Og hvers óskar hann sér og hvers vegna sé ég þennan litla dreng?
Það er komin nótt og hann situr andvaka á rúminu sínu. Jólin eru alveg á næsta leiti og drengurinn er svo mikið að hugsa. Hann er ekki mikið að hugsa um jólin og ekkert sérstaklega um áramótin. Hann er að hugsa um sjö ára afmælið sitt, sem er í byrjun janúar. Hvers óskar hann sér í afmælisgjöf? Hann langar til dæmis í skemmtilega bók. En kannski er drengurinn mest að hugsa um mömmu sína.
Mamma hans er alltaf heima, hún er ekki úti að vinna eins og mömmur nokkurra vina hans. Mamma drengsins hefur reyndar alltaf nóg að gera heima, hún er ætíð að þrífa, elda, sauma og baka. Litla drengnum finnst ósköp notalegt að mamma hans sé alltaf heima, en þrátt fyrir ungan aldur hvarflar að honum að það sé svolítið ósanngjarnt. Drengurinn veltir fyrir sér …
Athugasemdir