Fyrir rúmlega þrjátíu árum síðan tók foreldrafélag Fossvogsskóla upp á þeirri nýbreytni að bjóða foreldrum að mæta í leikfimihús skólans og æfa þar leikfimi saman tvisvar í viku. Hugmyndinni var vel tekið meðal foreldranna, þó fyrst og fremst mæðranna, sem tóku hugmyndinni leikfimi í næsta nágrenni fegins hendi, enda oft erfitt að koma æfingunum á líkamsræktarstöð inn í dagskrána. Heilu vinkvennahóparnir tóku sig til og skráðu sig til leiks og kennarar við skólann voru liðtækir líka. Á tímabili mættu nokkrir pabbar en þeir hafa þó ekki látið sjá sig svo áratugum skiptir.
Nú eru þessar mömmur orðnar ömmur og jafnvel sumar hverjar langömmur. Börnin eru fyrir langa löngu hætt í skólanum og flogin úr hreiðrinu, en þær halda áfram að mæta í íþróttahúsið. Enn í dag er þéttur hópur kvenna sem mætir þangað samviskusamlega alla þriðjudaga og fimmtudaga. Eins og gefur að skilja hefur talsverð endurnýjun orðið í hópnum og …
Athugasemdir