Með sigri í kvöld getur íslenska karlalandsliðið jafnað árangur kvennalandsliðsins á EM. Jafnað hann. Með sigri. Því fyrir einungis þremur árum komst kvennalandsliðið í átta liða úrslit á EM eftir frækinn sigur á Hollendingum, sem áttu að heita sterkara liðið á vellinum. Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir skoraði eina mark leiksins eftir frábæra sendingu frá Hallberu Guðnýju Gísladóttur inn í teiginn. Dagný kom á ferðinni og skallaði boltann neðst í markhornið. Frábært mark og eftirminnileg stund fyrir alla unnendur íslenskrar knattspyrnu.
Markaskorari Íslands, sú sem skóp íslensku A-landsliði í knattspyrnu sinn stærsta sigur fyrir þremur árum, tjáir sig í fjölmiðlum í dag. Ekki um leik karlalandsliðsins við England í kvöld, heldur um atvik sem varð í Vestmannaeyjum um helgina þegar ungri stúlku var meinað að spila á landsleiknum svokallaða á Orkumótinu, því mótið væri fyrir stráka en ekki stelpur. (Stúlkan mátti keppa á mótinu, greiddi væntanlega þátttökugjald en hún mátti bara ekki vera betri en strákarnir. Það var of langt gengið.) Dagný tjáir sig um málið því hún var nefnilega „ein nokkurra landsliðskvenna“ sem spilaði með strákunum í yngri flokkum til að fá „samkeppni við hæfi“, eins og segir í frétt Vísis um málið.
Ég staldraði við þessi orð í viðtali Vísis við Dagnýju. Að Dagný sé „ein nokkurra landsliðskvenna“ sem spilaði með strákunum í yngri flokkum. Það þýðir að fleiri en ein afrekskona í knattspyrnu á Íslandi varð að „fá leyfi“ til að æfa og keppa með strákunum svo hún gæti komist á þann stað sem hún er á í dag. Komist í landsliðið. Getur verið að það sé vegna þess að strákarnir fá fleiri æfingar, reyndari þjálfara og verða því fljótlega betri en stelpurnar? Því eins og Dagný bendir sjálf á þá er enginn munur á kynjunum líkamlega fyrir tólf ára aldur.
Takist stelpunum, þrátt fyrir að fá færri tækifæri, að skara fram úr í íþróttinni fá þær sem sagt sumar að æfa og keppa með strákunum. Ef strákarnir verða áberandi betri en jafnaldrar þeirra eru þeir hins vegar hækkaðir um flokk, fá að spila með stóru strákunum. Ég velti fyrir mér hvers vegna það er ekki gert í tilfelli efnilegra stelpna?
Dagný hvetur önnur lið og klúbba til að taka Gróttu til fyrirmyndar og leyfa efnilegum stelpum að æfa og spila með strákaliðunum. Hún bendir á að hennar heimaklúbbur, KFR, sé mjög lítill klúbbur (þess vegna urðu stelpurnar líklega að æfa með strákunum) en það hafi samt skilað átta stelpum í Pepsi-deildina, sjö þeirra hafi spilað fyrir yngri landsliðin og þrjár fyrir A-landsliðið. „Við eigum allar það sameiginlegt að hafa æft og spilað með strákunum,“ segir hún.
Hér er biluð hugmynd. Í stað þess að „leyfa“ einni og einni efnilegri stelpu að æfa og keppa með strákunum, hvernig væri að gera íslenskri kvennaknattspyrnu bara jafn hátt undir höfði og karlaknattspyrnu, strax frá fyrstu æfingu?
--
* P.S. Undirrituð er virkilega spennt fyrir leik kvöldsins og vandræðalega stolt af árangri karlalandsliðsins. Ég vona líka innilega að Íslendingar eigi eftir taka með sama krafti utan um kvennalandsliðið í haust, fylla Laugardalsvöll í september og flykkjast til Hollands að ári!
** P.P.S. Hver sér um að uppfæra Wikipedia síður landsliðanna? Wikipedia íslenska kvennalandsliðsins virðist ekki hafa verið uppfærð í nokkur ár því stærsta árangurs íslensks A- landsliðs í knattspyrnu er hvergi getið á síðunni og hún inniheldur fullt af staðreyndavillum! Wikipedia síða íslenska karlalandsliðsins var síðast uppfærð síðastliðinn miðvikudag, þegar liðið sigraði Austurríki 2-1 og tryggði sér þar með sæti í 16 liða úrslitum.
Athugasemdir