Nú hefur Páley Borgþórsdóttir lögreglustjóri á Akureyri gengið of langt.
Svo langt, langt, langtum of langt.
Hún hefur boðað að hún ætli að senda rannsóknarlögreglumann frá Akureyri suður til Reykjavíkur í næstu viku til þess að yfirheyra sem sakborninga fjóra blaðamenn Stundarinnar, Kveiks og Kjarnans um með hvaða hætti blaðamennirnir fengu upplýsingar um hóp starfsmanna Samherja sem kallaði sig „skæruliðadeildina“.
(Samkvæmt þeim upplýsingum sem Þórður Snær á Kjarnanum hefur fengið um „sakargiftir“ snúast þær þó eingöngu — ef ég skildi rétt — um að hafa dreift fréttum af „skæruliðadeildinni“. Það er jafnvel enn galnara en ef reynt hefði verið að bendla blaðamennina við þjófnað, svo ruglað sem það þó er.)
Hópur þessi hafði það sjálfskipaða markmið að koma með ýmsum hætti óorði á blaða- og fréttamenn sem fjölluðu mútumál Samherja í Namibíu og fræg eru orðin.
Þetta kom fram í gögnum sem Stundin og Kjarninn og síðan aðrir fjölmiðlar birtu í maí á síðasta ári.
Ég hirði ekki um að rekja hér öll „dirty tricks“ hinnar yfirlýstu „skæruliðadeildar“ enda dugar að rifja upp að deildin leit á hinn víðkunna „rannsóknarlögreglumann Samherja — sem svo er nefndur — Jón Óttar Ólafsson sem sérstakan samherja sinn.
Sá varð kunnur að því að sitja um bæði uppljóstrarann Jóhannes Stefánsson og Helga Seljan sem höfðu, hvor á sinn hátt, vakið fræga illsku Samherja.
Og þeir voru látnir rækilega vita að Jón Óttar (les=Samherji) fylgdist með þeim
Þið finnið annars fljótt á netinu ótal fréttir af hinni afar ógeðfelldu starfsemi „skæruliðadeildarinnar“.
Rétt er að taka vandlega fram að enginn efaðist um að fréttirnar af vinnubrögðum „skæruliðadeildarinnar“ væru réttar. Samherji baðst meira að segja „afsökunar á þeirri framgöngu“ stjórnenda að hafa „gengið of langt“ í „viðbrögðum við neikvæðri umfjöllun“ eins og sagði, nánast orðrétt, í afsökunarbeiðni fyrirtækisins 31. maí síðastliðinn.
Hvers vegna Páley lögreglustjóri á Akureyri úthrópar nú fjóra blaðamenn sem „sakborninga“ í þessu máli er ekki bara óskiljanlegt og ótrúlega heimskulegt, heldur er það líka hættulegt.
Það er hættulegt ef lögregluyfirvöld ætla að koma blaðamönnum í skilning um að ef þeir vinna vinnuna sína — að koma mikilsverðum upplýsingum til almennings — þá eigi þeir á hættu að verða dæmdir í fangelsi.
Ákæra sem við liggur refsing upp á fangelsi í eitt ár mun nú nefnilega blasa við „sakborningunum“ Aðalsteini Kjartanssyni, Arnari Þór Ingólfssyni, Þórði Snæ Júlíussyni og Þóru Arnórsdóttur — ef þau ansa ekki spurningum rannsóknarlögreglumannsins sem sendur verður að norðan.
(Ætli það verði nokkuð Jón Óttar Ólafsson?!)
Páley þessi hefur hingað til verið kunnust fyrir að hafa ætlað að þagga niður fréttir af nauðgunum á Þjóðhátíð meðan hún var lögreglustjóri í Vestmannaeyjum.
(Reyndar hafði Páley áður verið kosin í bæjarstjórn Vestmannaeyja, það var árið 2006 og ég þarf ekkert að taka fram fyrir hvað flokk, er það nokkuð?)
En sem lögreglustjóri á Þjóðhátíð var Páley meiren lítið varasöm fyrir þolendur kynferðisbrota, en nú er hún hættuleg fyrir frjálsa fjölmiðlun í landinu.
Og hvernig hvarflaði annað eins að henni?
Það er hin stóra spurning.
Nú þurfa hin æðstu yfirvöld í þessu landi að byrja á því að leysa Páleyju Borgþórsdóttur frá störfum.
Hún veldur bersýnilega ekki því gríðarlega mikilvæga starfi sem hún hefur verið sett í af hinum ónefnda stjórnmálaflokki.
(Ókei þá, jújú, það er Sjálfstæðisflokkurinn.)
Síðan þurfa hin æðstu yfirvöld í þessu landi að hefja rannsókn á því hvernig í ósköpunum það vildi til að lögreglustjóri í alvöru umdæmi skuli fá blaðamönnum réttarstöðu sakbornings fyrir þá „sök“ að vinna vinnuna sína.
Talaði einhver við Páleyju og bað hana um þetta? Hefur hún til dæmis verið í sambandi við Samherja upp á síðkastið?
Það er nefnilega alvörumál að ætla að hræða blaðamenn frá því að vinna vinnuna sína.
Við erum nýbúin að sjá dæmi um það #Verbúðin.
Og — eins og „skæruliðadeildin“ sýndi fram á og þurfti svosem ekki til — þá er það líka plagsiður Samherja.
Þetta þarf að gerast nú þegar.
Það þarf að losna við svona lögreglustjóra.
Svo reddar Sjálfstæðisflokkurinn Páleyju örugglega nýju djobbi.
https://nltimes.nl/.../threatened-journalists-need-better...
Af hverju var "UNGSTIRNI" FL-okksinns kippt út úr ráðuneytinu og gamall "STRÁKÚSTUR" settur þar inn TÍMABUNDIÐ ??
Tilviljun ?
Ef það er ekki, þá er mjög varasamt stjórnleysi í samfélaginu sem grasserar mun víðar.
En það er auðvelt að komast að því?