Fimmtudagurinn 9. nóvember 1939 var dumbungslegur og kaldur í bænum Venlo í Hollandi og það voru einhver ónot í loftinu. Venlo stendur við landamærin að Þýskalandi og síðan stríð braust út í Evrópu tveim mánuðum fyrr höfðu landamærahliðin verið lokuð og íbúum í bænum fannst eins og myrkur og uggvænlegur drungi ríkti nú sífellt handan þeirra. Holland átti að vísu engan þátt að stríðinu enn þá en allir vissu þó að ef stríðsátök færðust vestur á bóginn væri meiri hætta en minni á að landið yrði vígvöllur.
Vonuðu að þeir yrðu stöðvaðir
Að því var ekki komið. Vandaður fólksbíll kom nú akandi úr miðbænum í Venlo rétt um fjögurleytið síðdegis og stefndi að kaffihúsinu Backus sem stendur nánast við þýsku landamærin.
Bíllinn hafði verið stöðvaður tvívegis á örfárra kílómetra leið frá miðbænum að landamærum svo hollenskir lögreglu- og landamæraverðir gætu gengið úr skugga um að þeir fjórir menn sem í …
Athugasemdir