Eftir að Magnea Marinósdóttir lauk meistaranámi árið 2004 í friðar- og öryggisfræðum frá School of Foreign Service, Georgetown háskóla, með áherslu á orsakir og afleiðingar samtímaátaka og friðarlausnir, hefur hún starfað hjá alþjóðastofnunum og -samtökum sem hafa það hlutverk að bæta stöðu og réttindi kvenna á helstu átakasvæðum samtímans í Afganistan, á Balkanskaga og nú síðast í Palestínu og Ísrael. Þar fyrir utan vann hún að rannsókn á aðgerðum til að stemma stigu við kynbundu ofbeldi í flóttamannabúðum í Tansaníu sumarið 2013. Nýverið flutti hún heim og gegnir nú stöðu sérfræðings í jafnréttismálum hjá velferðarráðuneytinu. Í öllum þessum verkefnum tengdum stríði og friði lærði hún eitt og annað um sjálfa sig og annað fólk.
1. Hvar sem er í veröldinni hittir þú „ættbálkinn“ þinn
Einu sinni fór ég á fyrirlestur með bandaríska ljósmyndaranum Nan Goldin sem var hérlendis í tilefni af sýningu verka hennar í Listasafni Íslands. Eftir að …
Athugasemdir