Á þessum hörmungardegi fyrir Afganistan, þegar hrottar Talíbana eru að ná þar öllum völdum (og svo það fari nú ekki milli mála, þá er þar fyrst og fremst gjörsamlega misheppnuðum afskiptum og stríðsrekstri Vesturlanda um að kenna), þá stenst ég ekki mátið að vekja athygli á þremur þáttum af Frjálsum höndum á RÚV sem ég flutti í apríl 2017.
Þar tók ég saman og las frásögn hinnar sænsku Áróru Nilsson sem gaf út árið 1928 bók um dvöl sína í Afganistan fáeinum árum áður. Sú frásögn birtist svo í íslenskri þýðingu í tímaritinu Eimreiðinni 1928-1929 og þar fann ég hana, matreiddi svolítið og stytti ögn, og las síðan upp.
RÚV virðist ekki hafa varðveitt þessa þrjá þætti, en Lára Hanna Einarsdóttir tók þá upp og var svo vinsamleg að setja þá á „soundcloud“ og má þess vegna nálgast þá á hlekknum hér að neðan.
Flóttinn úr kvennabúrinu, þættir 1-3.
Athugið að þriðji þátturinn birtist efst, svo byrja skal á þeim þriðja, sem merktur er 1 af 3, og svo framvegis.
***
Ég hvet fólk til að hlusta!
Athugasemdir