir mögu­leik­an­um á að Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir verði aft­ur kjör­in formað­ur. Starfs­ánægjuk­ann­an­ir á skrif­stof­unni sýna hins veg­ar al­menna ánægju starfs­fólk allt síð­asta ár. Starfs­manna­fund­ur í októ­ber varð hins veg­ar til þess að 90 pró­sent starfs­manna fann fyr­ir van­líð­an. Stund­in rek­ur sög­una um átök­in inn­an Efl­ing­ar, sem virð­ast að­eins að litlu leyti hverf­ast um for­mann­inn fyrr­ver­andi.
Sólveig Anna er komin og krefst virðingar
ViðtalBaráttan um Eflingu

Sól­veig Anna er kom­in og krefst virð­ing­ar

„Ég fór inn með þá hug­mynd – sem eft­ir á að hyggja var mjög barna­leg – að ég gæti ver­ið bara næs og kammó og vin­gjarn­leg, til í að ræða mál­in og spjalla,“ seg­ir Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir sem reyn­ir nú að vinna aft­ur for­manns­stól­inn í Efl­ingu, stærsta stétt­ar­fé­lagi verka- og lág­launa­fólks á Ís­landi um inn­komu sína í verka­lýðs­bar­áttu. Fari svo að hún vinni ætl­ar hún sér að fá þá virð­ingu sem hún tel­ur embætt­ið eiga skil­ið.

Mest lesið

Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
1
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Þórður Snær Júlíusson
4
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Elsku ráð­herr­ar, hætt­ið að gefa Ís­land

Nú stend­ur til að gefa norsk­um lax­eld­is­fyr­ir­tækj­um ís­lenska firði til eign­ar. Þeg­ar er bú­ið að gefa ör­fá­um út­gerð­ar­fjöl­skyld­um hundruð millj­arða króna hið minnsta af fé sem ætti að hafa far­ið í sam­fé­lags­lega upp­bygg­ingu. Vilji er til þess að gefa einka­að­il­um vindorku en eng­inn vilji til þess að rukka ferða­þjón­ustu fyr­ir nýt­ingu á al­manna­g­æð­um. Hvað geng­ur ís­lensk­um ráða­mönn­um eig­in­lega til?

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
1
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú
4
Greining

Sleppti mál­tíð­um til þess að kom­ast frá Ás­brú

„Stans­laust von­leysi vakn­ar um leið og þú mæt­ir,“ seg­ir ung­ur venesú­elsk­ur hæl­is­leit­andi um Ás­brú. Þar hafi ver­ið ómögu­legt fyr­ir hann, eða nokk­urn mann, að að­lag­ast ís­lensku sam­fé­lagi – sem er at­riði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hef­ur sagst vilja fleiri bú­setu­úr­ræði á borð við Ás­brú.
Fyrirtækið sem Kvika keypti kom að lánum til félags konu Ármanns
7
ViðskiptiKvika og Ortus

Fyr­ir­tæk­ið sem Kvika keypti kom að lán­um til fé­lags konu Ár­manns

Breska fyr­ir­tæk­ið Ort­us Capital, sem Ár­mann Þor­valds­son, nú­ver­andi for­stjóri al­menn­ings­hluta­fé­lags­ins Kviku, var hlut­hafi í var einn af lán­veit­end­um breska kráar­fyr­ir­tæk­is­ins Red Oak Taverns, sem eig­in­kona Ár­manns á hlut í. Þetta fyr­ir­tæki varð síð­ar að Kviku Secu­rities í Bretlandi og keypti það breskt lána­fyr­ir­tæki af við­skipta­fé­lög­um fyr­ir tveim­ur ár­um fyr­ir millj­arða króna.
Umsækjandi hjá MAST vill rökstuðning: „Ég er vonsvikinn“
8
FréttirLaxeldi

Um­sækj­andi hjá MAST vill rök­stuðn­ing: „Ég er von­svik­inn“

Eg­ill Stein­gríms­son dýra­lækn­ir var ann­ar af um­sækj­end­un­um um sviðs­stjórastarf hjá Mat­væla­stofn­un sem með­al ann­ars snýst um eft­ir­lit með lax­eldi. Fiska­líf­eðl­is­fræð­ing­ur­inn Þor­leif­ur Ág­ústs­son var ráð­inn fram yf­ir hann og vakti ráðn­ing­in at­hygli inn­an MAST vegna já­kvæðra skrifa hans um lax­eldi hér á landi.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
5
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
6
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
7
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Ráðning stjórnanda til MAST vekur athygli: „Ég er fagmaður"
10
FréttirLaxeldi

Ráðn­ing stjórn­anda til MAST vek­ur at­hygli: „Ég er fag­mað­ur"

MAST til­kynnti starfs­mönn­um sín­um um það á mið­viku­dag­inn að bú­ið væri að ráða Þor­leif Ág­ústs­son sem nýj­an sviðs­stjóra yf­ir með­al ann­ars fisk­eld­is­deild­ina hjá stofn­un­ina. Þor­leif­ur hef­ur skrif­að grein­ar þar sem hann tal­ar fyr­ir lax­eldi í sjókví­um. Þor­leif­ur seg­ist vera vís­inda­mað­ur og að hann taki ekki af­stöðu. For­stjóri MAST, Hrönn Jó­hann­es­dótt­ir vill ekki ræða um ráðn­ing­una þeg­ar eft­ir því er leit­að.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár