Þessi grein birtist upphaflega í Stundinni fyrir meira en 4 árum.

Hvað er að gerast næstu daga?

Stund­ar­skrá­in 5.júlí til 26.júlí.

Hvað er að gerast næstu daga?
Vagg og velta Ókeypis verður fyrir börn, eldri borgara og öryrkja á sýninguna Vagg og velta á Árbæjarsafni sunnudaginn 7. júlí. Mynd: b'Roman Gerasymenko'

Bara við 2

Hvar? Harbinger

Hvenær? 6. júlí kl. 17.00

Aðgangseyrir: Ókeypis!

Sýningin Bara við 2 er sjötta og jafnframt síðasta sýningin af sýningaröðinni Rólegt og rómantískt sem samanstendur af sex sýningum í Harbinger fyrri hluta árs 2019. Sýningaröðinni er stýrt af Kristínu Helgu Ríkharðsdóttur, Rúnari Erni Jóhönnu Marinóssyni, Unu Björgu Magnúsdóttur og Veigari Ölni Gunnarssyni.

Skógarleikarnir 2019

Hvar? Furulundur, Heiðmörk

Hvenær: 6. júlí kl. 13.00

Aðgangseyrir: Ókeypis!

Skógarleikarnir eru nú orðinn árlegur viðburður hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Að vanda mun fagfólk í skógarhöggi keppa í skógaríþróttum. Keppt er í hefðbundnum skógarhöggsgreinum svo sem afkvistun trjábola, nákvæmnisfellingu, axarkasti, sporaklifri og bolahöggi. Samhliða keppninni er ævintýraleg stemning, grillboð, fræðsla um kolefnisbindingu trjáa, leisögn um skóginn, seiðkona í tjaldi, eldsmiður hamrar járn yfir logandi eldi og margt fleira. 

Vagg og velta

Hvar? Árbæjarsafn

Hvenær? 7. júlí kl. 13.00

Aðgangseyrir: Ókeypis fyrir börn, eldri borgara og öryrkja. Fullorðnir 1.700 kr. 

Sunnudaginn 7. júlí bjóðum við gestum að upplifa ferðalag aftur í tímann. Starfsfólk Árbæjarsafns mun klæðast fatnaði eins og tíðkaðist á 5. og 6. áratugnum. Háskóladansinn kemur á safnið og sýnir fjörug dansspor, spákona býður í spjall, Katrín Rós kennir gestum að gera flotta pin-up hárgreiðslu, félagar í Fornbílaklúbb Íslands verða á svæðinu og margt fleira.

GYDA // Tónleikaröð Norræna hússins

Hvar? Norræna húsið

Hvenær? 10. júlí kl. 21:00

Aðgangseyrir: Frá 2.000 kr. 

Gyða Valtýsdóttir náði fyrst athygli á heimsvísu með raftónlistarsveitinni múm. Hún hætti í hljómsveitinni til að klára sellónám og eignaðist tvískipta mastersgráðu frá Musik Akademie í Basel í bæði klassískum hljóðfæraleik og spuna. Báðar sólóplötur hennar – þær Epicycle og Evolution – fengu verðlaun fyrir bestu plötur í opnum flokki á Íslensku tónlistarverðlaununum.

Fyndnustu mínar + 2 gaurar

Hvar? Hard Rock Café

Hvenær? 11. júlí kl. 19.30

Aðgangseyrir: 3.500 kr.

Fyndnustu mínar er uppistandshópur sem samanstendur af Lóu Björk, Rebeccu Scott Lord og Sölku Gullbrá. Þær hafa haldið uppistandskvöld við frábærar undirtektir síðastliðið ár. Fyndnustu mínar og tveir gaurar sem þær þekkja, Vilhelm Neto og Stefán Ingvar, sameina krafta sína á Hard Rock þetta eina kvöld til þess að láta ykkur hlæja.

Eistnaflug 2019

Hvar? Neskaupstaður

Hvenær? 10–14. júlí

Aðgangseyrir: 3.300–18.900 kr.

Eistnaflug er innihátíð í Neskaupstað fyrir austan, nánast jafn langt frá Reykjavík og hægt er að komast án þess að fara úr landi. Síðan 2005 hefur hátíðinni vaxið fiskur um hrygg og er orðinn að fjögurra daga tónlistarhátíð, þar sem metal-, harðkjarna-, pönk-, rokk- og indí-bönd deila saman sviði.

Hjarta Hafnarfjarðar

Hvar? Bæjarbíó, Hafnarfirði

Hvenær? 8.–14. júlí

Aðgangseyrir: Frá 3.990 kr. hver viðburður

Dagana 8. júlí til 14. júlí má búast við miklum hátíðarhöldum í hjarta Hafnarfjarðar en hljómsveitir á borð við Jónas Sig, Björgvin Halldórsson, Á móti sól, Friðrik Dór og Dimma munu troða upp fyrir fullum sal í Bæjarbíói. Einnig verða útitjöld og sumir viðburðir ókeypis innan þess.

JFDR, Jaakko Eino Kalevi, Farao

Hvar? Iðnó

Hvenær? 11. júlí kl. 21.00

Aðgangseyrir: 2.500 kr. 

Finnski tónlistarmaðurinn Jaakko, íslenska tónlistarkonan Jófríður Ákadóttir, eða JFDR, og hin norska Farao leiða saman hesta sína í rafrænni folk-tónlistarveislu í Iðnó við Tjörnina 11. júlí næstkomandi. 

Mr.Silla og Jae Tyler

Hvar? Mengi

Hvenær? 12. júlí

Aðgangseyrir: 2.500 kr.

Mr. Silla (Sigurlaug Gísladóttir) hefur verið íslensku tónlistarsenunni góðkunn síðan hún hóf samstarf við raftónlistar-frumherjana í múm snemma á tvítugsaldri og Jae Tyler frá Kansas er listastrákur nú búsettur í Berlín þar sem hann býr til truflandi skemmtilega lofi-músík innblásna af komandi heimsenda.

Mannréttindamaraþon – sendiráðshlaup

Hvar? Íslandsdeild Amnesty International, Þingholtsstræti 27

Hvenær? 13. júlí kl. 13.00

Aðgangseyrir: Frjáls framlög.

Eins og nafnið gefur til kynna er þetta hlaup þar sem farið verður um 5 km langa leið á milli 5 sendiráða í miðborg Reykjavíkur.

Við hvert sendiráð verða sjálfboðaliðar frá ungliðahreyfingunni og þar munu hlauparar skrifa undir mál sem snúa að löndum sendiráðanna og hafa þannig áhrif á mannréttindabaráttuna. Ekki verður tímataka.

Lunga 2019

Hvar? Seyðisfjörður

Hvenær? 14. júlí til 21. júlí

Aðgangseyrir: 8.900–13.900 kr.

Listahátíðin Lunga 2019 mun fara fram á Seyðisfirði daganna 14.–21. júlí. Hátíðin, sem teygir sig yfir átta daga, er stútfull af viðburðum á borð við gjörninga, vinnustofur, tónleika, fyrirlestra, kvikmyndasýningar, myndlistarsýningar og tveggja daga tónleikahald á Norðursíld helgina 19.–21. júlí.

IceDoc – íslensk heimildamyndahátíð

Hvar? Akranes

Hvenær? 17.–21. júlí 

Aðgangseyrir: Frá 6.000 kr. 

IceDoc heimildamyndahátíðin sýnir rúmlega 50 heimildamyndir alls staðar að úr heiminum frá miðvikudegi til sunnudags. Boðið verður upp á spurt og svarað með leikstjórum, vinnustofur og aðra skemmtilega viðburði. Viðburðir eru við hæfi allra aldurshópa.  

Rölt í Reykjavík

Hvar: Hefst við Hörpu

Hvænær? 18. júlí kl. 20.00

Aðgangseyrir: Ókeypis!

Gangan er ferðalag um miðbæ Reykjavíkur, þar sem ýmis kennileiti er tengjast glæstri dægurtónlistarsögu Íslands verða skoðuð. Gömul og fornfræg æfingapláss, sögulega mikilvægir tónleikastaðir og staðurinn þar sem Megas fór í sígópásu við upptökur á Loftmynd koma við sögu, auk ýmissa annarra rýma sem stuðlað hafa að framgangi íslensks popps og rokks. Gönguna leiðir Arnar Eggert Thoroddsen tónlistarblaðamaður. 

Muriel’s Wedding – föstudagspartísýning

Hvar? Bíó Paradís

Hvenær? 19. júlí kl. 20.00

Aðgangseyrir: 1.600 kr.

Bíó Paradís fagnar 25 ára afmæli kvikmyndarinnar Muriel's Wedding með því að slá upp föstudagspartísýningu. Sjoppan verður stútfull af sætindum og barinn fljótandi af partíveigum sem að sjálfsögðu má taka með inn í salinn. 

Geirfuglaball á Havarí

Hvar? Havarí, Berufirði

Hvenær? 26. júlí kl. 21.00

Aðgangseyrir: 3.000 kr.

Tónleikaröðin Sumar í Havarí hefur verið haldin nokkrum sinnum og margir eflaust orðnir spenntir að sjá dagskrá ársins 2019. Sumar í Havarí er nefnilega orðinn einn af vorboðunum ljúfu sem gleður með blöndu af taumlausri sveitasælu og söng. 26. júlí munu hinir víðfrægu Geirfuglar slá upp balli í sveitasælunni fyrir austan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
1
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Þórður Snær Júlíusson
6
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Elsku ráð­herr­ar, hætt­ið að gefa Ís­land

Nú stend­ur til að gefa norsk­um lax­eld­is­fyr­ir­tækj­um ís­lenska firði til eign­ar. Þeg­ar er bú­ið að gefa ör­fá­um út­gerð­ar­fjöl­skyld­um hundruð millj­arða króna hið minnsta af fé sem ætti að hafa far­ið í sam­fé­lags­lega upp­bygg­ingu. Vilji er til þess að gefa einka­að­il­um vindorku en eng­inn vilji til þess að rukka ferða­þjón­ustu fyr­ir nýt­ingu á al­manna­g­æð­um. Hvað geng­ur ís­lensk­um ráða­mönn­um eig­in­lega til?
Vextir þriðjungs allra óverðtryggðra lána til heimila landsins losna brátt
9
Viðskipti

Vext­ir þriðj­ungs allra óverð­tryggðra lána til heim­ila lands­ins losna brátt

Í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­un­ar er sagt frá því að meiri­hluti eft­ir­stand­andi óverð­tryggðra lána á föst­um vöxt­um munu koma til end­ur­skoð­un­ar á næstu miss­er­um. Frá og með júlí og til og með ág­úst á næsta ári munu vext­ir losna á óverð­tryggð­um lán­um fyr­ir sam­an­lagt 410 millj­arða króna. Það er rúm­lega þriðj­ung­ur af öll­um óverð­tryggð­um lán­um til heim­ila lands­ins.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Rúlletta Róberts og vitnisburðir starfsfólks: „Þetta er bara rosalega mikið álag“
1
ÚttektRóbert Wessman, Alvogen og Alvotech

Rúll­etta Ró­berts og vitn­is­burð­ir starfs­fólks: „Þetta er bara rosa­lega mik­ið álag“

Starfs­menn Al­votech lýsa vinnu­álag­inu sem ómann­eskju­legu og hafa leit­að til stétt­ar­fé­laga út af ógreiddri yf­ir­vinnu og fleiri mál­um. Vinnu­að­stæð­urn­ar hafa ver­ið svona út af því að Al­votech hef­ur unn­ið að því að fá mark­aðs­leyfi fyr­ir sam­heita­lyf Humira í Banda­ríkj­un­um. Fyr­ir­tæk­ið hef­ur veðj­að öllu á þetta lyf en sala á því hef­ur dreg­ist sam­an og sam­heita­lyfj­um þess hef­ur alls ekki geng­ið eins vel í Banda­ríkj­un­um og reikn­að var með.
Sleppti máltíðum til þess að komast frá Ásbrú
4
Greining

Sleppti mál­tíð­um til þess að kom­ast frá Ás­brú

„Stans­laust von­leysi vakn­ar um leið og þú mæt­ir,“ seg­ir ung­ur venesú­elsk­ur hæl­is­leit­andi um Ás­brú. Þar hafi ver­ið ómögu­legt fyr­ir hann, eða nokk­urn mann, að að­lag­ast ís­lensku sam­fé­lagi – sem er at­riði sem stjórn­mála­menn þvert á flokka hafa sagt mik­il­vægt. Fé­lags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hef­ur sagst vilja fleiri bú­setu­úr­ræði á borð við Ás­brú.
Fyrirtækið sem Kvika keypti kom að lánum til félags konu Ármanns
6
ViðskiptiKvika og Ortus

Fyr­ir­tæk­ið sem Kvika keypti kom að lán­um til fé­lags konu Ár­manns

Breska fyr­ir­tæk­ið Ort­us Capital, sem Ár­mann Þor­valds­son, nú­ver­andi for­stjóri al­menn­ings­hluta­fé­lags­ins Kviku, var hlut­hafi í var einn af lán­veit­end­um breska kráar­fyr­ir­tæk­is­ins Red Oak Taverns, sem eig­in­kona Ár­manns á hlut í. Þetta fyr­ir­tæki varð síð­ar að Kviku Secu­rities í Bretlandi og keypti það breskt lána­fyr­ir­tæki af við­skipta­fé­lög­um fyr­ir tveim­ur ár­um fyr­ir millj­arða króna.
Umsækjandi hjá MAST vill rökstuðning: „Ég er vonsvikinn“
7
FréttirLaxeldi

Um­sækj­andi hjá MAST vill rök­stuðn­ing: „Ég er von­svik­inn“

Eg­ill Stein­gríms­son dýra­lækn­ir var ann­ar af um­sækj­end­un­um um sviðs­stjórastarf hjá Mat­væla­stofn­un sem með­al ann­ars snýst um eft­ir­lit með lax­eldi. Fiska­líf­eðl­is­fræð­ing­ur­inn Þor­leif­ur Ág­ústs­son var ráð­inn fram yf­ir hann og vakti ráðn­ing­in at­hygli inn­an MAST vegna já­kvæðra skrifa hans um lax­eldi hér á landi.
Öryrkjar borga fyrir kjarasamninga og tugir milljarða settir í borgarlínu
8
GreiningFjármálaáætlun 2025-2029

Ör­yrkj­ar borga fyr­ir kjara­samn­inga og tug­ir millj­arða sett­ir í borg­ar­línu

Rík­is­sjóð­ur verð­ur rek­inn í halla í næst­um ára­tug sam­fleytt áð­ur en við­snún­ing­ur næst. Til að fjár­magna tug­millj­arða króna út­gjöld vegna Grinda­vík­ur og kjara­samn­inga á með­al ann­ars að fresta greiðsl­um til ör­orku­líf­eyri­s­kerf­is­ins, selja eign­ir fyr­ir tugi millj­arða króna og lækka fram­lög í vara­sjóð. Fram­kvæmd­um sem áð­ur hef­ur ver­ið frest­að er frest­að á ný en pen­ing­ar sett­ir í nýja þjóð­ar­höll og tug­ir millj­arða króna verða til­tæk­ir í borg­ar­línu og tengd verk­efni. Vaxta­byrð­in á rík­is­sjóði verð­ur þó þung. Á næsta ári mun hann borga 121 millj­arð króna í slíka.

Mest lesið í mánuðinum

Læstur inni í íbúðinni sinni í fimmtán ár
1
Viðtal

Læst­ur inni í íbúð­inni sinni í fimmtán ár

Sveinn Bjarna­son bjó í fimmtán ár í læstri íbúð á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar. Hann bank­aði oft ít­rek­að og grét áð­ur en starfs­fólk opn­aði fyr­ir hon­um. Móð­ir hans gerði end­ur­tekn­ar at­huga­semd­ir við að hann væri læst­ur inni og seg­ir son sinn hafa ver­ið van­rækt­an. Fyrr á þessu ári greip hún til þess ör­þrifa­ráðs að flytja hann bú­ferl­um í ann­an lands­hluta til að fá mann­sæm­andi að­bún­að fyr­ir hann. Mál Sveins varp­ar ljósi á al­var­leg­ar brota­lam­ir í þjón­ustu við fatl­að fólk á Ís­landi og sýn­ir hvernig mann­rétt­indi hafa ver­ið virt að vett­ugi ár­um sam­an.
Eina leiðin til að halda lífinu áfram var að koma út
4
ViðtalForsetakosningar 2024

Eina leið­in til að halda líf­inu áfram var að koma út

Bald­ur Þór­halls­son bældi nið­ur eig­in kyn­hneigð frá barns­aldri og fannst hann ekki geta ver­ið hann sjálf­ur. Fyr­ir 28 ár­um tók hann ákvörð­un um að koma út úr skápn­um, það var ekki ann­að í boði ef hann ætl­aði að halda áfram með líf­ið. Nú stefna þeir Fel­ix Bergs­son á Bessastaði. „Við eig­um 28 ára ást­ríkt sam­band að baki og höf­um ekk­ert að fela,“ seg­ir Fel­ix.
„Ég ætla ekki að kinka kolli framan í einhver illmenni án þess að segja neitt“
6
ViðtalForsetakosningar 2024

„Ég ætla ekki að kinka kolli fram­an í ein­hver ill­menni án þess að segja neitt“

Jón Gn­arr er kom­inn í for­setafram­boð. Hann seg­ir meiri þörf á gleði og húm­or í lýð­ræð­inu og sam­fé­lag­inu þar sem of­fram­boð sé á leið­ind­um og er sann­færð­ur um að þjóð­in sé að leita sér að mann­eskju sem hún geti séð sjálfa sig í. Jón ætl­ar sér að mýkja freka kall­inn með kær­leik­ann að vopni og lof­ar að vera hvorki of­stopa­mann­eskja né lydda, nái hann kjöri. Svo hef­ur hann alltaf dreymt um að búa í Garða­bæ.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
7
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún fékk 20 millj­arða frá ís­lenska rík­inu

Frá ár­inu 2009 hef­ur hjúkr­un­ar­heim­il­ið Sól­tún feng­ið tæp­lega 20 millj­arða króna frá ís­lenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekj­um Sól­túns koma frá rík­inu. Eig­end­urn­ir hafa tek­ið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­in­um með því að selja fast­eign­ir og lóð­ir og lækka hluta­fé fyr­ir­tæk­is­ins. All­ur rekst­ur­inn bygg­ir hins veg­ar á um­deild­um samn­ingi við ís­lenska rík­ið sem gerð­ur var ár­ið 2000.
Ráðning stjórnanda til MAST vekur athygli: „Ég er fagmaður"
10
FréttirLaxeldi

Ráðn­ing stjórn­anda til MAST vek­ur at­hygli: „Ég er fag­mað­ur"

MAST til­kynnti starfs­mönn­um sín­um um það á mið­viku­dag­inn að bú­ið væri að ráða Þor­leif Ág­ústs­son sem nýj­an sviðs­stjóra yf­ir með­al ann­ars fisk­eld­is­deild­ina hjá stofn­un­ina. Þor­leif­ur hef­ur skrif­að grein­ar þar sem hann tal­ar fyr­ir lax­eldi í sjókví­um. Þor­leif­ur seg­ist vera vís­inda­mað­ur og að hann taki ekki af­stöðu. For­stjóri MAST, Hrönn Jó­hann­es­dótt­ir vill ekki ræða um ráðn­ing­una þeg­ar eft­ir því er leit­að.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár