Í heimsfaraldri Covid-19 undanfarið ár hefur hvers kyns heimilisofbeldi aukist verulega hér á landi, líkt og annars staðar í heiminum, og hefur verið talað um 10% aukningu í því sambandi. Þessa aukningu má líklega rekja beint til þeirra efnahagslegu þrenginga og félagslegu einangrunar fólks sem faraldurinn hefur haft í för með sér.
Soroptimistar á Íslandi hafa látið þessi mál sig varða enda er á meðal meginmarkmiða samtakanna að vinna að bættri stöðu kvenna, jafnrétti og mannréttindum öllum til handa. Þess má geta að íslenskir Soroptimistar tóku þátt í átaki á heimsvísu síðastliðið haust til að vekja athygli á mikilli aukningu á kynbundnu ofbeldi á tímum heimsfaraldursins.
Ofbeldi gegn öldruðu fólki er eitt af því sem fellur undir heimilisofbeldi en nágrannalönd okkar nota gjarnan hugtakið „ofbeldi í samskiptum nákominna“ um þennan málaflokk. Fram til þessa hefur ofbeldi gegn öldruðum ekki fengið nægilega mikla athygli og að miklu leyti verið hulið vandamál í samfélaginu. Því er full þörf á vitundarvakningu til að rjúfa þann þagnarmúr sem virðist ríkja um ofbeldi gegn öldruðu fólki og vinna þarf bug á því djúpstæða virðingarleysi sem víða er ráðandi í garð aldraðra.
Alþjóðlegt vandamál
Rannsóknir hafa sýnt að ofbeldi gegn öldruðum er alþjóðlegt vandamál sem á sér ýmsar birtingarmyndir. Fram kemur í viðamikilli skýrslu um ofbeldi gegn öldruðum, sem nýverið kom út á vegum greiningardeildar ríkislögreglustjóra, að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) álítur að u.þ.b. 16% fólks 60 ára og eldri verði fyrir ofbeldi af einhverju tagi.
Ofbeldi gegn öldruðum getur nefnilega verið af margvíslegum toga og vert er að hafa í huga að fjárhagsleg misnotkun, vanræksla og skortur á virðingu fyrir reisn og sjálfsákvörðunarrétti getur flokkast sem ofbeldi jafnt sem líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi.
Síðustu misseri má sem betur fer greina viðhorfsbreytingu í samfélaginu til þessa málaflokks og hafa yfirvöld sett af stað ýmis verkefni í því skyni að vernda þennan viðkvæma hóp fyrir hvers kyns ofbeldi. Soroptimistar styðja alla viðleitni til að knýja fram breytingar á viðhorfi almennings til ofbeldis og fagna aðgerðum á borð við stækkað hlutverk Neyðarlínunnar 112 sem nú er verið að kynna sem miðlæga þjónustu á þessu sviði með herferðinni Segðu frá.
Höfundur er forseti Soroptimistasambands Íslands. Soroptimistar eru alþjóðleg samtök kvenna með yfir 80.000 félaga í 127 löndum. Íslenskir soroptimistar eru um 600 talsins í 19 klúbbum víðs vegar um land.
Athugasemdir