Ef þær Katrín Jakobsdóttir og Svandís Svavarsdóttir eru ekki alveg orðnar rammvilltar í völdundarhúsi valdsins, þá hljóta þær að hafa gríðarlegar áhyggjur af niðurstöðum könnunar sem Maskína gerði og sýna að hvorki meira né minna en 71 prósent kjósenda Vinstri grænna eru á móti því að núverandi stjórnarsamstarf haldi áfram.
Þær Katrín og Svandís hafa ekki látið neitt hafa eftir sér um þessa sláandi niðurstöðu en Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir þingflokksformaður VG sagði eftirfarandi í hádegisfréttum Bylgjunnar áðan:
„Þetta er auðvitað óhefðbundin ríkisstjórnarsamstarf [...] þá eru þetta pólar á sitthvorum endanum sem eru í þessu óvenjulega ríkisstjórnarsamstarfi, þannig að já, eðlilega kannski, af því að Sjálfstæðisflokkurinn er lengst frá okkur í grundvallarpólitík, en kosningar snúast um málefni ...“
Hinn meinti „málefnaágreiningur“ Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokksins skýrir hins vegar ekki í sjálfu sér óánægju yfirgnæfandi meirihluta kjósenda VG.
Í sömu könnun kom nefnilega fram að hvorki meira né minna en 88 prósent kjósenda Sjálfstæðisflokksins og 82 prósent kjósenda Framsóknarflokksins vilja halda samstarfinu áfram.
Ástæðan er auðvitað sú að þeir flokkar hafa komið málefnum sínum og áherslum mjög vel áfram í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur.
En ekki VG.
Himinhrópandi ánægja Sjálfstæðismanna með samstarfið við VG er nefnilega í raun enn meira áhyggjuefni fyrir Katrínu og Svandísi en óánægja VG.
Því er það hlutverk íslenskra vinstrimanna að halda úti ríkisstjórn sem 88 prósent Sjálfstæðismanna styðja, en til að mynda aðeins 29 prósent kjósenda VG?
Athugasemdir