Kvikmyndin Dauði Stalíns frá því í fyrra vakti mikla athygli eins og menn vita. Þar var lýst dauða einræðisherrans ógurlega og hvernig sníkjudýr þau og smjaðrarar sem hann hafði safnað í kringum sig brugðust við og reyndu að komast á toppinn í ríkinu sem stóð svo eyðilegt eftir fráfall foringjans.
Dauði Stalíns átti sér stað eftir eina af frægum og alræmdum drykkjuveislum sem hann hélt síðari hluta ævinnar. Veislurnar komu gjarnan í kjölfar kvikmyndasýninga en Stalín hafði mjög gaman af kvikmyndum og þá helst ekki af þyngra taginu. Hann hafði gaman af léttum dans- og söngvamyndum, Tarzan-myndum frá Bandaríkjunum og svo framvegis. En síðan tók iðulega við mikill málsverður og þá drykkja fram á nótt.
Athugasemdir