Stephen Loewentheil keypti sér bók í gær (fimmtudag). Hann var ekki með fyrir henni í reiðufé svo hann þurfti að millifæra.
Rétt tæplega 1,4 milljarð íslenskra króna.
Enda var þetta engin venjuleg bók.
Árið 1623 kom út bók á Bretlandi sem nú á dögum er jafnað kölluð „First folio“ en þetta er fyrsta alvöru bókin sem geymir leikrit William Shakespeares. Þau eru 36 talsins í bókinni.
Shakespeare hafði dáið sjö árum fyrr, 1616. Hann hafði ekki haldið vel utan um handritin sín meðan hann lifði. Átján af leikritum hans höfðu komið út í bæklingum og smáritum ýmiss konar en þær útgáfur voru óvandaðar á margan hátt. Textinn var ekki áreiðanlegur og frágangur slæmur.
Og 20 af leikritum hans höfðu ekki komið út áður en hefðu því hugsanlega glatast ef „First folio“ hefði ekki verið gefin út af tveimur vinum Shakespeares.
Þar á meðal eru Þrettándakvöld, Julius Caesar og sjálfur Makbeð.
235 eintök af „Firsto folio“ eru til en þau eru flest í eigu opinberra bókasafna bæði í Bretlandi og víðar.
En 82 eintök eru reyndar í eigu eins aðila, Folger Shakespeare Library í Washington-borg í Bandaríkjunum. Forráðamaður þeirra samtaka er Michael Witmore og þau hafa með ærnum tilkostnaði sankað að sér öllum þessum eintökum.
Það er ekki bara ágirnd samtaka Witmores sem veldur því að þau hamstra svona eintök af „First folio“. Staðreyndin er sú að hvert einasta eintak bókinni er einstakt í sinni röð. Hvert eintak var prentað sérstaklega og útgefendur voru að leiðrétta og nostra við textann jafnóðum og eintökin voru prentuð.
Með því að bera þau mjög vandlega saman hafa allskonar villur í texta og prentun komið í ljós smátt og smátt. Folger Shakespeare Library hefur átt ríkan þátt í að menn komast sífellt nær hinum upprunalega og „rétta“ texta Shakespeares.
Aðeins 5-6 eintök af „First folio“ munu vera í eigu einkaaðila.
Og eitt þeirra eintaka skipti sem sagt um eigendur í gær.
Á vegum uppboðsfyrirtækins Christie's í New York var boðið upp fallegt eintak af bókinni, allar 900 síðurnar vel læsilegar og snyrtilegar. Eigandinn var einkaháskóli í Kaliforníu.
Þau hjá Christie's gerðu sér vonir um fá jafnvel milli fjögurra og fimm milljóna fyrir bókina.
En það stóðst nú aldeilis ekki.
Uppboðið fór fram gegnum síma og tók aðeins sex mínútur.
Þá var bókin slegið fornbókakaupmanninum Stephen Loewentheil fyrir næstum því 10 milljónir dollara.
Sem sagt tæplega 1,4 milljarða íslenskra króna.
Það segir sig nærri sjálft að þetta er heimsmet fyrir eina bók.
Stephen Loewentheil var auðvitað himinlifandi og lýsti því í viðtölum hversu djúp ánægja fylgdi því fyrir sig sem bókakaupmann að hafa eignast þessa merku bók. Lítill vafi er þó á því að hann hefur verið að bjóða fyrir einhvern auðkýfing sem ætlar bókinni stað í sínu prívatbókasafni.
Athugasemdir