Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 8 árum.

Húsið þróast með okkur

Hrefna Rósa Sætr­an, kokk­ur, býr drauma­hús­inu sínu í gamla Skerja­firð­in­um. Þar bland­ast sam­an nokkr­ir stíl­ar en hús­ið er í senn úr steypu, tré og báru­járni. Fyr­ir­hug­að­ar eru mikl­ar breyt­ing­ar á hús­inu en að sögn Hrefnu er hug­mynd­in að leyfa því að þró­ast með heim­il­is­fólknu.

Ilmurinn af nýbakaðri peru- og rababaraböku fylla vitin þegar gengið er inn á heimili Hrefnu Rósu. Bertram Skuggi þriggja ára og Hrafnhildur Skugga tveggja ára dansa í kringum mömmu sína og iða í skinninu eftir fyrsta bita. Heimilisfaðirinn, Björn Árnason ljósmyndari, er fjarri góðu gamni en að sögn Hrefnu notar hann hvert tækifæri til að stelast í veiði á sumrin.

Aðstoðarkona
Aðstoðarkona Hrafnhildur Skugga aðstoðar mömmu sinni í eldhúsinu.

Jöfn skipti
Jöfn skipti Þrátt fyrir að vera kokkur, veitingahúsaeigandi og fyrrverandi meðlimur í kokkalandsliðinu segist Hrefna ekki alltaf elda á heimilinu. „Ég elda ef það þarf að vera eitthvað fljótlegt eða ef við viljum eitthvað mjög fínt. Bjössi gefur sér tíma í eldamennskuna og vill helst hægelda matinn í nokkra klukkutíma.“

Hrefna og Hrafnhildur
Hrefna og Hrafnhildur Hrafnhildur fylgir móður sinni á eftir hvert fótmál.

Fjörugt heimili
Fjörugt heimili Það er ætíð líf og fjör á heimilinu að sögn Hrefnu. Þegar þessi mynd var tekin var Bertram að reyna að fá mömmu sína líka upp á stofuborð.

Stofan
Stofan Hrefna og Björn gerðu stofuna hlýlegri með því að mála og setja upp gólf­ og loftlista. Ljósakrónan er í miklu eftirlæti en hana fékk Hrefna í Húsi fiðrildanna á Skúlagötunni.

Stellið frá ömmu
Stellið frá ömmu Hrefna Rósa erfði þetta matarstell frá ömmu sinni en það var notað í giftingu þeirrar síðarnefndu snemma á síðustu öld.

Hrefna og Björn keyptu íbúðina fyrir rúmum fjórum árum, þá barnlaus. „Mig langaði alltaf að búa í þessu hverfi. Héðan er einungis tuttugu mínútna labb í bæinn, en samt er eins og maður sé úti í sveit. Þegar ég kom hingað inn fann ég það strax að hérna vildi ég búa,“ segir Hrefna. Þau byrjuðu á því að kaupa neðri hæðina, sem er rúmlega hundrað fermetrar, en keyptu nýlega efri hæðina að auki. Þar munu bætast við um fimmtíu 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár