Nú veit ég auðvitað fullvel að hver maður er saklaus uns sekt er sönnuð. Og ég ætla ekki að segjast þekkja öllu meira til máls „stuðningsfulltrúans“ svonefnda heldur en fram hefur komið í almennum fréttum í fjölmiðlum. Þrátt fyrir það rak mig í rogastans þegar ég heyrði í fréttum í byrjun vikunnar að hann hefði verið að fullu sýknaður af þeim mjög svo alvarlegu ákærum sem bornar höfðu verið upp gegn honum. Þegar maður fréttir að einn og sami maðurinn sé borinn sams konar sökum af mörgum ótengdum einstaklingum, sem ekki verður séð að hafi neina hagsmuni af því að sammælast um einhver lygamál gegn viðkomandi, þá freistast maður náttúrlega til að álykta að eitthvað töluvert hljóti að vera til í ákærunum. Þess vegna varð ég hissa. Og ég hugsaði með mér, þegar ég heyrði þetta:
Annaðhvort hefur eitthvað komið fram við réttarhöldin sem bendir til sýknu hins ákærða og …
Athugasemdir