Matarminningar hreindýrahirðisins Maret Ravdna Buljo eru ævintýralegri en flestra annarra í nútímasamfélagi. Rauði þráðurinn í gegnum þær allar er nýting og djúp virðing fyrir náttúrunni. Maret, sem er þekktur sjónvarpskokkur á Norðurlöndunum, kom hingað til lands til að taka þátt í viðburði á vegum Norræna hússins. Þar leiddi Sveinn Kjartansson á Aalto Bistro spjall við Maret, viðstaddir fengu sýnikennslu og auk þess að bragða á því sem hún galdrar fram.
Blaðamaður Stundarinnar náði tali af Maret skömmu áður en hún lagði af stað í ferðalagið, frá heimili sínu í Norður-Noregi. „Ég hlakka mikið til að koma en er líka svolítið stressuð fyrir ferðalaginu. Ég ferðast jú aðallega um Noreg og yfirleitt er ég ekki ein á ferð, eins og ég verð í Íslandsferðinni. Mitt daglega líf snýst nú fyrst og fremst um að hugsa um hreindýrahjörðina mína,“ sagði Maret þá.
Hún er, þrátt fyrir að kunna best við sig innan …
Athugasemdir