Í dag fer fram landsþing Ungra jafnaðarmanna. Þar mun ungt fólk koma saman, móta stefnu og áherslur hreyfingarinnar til næstu tveggja ára og kjósa nýja framkvæmdastjórn og miðstjórn félagsins.
Ég býð mig fram til forseta Ungra jafnaðarmanna, sem leiðir þetta innra starf félagsins og er jafnframt andlit þess út á við. Hreyfingin á brýnt erindi við íslenskt samfélag. Heimsfaraldurinn hefur minnt okkur rækilega á að við erum ekki bara eitthvað samansafn af einstaklingum, heldur erum við samfélag. Við erum háð hvert öðru.
Samfélög sem byggja á norrænni jafnaðarstefnu hafa sýnt og sannað að sterkt velferðarkerfi sem grípur okkur þegar áföll dynja yfir er ekki baggi á atvinnulífinu heldur þvert á móti forsenda þess að markaðir virki í þágu almennings. Við lifum á skrítnum tímum. Heimsfaraldur geysar, það er fjöldaatvinnuleysi í landinu og baráttan gegn hamfarahlýnun er orrusta af allt öðrum toga og stærri skala en mannkynið hefur nokkurn tímann háð. Þetta eru áskoranir sem verður að takast á við í krafti samstöðu og með gildi félagshyggjunnar að leiðarljósi. Það er eilíft viðfangsefni okkar að útfæra og framkvæma jafnaðarstefnuna þannig að hún taki mið af breyttum tímum og breyttum aðstæðum. Og þar gegnum við ungir jafnaðarmenn lykilhlutverki, því ungt fólk er best til þess fallið að þróa stefnuna þannig að hún mæti áskorunum dagsins í dag og leiða breytingar morgundagsins.
Hvernig er best að við Ungir jafnaðarmenn beitum okkur til að árangur náist og pólitíkin taki mið af hagsmunum okkar? Hvernig vinnum við best að sanngjarnara og jafnara samfélagi?
Orkustigið hjá yngri kynslóðum samfélagsins er hátt um þessar mundir
Við gerum það með því að reka opna og öfluga hreyfingu sem er aðgengileg fyrir ungt jafnaðarfólk úr öllum áttum og hvaðanæva af landinu. Verði mér treyst fyrir því að leiða Unga jafnaðarmenn þá vil ég gera einmitt þetta með markvissum hætti um allt land. Opna starfið, breikka hreyfinguna og stækka hana. Fjöldinn næst ef starfið er málefnalegt, skemmtilegt og skapandi og ef forystan leitar allra leiða til að fá nýtt fólk til liðs við hreyfinguna. Þannig fæst svo aukin virkni, fleiri snjallar hugmyndir og vinnufúsar hendur. Orkustigið hjá yngri kynslóðum samfélagsins er hátt um þessar mundir - en við getum gert mun betur í að virkja þessa orku og þennan sköpunarkraft innan lýðræðislegra stofnana. Ef við viljum hafa áhrif þá þurfum við að mæta til leiks – innan stjórnmálanna – því þar er valdið.
Kannski er mikilvægara nú en nokkru sinni fyrr að ungt fólk taki sér pláss í stjórnmálum og hafi eitthvað um framtíð sína að segja. Annars skiljum við framtíðina eftir í höndum annarra.
Því gef ég kost á mér til að leiða starf Ungra jafnaðarmanna. Sjónarmið ungs fólks sem vilja jafnara, sanngjarnara samfélag eiga brýn erindi við almenning og ég vil taka þátt í að búa til breiðan, opinn vettvang þar sem þau sjónarmið fá að blómstra.
Athugasemdir