Í samtali við Stundina segir fyrrverandi flugliði að andrúmsloftið innan fyrirtækisins í kringum og eftir gjaldþrot þess hafi helst minnt á sértrúarsöfnuð, þar sem starfsfólk hafði sýnt fyrirtækinu mikla hollustu og dæmi séu um að fyrrverandi flugfreyjur hafi rammað inn búningana sína. Í ljósi þess að mikil liðsheild hafi skapast innan fyrirtækisins og starfsfólkið hafi sýnt mikla hollustu sé sárt að sitja undir orðum Skúla. Flugfreyjufélag Íslands tekur undir með fyrrverandi starfsmönnum og segir kveðjurnar kaldar frá Skúla.
Takk, Skúli
Flugliðinn sem um ræðir kemur ekki fram undir nafni af ótta við afleiðingarnar í því andrúmslofti sem hefur myndast á meðal fyrrverandi starfsmanna flugfélagsins. „Fyrir og eftir gjaldþrotið myndaðist einhver gríðarlega óheilbrigð meðvirkni innan félagsins. Ég veit til dæmis um flugfreyjur sem römmuðu búningana sína inn eftir gjaldþrot og hengdu svo upp á vegg heima hjá sér.“
Samtölin sem hann á við fyrrverandi samstarfsfólk sitt hjá WOW eru annaðhvort þannig …
Athugasemdir