Nova ætlar að loka fyrir nafnlausar sms-sendingar af vef sínum. Þuríður Björg Guðnadóttir, sölu- og þjónustustjóri Nova, greinir frá þessu á Facebook, en tilefnið er frásögn Guðrúnar Línberg Guðjónsdóttur af því hvernig hún hefur verið áreitt með slíkum skilaboðum um margra ára skeið.
Stundin fjallaði um málið upp úr hádegi. „Af hverju þarf hið sjálfgefna að vera að það sé opið fyrir áreitni og einelti eftir þessari leið?“ spurði Guðrún í Facebook-færslu. „Kemur þetta einhverjum að gagni nú til dags? Öðrum en þeim sem vilja eltihrella, leggja í einelti og áreita?“
Þuríður bregst við með athugasemd undir færslunni. „Þetta er mjög réttmæt athugasemd og við hjá Nova höfum ákveðið að loka á þessa þjónustu þar sem í dag geta allir viðskiptavinir sent frí SMS í gegnum farsíma sína eða með því að auðkenna sig í gegnum Stólinn. Takk kærlega fyrir að benda okkur á hvað við getum gert betur,“ skrifar hún.
Athugasemdir