Mjög merkilegar niðurstöður fjölda vísindamanna í mörgum löndum á uppruna hesta hafa nýlega verið kynntar. Talsmaður vísindamanna er doktor Ludovic Orlando sem er meðal annars prófessor í sameindafornleifafræði (!) við háskólann í Kaupmannahöfn. Fjórir Íslendingar eru í hópi rannsakenda, þau Albína Hulda Pálsdóttir, Jón H. Hallsson, Agnar Helgason og náttúrlega Kári Stefánsson.
Ég ætla að stikla hér á stóru um þessar niðurstöður, eftir því sem ég hef skilning til, en um er að ræða lang viðamestu DNA-rannsókn sem fram hefur farið á nokkurri dýrategund, annarri en manninum.
Forfeður á stærð við refi
Elstu formæður og -feður hesta voru jurtaætur á stærð við refi sem höfðu nokkrar tær og bjuggu í Englandi suðaustanverðu fyrir 54 milljónum ára. Þá var þar hitabeltisfrumskógur. Þegar kólnaði og grasi vaxnar sléttur tóku við af skógunum urðu formæðurnar stærri svo þær kæmust yfir stærra svæði til að bíta nægju sína af grasi og tærnar runnu saman …
Athugasemdir