Þetta er of langt gengið.
Nákvæmlega þegar Sjálfstæðisflokkurinn þurfti að sýna að honum var treystandi, nákvæmlega þá klúðrar hann sölunni á Íslandsbanka svo gersamlega að það er varla hægt að ímynda sér hvernig verr hefði getað tekist til.
Nákvæmlega þegar VG þurfti að sýna að það hefði verið réttlætanlegt að binda trúss sitt við Sjálfstæðisflokkinn, því hið milda yfirvald Katrín Jakobsdóttir myndi kenna honum góða siðu, nákvæmlega þá gerist þetta.
Og nákvæmlega þegar VG hafði tækifæri til að sýna að flokknum væri treystandi til að vinna með Sjálfstæðisflokknum því hann mundi aldrei selja sálu sína fyrir samstarfið, aldrei varpa hagsmunum almennings í landinu fyrir róða til að þóknast Sjálfstæðisflokknum, þá virðist VG ætla að leggjast svo kylliflatur fyrir fætur Bjarna Benediktssonar að næst mun eflaust sjást til þeirra bursta skóna hans.
Meira að segja Sjálfstæðismönnum blöskrar
Nákvæmlega núna, þegar meira að segja fjölmörgum Sjálfstæðismönnum blöskrar klúðrið og siðleysið sem einkenndi þessa bankasölu (þennan „glæp“ liggur mér við að segja), nákvæmlega þegar siðfræðingar og prófessorar í viðskiptum og stjórnsýslu – að ekki sé minnst á marghrjáðan almenninginn – benda á að það tjóir ekki fyrir Bjarna að skýla sér bak við bankasýsluna, nákvæmlega þá lúpast VG-menn fram í dagsljósið og muldra: Já, þetta tókst ekki vel, en þetta er náttúrlega engan veginn sök fjármálaráðherra … sök Bjarna, nei, aldrei sök Bjarna.
Ég mundi slá mér á lær og vorkenna þessum VG-mönnum fyrir allan skítinn sem þau þurfa að éta, fyrir öll heljarstökkin aftur á bak sem þau þurfa að taka til að réttlæta þátttöku sína og aðild að þessu klúðri, þessu siðleysi, en þeim er náttúrlega ekki vorkunn – fórnarlömbin eru önnur, fórnarlömbin eru alþýðan í þessu landi, fólk sem þarf að horfa upp á að fé sem átti að nota til að bæta líf þess, bæta samfélagið, það fé er gefið völdum hópi sem spillingarklíkunni líkar vel við.
Við borðsendann í vanhæfustu ríkisstjórninni
Og nákvæmlega þegar Katrín Jakobsdóttir ætti að vera farin að uppskera eitthvað af þeim loforðum sem hún gaf þegar hún ákvað að bjarga Bjarna Benediktssyni undan pólitísku skipbroti 2017, og ætti að vera farin að sjá einhvern árangur af endurteknum fullyrðingum hennar um að hennar sérstaka erindi í pólitík væri „að auka traust á stjórnmálum“, þá situr hún á bólakafi í einhverju mesta spillingarfeni stjórnmálasögunnar, þá situr hún við borðsendann í vanhæfustu ríkisstjórninni.
Það má nefnilega afsaka að einhverjum smáparti ríkisstjórnirnar fyrir hrun með því að þær hafi kannski verið slegnar slíkri glýju af „góðærinu“ að þær hafi ekki alveg áttað sig á út í hvaða rugl þær stefndu, en ríkisstjórnin nú á sér enga slíka afsökun.
Hún hafði EITT verkefni
Hún hafði eitt verkefni – að ganga frá bankasölu á heiðarlegan hátt, og það var mikilvægara en ella vegna þess í fyrsta lagi að meirihluti almennings er á móti þessari bankasölu og í öðru lagi vegna þess að sporin hræða – nákvæmlega þess vegna var svo mikilvægt að klúðra þessu ekki, en nákvæmlega þá, þá klúðrar ríkisstjórnin öllu.
Öllu.
Og ekki af slysni, heldur er búin til peningaprentunarvél fyrir valinkunna útrásarvíkinga (af öllum mönnum!!) og einkavini spillingarkrókanna og gefur örlitlum hópi fé fólksins í landinu.
Þetta er of langt gengið, þessu verður að linna.
Við getum ekki sem þjóð með nokkru móti látið koma svona fram við okkur. Það fer gegn skynsemi og lýðræðis- og félagsvitund okkar flestra.
Sem barn velti ég því fyrir mér hvernig Ræningja barónar náðu völdum í Evrópu á miðöldum og eignuðust allt land og kúguðu fólk í 600 ár. Héldu aftur af þróun.
Gerðu íbúana að átthaga fjötraður þrælum. Núna sé ég að það er fljót gert við friðsamlegt fólk. Ég og svo margir erum friðsöm native og trúum ekki að aðrir séu ekki þannig líka.
Enda sveltur þraell til alls vís og þá er engin miskun þegar fólk er svangt og stutt í villimensku manna .
Vijum við það ástand hér ?
Nei segi ég nú er takifari á ofbeldislausri bylltingu með þá betum pennum og aftifigni vqgna þess aðeingin gerir neitt nema við sjalf eigum frumkvaeðið.
við íslendingar þurfum ekki að láta biltinguna eta börnin sín vegna þess að íslendingar eru upp til hópa skynsamt fólk en einkar þolinmótt, og á stundum annsi meðvirkt spillinguni .
Athugum áð að við erum bara 371 þúsund hraður og að fjölgun okkar felast í að hinga fklytur fólk á hjara varaldar af því hér er gnógt að verðmaetum að vinna úr .
Ekki glutra niður sjálfstaeði þjóðarinnar, og allra síst í handur fasistana sem nota allar klaer til að eignast allar auðlyndir þjóðarinnar á silfur fati.
Rísum upp óg mótmaelum ÖLL framferði fasistana sem eru nota bene bara um tíju prosent þjóðarinar og hafa kannski fyrgi 2o % þjóðrinnar sem er millistétt eða metaspírur arfa viltlausar sem keipt hafa sér skirteini frá haskólum okkar í gegnum spillingu fasistana sem hafa plasntað sér alstaðar í stjórnkefinu .
Eflum nú l´ðiðraeði og skrisfum nýja stjórnarskra .
Munum að FRAKAR HAFA SKRIFAÐ NÍRAR STJÓRNARSKRAR 5 SINNUM FRÁ BILTINGUNI BLÓÐUGU .
Stefna furstans er að dvalta heilbrygðiskerfið þangað til að búið er að einkavaða alla laknisþjónustu á íslandi og eiga triggingafélög furstans og hanns áhangendur að sja um að selja fólki tryggingar sem ekki allir hafa efni á vagna okurstafnu triggingafelaga fustans og hann áhanganda .Og smatt og smatt er verið að einkavaða raforkuframleiðslu okkar og fyrir rest faer furstin landsvirjun á gjafverði sem borgað verður með arði raforkunar sem ekki er lítil .Allar vindmilur sem áaetlun er um að reisa vitt og breitt um landið eru í einkaeigu í gegnum áhaettu sjaóði erlendis frá .Það sja allir hugsandi menn hvert stefnir með þjóðarbúið okkar .
Enda vita þeir siðblyndu hvr fjsrmagnið er og hversu auðvalt er að efnast á skattpeningum almennigs ef almennigur sefur of leingi á var'ðinum .
Gerir fólk almennt sér ekki grein fyrir að við búum í líðraeðis ríki og .ar raeður meiri hluti fólks ferðini en ekki einhver 1o % þjóðarinar sem eru haeggt og haegt að eignast alla innviði okkar .?
Og að við stöndum uppi landlaus eins og rímanska þjóðin sem er alstaðar hötuð og rekin milli landa sem það ekki einusinni á landvistar leifi .
Djöfull er ílla komið fyrir famennri ríkri þjóð af auðlyndum ef hún ekki fer að vakna við vondan draum og taka til sinna mala .
Ekki ens og fRAKKAR GERÐU Í BILTINGUNI OG TOKU HÖFUÐIÐ AF FOLKI SEM EKKI VQR LEIÐITAMIÐ AÐ FORINGJUM BILTINGARINNAR ..