Útvarp Saga fagnar þeim breytingum sem lagðar eru til í stjórnarfrumvarpi um breytingar á almennum hegningarlögum sem felur í sér þrengingu ákvæðis 233 gr. a, um hatursorðræðu. Telur fjölmiðillinn að þrenging ákvæðisins sé skref í rétta átt og til þess að vernda borgarana fyrir valdníðslu. Þetta kemur fram í umsögn Útvarps Sögu um frumvarpið, en athygli vekur að Útvarp Saga er eini umsagnaraðilinn sem tekur vel í þingmálið.
Arnþrúður Karlsdóttir segir í umsögn sinni fyrir hönd Útvarps Sögu að ákvæði 233. gr. a, í almennum hegningarlögum eigi yfir höfuð ekki rétt á sér. Afnema beri ákvæðið að fullu, en í því segir að „hver sem með háði, rógi, smánun, ógnun eða á annan hátt ráðist opinberlega á mann eða hóp manna vegna þjóðernis þeirra, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar skuli sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum.“
Arnþrúður telur nokkra hópa njóta sérstakrar réttarverndar í ákvæðinu og …
Athugasemdir