Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en ári.

Norska samkeppniseftirlitið samþykkir stærsta samruna í íslensku laxeldi

Sam­keppnis­eft­ir­lit­ið í Nor­egi hef­ur sam­þykkt að lax­eld­is­fyr­ir­tæk­ið Salm­ar, móð­ur­fé­lag Arn­ar­lax á Bíldu­dal, fái að kaupa fyr­ir­tæk­ið NTS, sem er stærsti óbeini hlut­hafi Arctic Fish á Ísa­firði. Salm­ar kynn­ir árs­hluta­upp­gjör í dag þar sem samruna fyr­ir­tækj­anna er lýst. Á sama tíma og Salm­ar fjár­fest­ir í ís­lensku sjókvía­eldi tel­ur fyr­ir­tæk­ið að fram­tíð lax­eld­is liggi í af­l­and­seldi á laxi.

Norska samkeppniseftirlitið samþykkir stærsta samruna í íslensku laxeldi
Stærsti einstaki hagsmunaðilinn Gustav Witzoe, stofnandi og stjórnarformaður Salmar AS, er í dag stærsti hagsmunaðilinn í íslensku laxeldi í gegnum eignarhald sitt á Salmar AS, stærsta hluthafa Arnarlax. Witzoe verður langstærsti hagsmunaðilinn í greininni ef samruni Salmar og NTS gengur eftir.

Norska laxeldisfyrirtækið Salmar AS, eigandi Arnarlax á Bíludal, er einu skrefi nær því að eignast fyrirtækið NTS, stærsta óbeina hluthafa Arctic Fish á Ísafirði, eftir að norska samkeppniseftirlitið veitti samþykki sitt fyrir samrunahugmyndunum um miðjan júlí. Þetta kemur fram í árshlutauppgjöri Salmar AS fyrir 2. ársfjórðung sem kynnt var í dag.  Í uppgjörinu kemur meðal annars fram með hvaða hætti Salmar AS sér fyrir sér að NTS og þau fyrirtæki sem það á renni inn í Salmar. 

Möguleiki á samlegðaráhrifum í rekstri

Ef samruninn gengur eftir er líklegt að Arctic Fish renni einfaldlega inn í Arnarlax og að til verði eitt stórt laxeldisfyrirtæki á Vestfjörðum. Arnarlax er stærsta laxeldisfyrirtæki landsins um þessar mundir og verður langstærst ef Arctic Fish rennur inn í það. Forsvarsmenn Arctic Fish hafa ekki viljað ræða hvort þeim hafi verið tilkynnt um samruna við Arnarlax eða ekki. „No comment,“  sagði einn af stjórnendum fyrirtækisins, Daníel Jakobsson, í svari til Stundarinnar um þetta í júní. 

Arnarlax framleiddi 16 þúsund tonn af eldislaxi í fyrra og Arctic Fish tæplega 11 þúsund. Samanlagt voru þessi fyrirtæki því með tæp 27 þúsund tonn af rúmlega 46 þúsund tonna heildarframleiðslu á eldislaxi á Íslandi árið 2021. 

„Sameinað fyrirtæki verður í fararbroddi í vinnu við háþróuðustu aflandslausnir í heiminum“
Úr kynningu á árshlutauppgjöri Salmar

Í árshlutauppgjörinu segir um þetta að samlegðaráhrifin í rekstri Salmar og NTS sé verulegur. Ekki bara á Íslandi heldur einnig í Norður- og Mið-Noregi sem og í aflandseldi á laxi. „Möguleiki á verulegum samlegðaráhrifum í allri virðiskeðjunni á öllum svæðum.“   

Samruni stærstu laxeldisfyrirtækjannaNorski laxeldisrisinn Salmar verður langstærsti hagsmunaðilinn í íslensku laxeldi ef samruni Salmar og NTS gengur eftir, sem allt útlit er fyrir.

Salmar: Framtíðin er í aflandseldi

Í árshlutauppgjörinu kemur hins vegar fram að Salmar sér framtíð laxeldis í heiminum ekki vera í sjókvíaeldi nálægt ströndum landa eins og Noregs og Íslands heldur í aflandseldi í risastórum kvíum á hafi úti. Salmar er líka að kaupa þróunarverkefni NTS í aflandseldi á laxi, Arctic Offshore Farming.  

Auk samlegðaráhrifanna í sjókvíaeldinu í Noregi og á Íslandi segir að samruninn muni einnig leiða til samlegðaráhrifa í þróun á aflandslausnum. „Sameinað fyrirtæki verður í fararbroddi í vinnu við háþróuðustu aflandslausnir í heiminum.“    

Í fjárfestakynningunni segir að til standi að dótturfélag Salmar, Aker Ocean, framleiði 150 þúsund tonn af eldislaxi á ári í aflandseldi sínu fyrir árið 2030. Þá hefur fyrrverandi stjórnarformaður Salmar, Atle Eide, sagt að hefðbundnar sjókvíar eins og Arnarlax og Arctic Fish nota á Vestfjörðum muni líklega heyra sögunni til árið 2030. „Við munum líklega ekki sjá hefðbundnar, alveg opnar sjókvíar neins staðar árið 2030,“ sagði hann í viðtali við sjávarútvegsblaðið Intrafish um vorið 2021. 

Staðan er því því sú að þrátt fyrir að Salmar fjárfesti mikið í sjókvíaeldi á Íslandi í gegnum Arnarlax, og verði að öllum líkindum eigandi Arctic Fish á Ísafirði áður en langt um líður, þá telur fyrirtækið að framtíð laxeldis liggi ekki í þeim rekstri sem þessi fyrirtæki stunda heldur í aflandseldi á laxi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhanna Harðardóttir skrifaði
    Norðmenn líta á Ísland eins og ruslakistuna sína. Koma hingað með skítinn sem landar þeirra vilja ekki s.s. Fiskeldi í sjó og vindmyllur á landi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Gagnrýni SFS leiddi til lykilbreytinga á laxeldisfrumvarpinu
SkýringLaxeldi

Gagn­rýni SFS leiddi til lyk­il­breyt­inga á lax­eld­is­frum­varp­inu

Gagn­rýni frá Sam­bandi ís­lenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja spil­aði stóra rullu í því að nýju frum­varpi um lax­eldi var breytt og við­ur­lög minnk­uð við slysaslepp­ing­um. Þetta er ann­að mest um­deilda ákvæði frum­varps­ins en hitt snýst um að gefa lax­eld­is­fyr­ir­tækj­un­um ótíma­bund­in leyfi til sjókvía­eld­is hér við land. Mat­væla­ráð­herra vill hætta við ótíma­bundnu leyf­in í lax­eld­inu eft­ir harða um­ræðu á Al­þingi.

Mest lesið

„Mér hefur ekki verið nauðgað“
2
Fréttir

„Mér hef­ur ekki ver­ið nauðg­að“

„... þó að fjór­ar rík­is­stjórn­ir hafi geng­ið úr skugga um að flokka, bæla nið­ur og jafn­vel þurrka út eig­in­lega öll mest af­ger­andi sönn­un­ar­gögn­in tókst þeim ekki að halda lok­inu á sam­ráði og mis­ferli sínu,“ skrif­ar pró­fess­or Nils Melzer sem rann­sak­aði mál Ju­li­an Assange sem sér­stak­ur skýrslu­gjafi fyr­ir Sam­ein­uðu þjóð­irn­ar. Skýrsl­an kom út sem bók.
Örlæti Haraldar kostar ríkissjóð yfir hálfan milljarð
3
Afhjúpun

Ör­læti Har­ald­ar kost­ar rík­is­sjóð yf­ir hálf­an millj­arð

Rík­is­sjóð­ur sit­ur uppi með yf­ir 500 millj­óna króna reikn­ing eft­ir að Har­ald­ur Johann­essen, fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri, hækk­aði líf­eyr­is­rétt­indi út­val­inna und­ir­manna sinna um helm­ing, án þess að hafa til þess heim­ild. Þetta er nið­ur­staða meiri­hluta Hæsta­rétt­ar sem kall­ar verk Har­ald­ar „ör­læt­is­gjörn­ing“. Stór hluti þess­ara und­ir­manna Har­ald­ar skrif­aði und­ir op­in­bera stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við hann stuttu síð­ar. Samn­ing­arn­ir standa samt því und­ir­menn­irn­ir vissu ekki bet­ur en að Har­ald­ur mætti gera þá. Um­mæli tveggja ráð­herra hafi styrkt þá trú þeirra.
Þórður Snær Júlíusson
4
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Dýr­asta kosn­ingalof­orð Ís­lands­sög­unn­ar

Ár­ið 2003 lof­aði Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 90 pró­sent lán­um til hús­næð­is­kaupa svo börn gætu flutt úr for­eldra­hús­um. Rík­is­ábyrgð var á fjár­mögn­un lán­anna. Nú, tveim­ur ára­tug­um síð­ar, stend­ur rík­is­sjóð­ur frammi fyr­ir því að vera að tapa að nokkr­um millj­örð­um króna á mán­uði vegna þess­ara lof­orða og það hef­ur aldrei ver­ið erf­ið­ara fyr­ir ungt fólk að kom­ast í eig­ið hús­næði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
2
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.
Var dæmdur til dauða fyrir hryðjuverk
5
ViðtalÚkraínustríðið

Var dæmd­ur til dauða fyr­ir hryðju­verk

Bret­inn Shaun Pinner var ný­kom­inn úr löngu sam­bandi og fann fyr­ir lífs­kreppu sem marg­ir á miðj­um aldri upp­lifa. Hans lausn við henni var að fara til Úkraínu og þjálfa her­menn. Pinner var hand­tek­inn, stung­inn og pynt­að­ur af Rúss­um en var svo hluti af stór­um fanga­skipt­um sem áttu sér stað milli stríð­andi fylk­inga í sept­em­ber 2022. Ósk­ar Hall­gríms­son ræddi við Pinner.
„Það er svo ótrúlega helvíti erfitt að fara frá honum“
6
Viðtal

„Það er svo ótrú­lega hel­víti erfitt að fara frá hon­um“

Krist­inn Hrafns­son ræð­ir stöð­una á mál­um Ju­li­an Assange en um­ræð­an byrj­aði að breyt­ast eft­ir að Nils Melzer, þá­ver­andi skýrslu­gjafi Sam­ein­uðu þjóð­anna, gaf út á bók ár­ið 2022 og lagði áherslu á að eng­inn hef­ur axl­að ábyrgð á stríðs­glæp­um þeim sem Wiki­Leaks af­hjúp­aði á með­an Ju­li­an sæt­ir pynt­ing­um og yf­ir­völd fjög­urra landa hafa marg­brot­ið á hon­um. Bók­in hef­ur haft áhrif, jafn­vel á Joe Biden og Olaf Sholz.
Segir íslenskt kórastarf geta stuðlað að aukinni inngildingu
8
FréttirForsetakosningar 2024

Seg­ir ís­lenskt kór­astarf geta stuðl­að að auk­inni inn­gild­ingu

Halla Hrund Loga­dótt­ir vill hvetja út­lend­inga til að „læra tungu­mál­ið okk­ar í gegn­um söng og ís­lensk­una.“ Halla Hrund seg­ir að við þurf­um að vera að­eins meira skap­andi í því hvernig við nálg­umst við­fangs­efni inn­flytj­enda. Hún var með­al for­setafram­bjóð­enda sem mættu í pall­borð­sum­ræð­ur í síð­asta þætti Pressu.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
ViðtalFatlað fólk beitt nauðung

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
3
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
8
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Ákveðið að saksækja þrjá í Lindsor-málinu rúmum 15 árum síðar
9
Skýring

Ákveð­ið að sak­sækja þrjá í Lindsor-mál­inu rúm­um 15 ár­um síð­ar

Sama dag og Geir H. Haar­de flutti ræðu til þjóð­ar­inn­ar þar sem hann bað guð um að blessa Ís­land veitti Kaupþing af­l­ands­fé­lagi lán sem not­að var til að kaupa verð­lít­il skulda­bréf af starfs­mönn­um og vild­ar­við­skipta­vini bank­ans. Nú, 15 og hálfu ári eft­ir að lán­ið var veitt, stend­ur til að sak­sækja þrjá ein­stak­linga í Lúx­em­borg vegna þess.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu