Eitt furðulegasta milliríkjamál seinni tíma var loks til lykta leitt fyrir skömmu þegar Grikkir féllust náðarsamlegast á að ríkið Makedónía mætti bera það heiti sem Makedónar sjálfir vilja. Deilan hafði staðið allt síðan Makedónía lýsti yfir sjálfstæði 1991, eða í tæp 30 ár. Allan þann tíma komu Grikkir í veg fyrir að ríkið Makedónía nyti að öllu leyti fullra réttinda sem sjálfstætt ríki. Ástæðan var sú að Grikkir gátu ekki fallist á að Makedónar notuðu heitið Makedónía þar sem það væri „eign“ Grikkja síðan fyrir 2.500 árum eða svo. Hin forna Makedónía væri enn að stærstum hluta innan landamæra Grikklands og það væri dónalegt að ríki, þar sem grísk menning væri ekki ríkjandi, notaði nafn grísks héraðs í nafni sínu. Að lokum var málið leyst með því að Makedónar féllust á að nefna ríki sitt Norður-Makedónía til aðgreiningar frá gríska héraðinu Makedónía.
Blómleg menning við Eyjahafsströnd
En hver var saga …
Athugasemdir