Fullt var út úr dyrum síðastliðið föstudagskvöld þegar Miðaldra Ísland stóð fyrir uppistandi í tilefni af 46 ára afmæli Auðar Jónsdóttur skálds.
Miðaldra Ísland samanstendur af Auði Jónsdóttur skáldi, Katrínu Oddsdóttur lögmanni og Berglindi Rós Magnúsdóttur, dósent á Menntavísindasviði. Uppistandið síðasta föstudag var frumraun þeirra þriggja þegar kemur að uppistandi.
Afmæli nýtt sem hreyfiafl
Auði og Katrínu hafði lengi langað að spreyta sig á uppistandi um ást, miðaldra krísur og stjórnarskrána en báðar höfðu þær reynst of uppteknar til að koma því í verk. Berglind, sú þriðja í hópnum, heyrði af draumórum þeirra og tilhugsunin kitlaði hana svo að hún slóst að lokum í hópinn. Afmæli Auðar var því nýtt sem hreyfiafl til framkvæmda og afsökun til að „láta vaða“, afmælið var bara „tylliástæða“.
„Við Berglind skildum báðar fyrir einu og hálfu ári síðan og síðan þá hefur fólk sagt okkur svo margt, af miðaldra krísum sínum, og við upplifað …
Athugasemdir