„Gildi listarinnar í mínu lífi er svo mikið og svo stórt að það er svo gjörsamlega samofið lífi mínu – bara eins og súrefni.“ segir Margrét Bjarnadóttir. „Fyrir mig er listin góður mælikvarði á það hvar ég er stödd í lífinu þá stundina, persónulega. Mér finnst mikilvægast að halda móttökuskilyrðunum opnum, svo ég geti verið opin fyrir umhverfinu, fyrir fólki og því að taka lífið inn. Það gagnast mér beint í listinni. Þegar móttökuskilyrðin lokast af einhverjum ástæðum, þá tekur maður ekki eins vel eftir lífinu og það er einfaldlega ekki jafn skemmtilegt. Að halda þeim opnum er stöðug æfing, alveg eins og að sjá um heilsuna eða borða til að næra sig.
„Mér finnst mikilvægast að halda móttökuskilyrðunum opnum, svo ég geti verið opin fyrir umhverfinu, fyrir fólki og því að taka lífið inn.“
Hún sækir sinn innblástur í sitt eigið líf og lítil atvik úr hversdagsleikanum sem fara …
Athugasemdir