„Hann er sjúklega sjálfhverfur og brjálæðislegur hrokagikkur. Hann er fullkomlega viss um að hann eigi rétt á hverju sem honum sýnist og hann megi gera það sem honum dettur í hug. Hann elskar að gelta skipanir og sjá undirmenn sína skjótast af stað til að framfylgja þeim. Hann krefst algjörrar tryggðar en veit ekki hvað þakklæti er. Tilfinningar annarra skipta hann engu.
Engin samkennd
Hann býr ekki yfir neinum eðlislægum þokka, engri samkennd með öðru fólki, engri sómatilfinningu. Honum er ekki bara sama um lögin, hann hatar þau og hefur nautn af því að brjóta þau. Hann hatar lögin vegna þess að þau vilja standa í vegi fyrir honum og vegna þess að þau eru sprottin af …
Athugasemdir