Nýtt efni
Fylgið á hreyfingu og Halla Hrund á skriði
Nú, líkt og síðast þegar nýr forseti var kosinn, eru fjórir frambjóðendur að mælast með tveggja stafa fylgi. Árið 2016 var hins vegar sá sem vann á endanum að mælast með langmest fylgi allan tímann. Í dag er ekki marktækur munur milli efstu frambjóðenda.
„Ég hef orðið fyrir blæstri úr ólíkum áttum“
Halla Hrund Logadóttir vék sér undan því í Pressu að svara spurningum um hvort hún hefði orðið fyrir þrýstingi frá ráðherra eða stjórnvöldum í starfi sínu sem orkumálastjóri þar sem áherslur hennar voru gjarnan á skjön við áherslur ríkisstjórnarinnar. Endurtekið sagðist hún tala fyrir almannahagsmunum.
„Forsætisráðherrann Katrín er náttúrulega bara manneskjan Katrín“
Katrín Jakobsdóttir forsetaframbjóðandi og fyrrverandi forsætisráðherra var meðal viðmælenda í Pressu í dag. Hún var spurð hvort hefði tekið nógu vel á ummælum þáverandi utanríkisráðherra um tjaldbúðirnar svokölluðu á Austurvelli fyrr á árinu. „Ég ætla bara að tala fyrir mín ummæli en ekki ummæli annarra,“ svaraði Katrín, líkt og áður.
Þórður Snær Júlíusson
Elsku ráðherrar, hættið að gefa Ísland
Nú stendur til að gefa norskum laxeldisfyrirtækjum íslenska firði til eignar. Þegar er búið að gefa örfáum útgerðarfjölskyldum hundruð milljarða króna hið minnsta af fé sem ætti að hafa farið í samfélagslega uppbyggingu. Vilji er til þess að gefa einkaaðilum vindorku en enginn vilji til þess að rukka ferðaþjónustu fyrir nýtingu á almannagæðum. Hvað gengur íslenskum ráðamönnum eiginlega til?
Fjögur fræknustu í Pressu
Katrín, Baldur, Jón Gnarr og Halla Hrund mætast í fyrsta sinn í kappræðum í Pressu.
Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
Starfsmenn Alvotech lýsa vinnuálaginu sem ómanneskjulegu og hafa leitað til stéttarfélaga út af ógreiddri yfirvinnu og fleiri málum. Vinnuaðstæðurnar hafa verið svona út af því að Alvotech hefur unnið að því að fá markaðsleyfi fyrir samheitalyf Humira í Bandaríkjunum. Fyrirtækið hefur veðjað öllu á þetta lyf en sala á því hefur dregist saman og samheitalyfjum þess hefur alls ekki gengið eins vel í Bandaríkjunum og reiknað var með.
Ég drap mig næstum á vinnu
Martyna Daniel lærði það þrítug að sama hversu áhugaverð og skemmtileg vinna er þá má hún ekki taka yfir alla hluta lífsins. Hún fór í kulnun og veikindaleyfi en fór svo að starfa á Borgarbókasafninu og vinnur í dag sem sérfræðingur fjölmenningarmála þar enda kann hún frönsku, spænsku, pólsku, ensku og íslensku.
Spyr hvort tengsl flóttafólks við hryðjuverkasamtök verði rannsökuð
Þingmaður Sjálfstæðisflokks vill fá að vita hvort til standi að rannsaka bakgrunn flóttafólks út frá mögulegum tengslum við hryðjuverkasamtök. Tæpur áratugur er síðan að annar þingmaður flokksins velti fyrir sér bakgrunnsskoðun á flóttafólki og var fordæmdur fyrir af allri flokksforystunni.
Kristín Davíðsdóttir
Að sýna samhygð
Eitt það mikilvægasta sem lífið hefur kennt Kristínu Davíðsdóttur hjúkrunarfræðingi er að með því einu að vera til staðar og sýna samhygð getur maður gert ansi mikið. „Við þurfum ekki að hræðast það að taka upp mál eða ræða þótt við höfum ekki lausn – við getum alltaf sýnt samhygð.“
Sjálfstæðisflokkurinn mælst með minna en 20 prósent fylgi samfleytt í meira en ár
Vinstri græn hafa aldrei mælst með minna fylgi í könnun Maskínu og yrðu minnsti flokkurinn á þingi ef kosið yrði í dag, ef þau kæmust yfir höfuð inn. Samfylkingin mælist nú stærri en nokkru sinni áður á kjörtímabilinu og Miðflokkurinn er stöðugur í kjörfylgi sínu frá 2017.
„Við erum ekki í Amazon – við erum á Íslandi“
Stórtæk skógrækt á Íslandi gæti samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar skilað litlum ef nokkrum ávinningi fyrir loftslagið. „Það er ekki hægt að gróðursetja bara tré og ætla þannig að redda málunum og bjarga heiminum,“ segir Pawel Wasowicz, doktor í grasafræði. Náttúran sé ekki einföld og á hana ekki hægt að leika.
Vextir þriðjungs allra óverðtryggðra lána til heimila landsins losna brátt
Í nýjustu mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er sagt frá því að meirihluti eftirstandandi óverðtryggðra lána á föstum vöxtum munu koma til endurskoðunar á næstu misserum. Frá og með júlí og til og með ágúst á næsta ári munu vextir losna á óverðtryggðum lánum fyrir samanlagt 410 milljarða króna. Það er rúmlega þriðjungur af öllum óverðtryggðum lánum til heimila landsins.
Án endurgreiðslunnar hefði útgáfa íslenskra bóka sennilega hrunið
Salan á nýjum bókum í prentuðu formi hefur dregist mjög mikið saman og hratt. Sigþrúður Gunnarsdóttir, framkæmdastjóri Forlagsins, telur að án endurgreiðslunnar núna væri staðan skelfileg. Nýlega var tekin saman skýrsla á vegum Menningar- og viðskiptaráðuneytisins um áhrif þessara laga sem sýni ótvírætt: „að án endurgreiðslunnar hefði útgáfa íslenskra bóka sennilega hrunið.“
Truflaði ávarp utanríkisráðherra og krafðist svara vegna Gaza
Kona kallaði að utanríkisráðherra á ráðstefnu í morgun og spurði hvers vegna stjórnvöld hefðu ekki fordæmt árásir Ísraelshers á Gazasvæðið. Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi var í salnum og klappaði fyrir konunni.
Forsetaframbjóðendur mætast í Pressu
Fjórir frambjóðendur til embættis forseta Íslands mæta í beina úsendingu í Pressu á föstudag. Þátturinn verður sendur út klukkan 10.00 frá ritstjórnarskrifstofu Heimildarinnar. Katrín Jakobsdóttir, Baldur Þórhallsson, Jón Gnarr og Halla Hrund Logadóttir sitja fyrir svörum.
Athugasemdir